Morgunblaðið - 02.09.1983, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
30
Roðinn í austri 9. grein:
Ræða Krúséfe
— eftir dr. Sigurð
Pétursson
Herstjórn Stalíns
Einræðisvald og óbilgirni
Stalíns kom einnig niður á her-
stjórninni. Um það segir Krúséf
orðrétt:
„Valdið samansafnað á hendi
eins manns, Stalíns, hafði al-
varlegar afleiðingar í Stórstyrj-
öldinni, sem vér háðum fyrir
föðurland vort.“ Stalín hélt því
annars fram, að árás Þjóðverja
hefði komið Sovétríkjunum á
óvart.
„En, félagar, þetta er alger-
lega ósatt. Strax og Hitler kom
til valda í Þýzkalandi, tók hann
að sér það hlutverk að útrýma
kommúnismanum. Fasistarnir
lýstu þessu greinilega yfir, þeir
voru ekki að leyna neinu." Til-
fellið var „að tortíming Stalíns á
foringjum í hernum og pólitísk-
um liðsmönnum srium á árunun-
um 1937—1941, byggðri á ósönn-
um sakargiftum og tortryggni,
varð þess valdandi, hversu illa
gekk í byrjun stríðsins."
Svo var nú komið að Rauða
herinn, sem Trotsky hafði skap-
að á sínum tima, vantaði bæði
herforingja og skotfæri, að sögn
Krúséfs, og því fór herinn slíkar
hrakfarir sem raun varð á.
En ráðríki Stalíns leiddi víðar
til ófara, t.d. í viðskiptunum við
Júgóslavíu. Krúséf segir frá því,
að eitt sinn er hann var boðaður
á fund Stalíns, þá hafi Stalín
bent á afrit af bréfi nýlega sendu
Tító og spurt: „Hefur þú lesið
þetta?“ Stalín beið ekki and-
svars, en svaraði sjálfur. „Ég
hreyfi aðeins litla fingurinn og
þá er enginn Tító lengur. Hann
mun falla." En það átti ekki
fyrir Tító að liggja. Júgóslavía
sagði skilið við Sovétríkin.
Þrátt fyrir þetta allt, þá vann
Stalín ötullega að því að innræta
þjóðinni að hann væri sá mikli
leiðtogi, og allir þeir sigrar, sem
unnist höfðu í stríðinu, væru að
þakka „hugprýði, dirfsku og
snilligáfu“ Stalíns og einskis
annars.
„Læknasamsærið“
í rauninni var þetta ekkert
mál („affair"), sagði Krúséf, að-
eins yfirlýsing frá lækninum
Timashuk, sem var kona og
sennilega hvött af öðrum til þess
að senda Stalín þetta erindi
bréflega. I bréfinu stóð að
ónefndir læknar væru grunaðir
um að nota óviðeigandi læknis-
aðgerðir.
Bréfið nægði til þess, að Stalín
sló því föstu, að hér væri á ferð-
inni samsæri lækna í Sovétríkj-
unum. Lét hann þegar taka
fastan hóp af þekktum læknum,
margir þeirra Gyðingar, og sagði
sjálfur fyrir um það, hvernig
rannsóknin skyldi framkvæmd
og hvaða aðferðum beitt við yfir-
heyrslurnar. Við öryggismála-
ráðherra sinn, félaga Ignatiev,
sagði Stalín rétt si svona: „Ef þú
ekki færð fram játningar lækn-
anna, þá gerum við þig höfðinu
styttri." Og Krúséf bætir við á
þessa leið:
Skömmu seinna fengum við í
Pólitíska ráðinu (Politburo)
gerðabækurnar með játningum
læknanna, og lét þá Stalín þessi
orð falla: „Þið eruð blindir eins
og kettlingar; hvað mundi gerast
ef ég væri ekki? Landið mundi
glatast vegna þess að þið vitið
ekki, hvernig á að þekkja óvin-
ina.“
Okkur í Pólitíska ráðinu þótti
málatilbúningur þessi grunsam-
legur og myndi verða erfitt að fá
staðfestingar á sakargiftum. En
til þess kom aldrei, því að heilsa
og líf Stalíns entist ekki nógu
lengi. Þegar við rannsökuðum
málið að Stalín látnum, fundum
við að forsendur þess voru tóm
Eisenhower. — f annað sinn á ein-
um aldarfjórðungi björguðu
Bandaríkin Rússlandi úr höndum
Þjóðverja.
lygi frá upphafi til enda. Lækn-
arnir hafa nú allir verið sýknað-
ir og fengið stöður sínar aftur.
Undir lok ræðunnar tók Krús-
éf enn að átelja þá persónudýrk-
un, sem Stalín hafði ræktað á
sjálfum sér með þjóðinni. Gat
hann þess sérstaklega, að í sept-
ember 1951 hafi Stalín gefið
skipun um að hafa skyldi tiltæk
30 tonn af kopar til að gera úr
minnismerki það, sem reisa átti
um hann í tilefni af opnun skipa-
skurðarins Volga-Don.
Ræðuna endaði Krúséf svo á
þessum orðum: „Lengi lifi hið
sigursæla tákn flokks vors —
Lenínismi!"
(Hávært, langvarandi lófatak,
sem lýkur með hyllingarhrópum.
Allir rísa úr sætum.)
Það sem Krúséf
þagöi um
Það má segja Nikita Krúséf til
lofs, að hann hafi sýnt vissa
hreinskilni og mikinn kjark, að
Ijóstra þannig upp leyndarmál-
um þeirra í Kreml, svo sem hann
gerði á 20. Flokksþinginu. En
ræðunni var þröngur stakkur
skorinn. Megininntak hennar
var harkaleg gagnrýni á réttar-
farið í Sovétríkjunum í stjórnar-
tíð Stalíns og á Stalín sjálfan
fyrir ráðríki og kröfur um að
vera lofsunginn og dýrkaður.
Aftur á móti hefur Krúsjef
sneitt hjá öðrum óþægilegum
staðreyndum, sem ekki var nema
eðlilegt á þessum stað og stundu,
ef honum var nokkuð annt um
stöðu sína og frelsi. Enda hélt
Krúséf stöðu sinni í 8 ár eftir
þetta, en var þá látinn sleppa lif-
andi.
Af þeim „óþægilegu stað-
reyndum", sem Krúséf þagði um,
verða hér aðeins taldar þær
helstu og þá m.a. vitnað í þá
heimild, sem nærtækust er, en
það er áðurnefnd bók eftir B.D.
Wolfe.
Wolfe bendir á að útrýming á
bændum og hreinsanir í flokkn-
um að skipan Stalíns, hafi verið
miklu víðtækari en Krúséf vildi
vera láta. Þannig hafi Stalfn f
viðræðum við Churchill sagst
hafa fargað eða flæmt í burtu 10
milljón jarðeigendur (kúlakka).
Þá hafi Krúséf ekkert minnst á
þær 4 milljón bændafjölskyldur,
sem urðu hungurmorða við til-
komu samyrkjubúanna. Þá er
Wolfe það ljóst og öllum sem
ræðuna lesa, að þar er hvergi
getið um samning þeirra Stalíns
og Hitlers, né heldur meðferð
þeirra á Pólverjum. En við skipt-
ingu Póllands milli þessara ein-
ræðisherra, hafi 1!4 milljón
Pólverja verið fluttar í fanga-
búðir í Síberíu eða öðrum kulda-
beltishéruðum. Þá er heldur ekki
upplýst neitt um morðin í Kat-
yn-skóginum, en þar voru 11
þúsund pólskir liðsforingjar líf-
látnir. Né heldur þegar Stalín
brást flokksbræðrum sínum í
Varsjá sumarið 1944, svo að þeir
féllu í hendur Hitler. Ekki minn-
ist Krúséf neitt á Finnlands-
stríðið né yfirtöku Stalíns á
Eystrasaltsiöndunum.
Það er sérstaklega athyglis-
vert,, að hvorki Krúséf né Wolfe
minnast einu orði á afskipti
Bandaríkjanna af heimsstyrj-
öldinni 1939—1945, en þau réðu
þó úrslitum í þeim hildarleik. Öll
styrjaldarárin höfðu Bandaríkin
sent Sovétríkjunum ógrynni
hergagna og matvæla austur um
íslandshaf til Murmansk. Hinn
16. desember 1944 gerðu Banda-
ríkin síðan innrás á vesturströnd
Frakklands undir yfirstjórn Eis-
enhowers, og þann 7. maí 1945
gáfust Þjóðverjar upp. Þetta var
því í annað sinn á einum aldar-
fjórðungi, að Bandaríkin björg-
uðu Rússlandi úr höndum Þjóð-
verja. En í þetta sinn gekk að-
stoðin við Sovétríkin of langt,
því að nú leyfðist Stalín að taka
sér vald yfir allri Austur-
Evrópu. Og í ræðu sinni lét
Krúséf, sem hann vissi ekkert
um þetta.
Enginn vafi getur leikið á því,
þó ekki sé á lofti haldið, að hefðu
Bandaríkin ekki komið Sovét-
ríkjunum til hjálpar í heims-
styrjöldinni 1939—1945, þá
hefðu Þjóðverjar lagt undir sig
allt landið vestan Úralfjalla, og
Marxistar þar um slóðir hefðu
hlotið sömu örlög og Gyðingarn-
ir í Þýzkalandi. En í staðinn
fyrir að þakka fyrir hjálpina og
fá að halda sínu, þá snerist Stal-
ín gegn fyrri bandamönnum sín-
um á lævíslegan hátt, jafnvel áð-
ur en styrjöldinni var lokið.
Það var á þeim sögufræga
fundi í Yalta, 4,—12. janúar
1945, þar sem mættir voru þeir
Stalín, Churchill og Roosewelt,
að teningnum var kastað. Ein-
hver málamyndaskipting heims-
ins í áhrifasvæði fór þarna fram,
og komu í hlut Stalíns yfir 100
milljónir Evrópubúa. Þarna voru
hlutaðeigandi þjóðir í Austur-
Evrópu settar undir yfirráð Sov-
étríkjanna, án þess að þær væru
spurðar álits.
Og nú gerðust atburðirnir með
miklum hraða. Roosevelt,
Bandaríkjaforseti, lézt 12. apríl
1945, og varaforsetinn, Truman,
tók við af honum. Herir Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna
mættust í Torgau 27. apríl. Hitl-
er stytti sér aldur 30. apríl og
þann 2. maí blakti rauði fáninn
yfir Berlín. í kosningunum í
Bretlandi í júlí 1945 féll Church-
ill forsætisráðherra, og Attle tók
við af honum. Stalín stóð nú einn
uppi af þremenningunum í
Yalta.
Heimurinn vaknaði upp við
vondan draum. Kalda stríðið var
hafið.
Norðlensku fyrirtækin Fjöregg
og Fransman kynna nýjungar
NORÐLENSKU fyrirtækin Fjöregg
og Fransmann kynntu nýja fram-
leiðslu sína fyrir skömmu í Fóst-
bræðraheimilinu í Reykjavík. Þessi
kynning var í tengslum við Iðnsýn-
ingu ’83 en þar sýna þessi fyrirtæki í
sama bás.
Fjöregg kynnti kjúklinga í nýjum
litprentuðum öskjum. Þessir kjúkl-
ingar eru tilbúnir til matreiðslu á
grilli eða í örbylgjuofni og eru sér-
staklega kryddaðir.
Hér er um að ræða
Contry-kryddun upp á amerískan
máta, Froencial-kryddun á fransk-
an máta en Froencial er hérað í
S-Frakklandi og síðan er kryddað
að austurlenskum hætti með
Oriental.
Fransmann kynnti þverskornar
kartöflur sem þeir kalla „skífur" og
verða settar á markað með haust-
inu. Einnig framleiðir Fransmann
venjulegar franskar kartöflur og
svonefndar „Shustring“-kartöflur
sem eru mjórri en hinar venjulegu
frönsku.
Jónas Halldórsson forstjóri Fjöreggs með nýju kjúklingana og Karl Gunnlaugsson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Sval-
barðseyrar, sem rekur Fransmann, en hann heldur á hinum nýju „skífum”.
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands:
Óvissuferð
NÍUNDA laugardagsferð Nátt-
úruverndarfélags Suðvestur-
lands til kynningar á fyrirhug-
uðu Náttúrugripasafni íslands
verður óvissuferð, þ.e. það verð-
ur ekki gefið upp hvert farið
verður fyrr en í byrjun ferðar-
innar. Þessi ferð verður farin í
stað annarrar sem frestað var til
17.—18. september og verður það
ellefta og lokaferð okkar að
þessu sinni. Þátttaka í þessum
laugardagsferðum okkar hefur
verið afargóð og greinilegt er að
mjög almennur áhugi er fyrir
því að stofnun sem veiti almenna
náttúrufræðslu með stórum sýn-
ingarsal, fyrirlestrum, ferðum,
bóka og tímaritakynningu, lit-
skyggnu- og myndbandasýning-
um og leigu o.s.frv., verði sem
allra fyrst komið upp.
leiðsögumaður/menn verða að
sjálfsögðu ekki kynntir fyrr en í
byrjun ferðar.
Farið verður að venju frá
Norræna húsinu kl. 1.30. Verð
150 kr. frítt fyrir börn. Komið
verður til baka um kl. 7.00.