Morgunblaðið - 02.09.1983, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
43
Innflutningur bfla:
Markaðshlutdeild
er sveiflukennd
— Japanskir framleiðendur halda sínu striki
INNFLUTNINGUR bfla eftir fram
leiðslulöndum hefur verið nokkuð
sveiflukenndur það sem af er árinu,
sem sést m.a. á því, að markaðshlut-
deild japanskra bíla á 1. ársfjórð-
ungi var um 48,23%, þegar fluttir
voru inn samtals 749 bflar, en heild-
arinnflutningurinn var 1.553 bflar.
Markaðshlutdeild japanskra
bíla á 2. ársfjórðungi var hins veg-
ar nokkru meiri, eða 57,4%, þegar
inn voru fluttir samtals 1.023 jap-
anskir bílar, en heildarinnflutn-
ingurinn var 1.783 bílar.
Þegar tölurnar fyrir fyrstu sex
mánuðina eru skoðaðar kemur í
ljós, að markaðshlutdeild jap-
anskra bíla er um 53,1%. Inn voru
fluttir samtals 1.722 japanskir bíl-
ar, en heildarinnflutningurinn
fyrstu sex mánuðina var 3.336 bíl-
ar. Þess má geta að markaðshlut-
deild japanskra bíla hér á landi
hefur verið sú mesta um langt
árabil.
Ef litið er á fyrstu sex mánuði
ársins kemur fram, að í 2. sæti eru
vestur-þýskir bílar með um 10,5%
markaðshlutdeild. Inn var fluttur
samtals 351 vestur-þýskur bíll.
Markaðshlutdeild þeirra á 1.
ársfjórðungi var nokkru minni,eða
9,3%, þegar fluttir voru inn sam-
tals 144 bílar frá Vestur-Þýska-
landi. Á 2. ársfjórðungi voru síðan
fluttir inn 207 bílar og markaðs-
hlutdeildin komst upp í um 11,6%.
í 3. sæti eru sænskir bílar.
Fyrstu sex mánuði ársins voru
fluttir inn samtals 338 sænskir
bílar, sem jafngilti um 10,3%
markaðshlutdeild. Á 1. ársfjórð-
ingi var fluttur inn 191 sænskur
bíll, sem jafngilti um 12,3% mark-
aðshlutdeild. Á 2. ársfjórðingi
voru fluttir inn 147 sænskir bílar
og jafngilti það um 8,2% mark-
aðshlutdeild.
I 4. sæti koma síðan sovéskir
bílar. Fyrstu sex mánuði ársins
voru fluttir til landsins alls 267
slíkir bílar, sem jafngilti 8%
markaðshlutdeild. A 1. ársfjórð-
ungi voru fluttir inn 159 bílar frá
Sovétríkjunum, sem jafngilti um
10,2% markaðshlutdeild. Verulega
dró úr innflutningi sovéskra bíla á
2. ársfjórðungi þegar talan var 108
bílar, sem jafngilti um 6% mark-
aðshlutdeild.
Loks má geta þess, að franskir
bílar eru í 5. sæti. Fyrstu sex mán-
uði ársins voru fluttir inn samtals
144 bílar frá Frakklandi, sem
jafngilti um 4,3% markaðshlut-
deild. Á 1. ársfjórðungi var fluttur
inn samtals 61 bíll frá Frakklandi,
sem jafngilti um 3,9% markaðs-
hlutdeild. Á 2. ársfjórðungi voru
bílarnir síðan 83, sem jafngilti um
4,66% markaðshlutdeild.
Ráðstefna OECD um stál:
Ekki aukin eftirspurn
fyrr en á næsta ári
— bandarískir framleiðendur nýta aðeins 55% af framleiðslugetu
EKKI er raunhæft að gera ráð
fyrir frekari aukningu á eftirspurn
eftir stáli á heimsmarkaði fyrr en
á næsta ári, er meginniðurstaða
ráðstefnu OECD, Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu, sem
haldin var á dögunum.
í skýrslu fundarins kemur
fram, að stálframleiðsla á
fyrstu sex mánuðum þessa árs
var um 9% minni, en á sama
tíma í fyrra. Hins vegar var
framleiðslan í ár nokkru meiri,
en á seinni helmingi síðasta árs.
En aðalástæðan fyrir aukinni
framleiðslu á fyrstu sex mánuð-
um þessa árs, er sú uppsveifla,
sem átt hefur sér stað í bíla-
framleiðslu og þá ekki síst í
Bandaríkjunum, þar sem banda-
rískir bílaframleiðendur hafa
tekið mikinn fjörkipp það sem
af er þessu ári.
Bandarískir stálframleiðend-
ur hafa lent harðast úti i þeirri
miklu kreppu, sem staðið hefur
undanfarin misseri. Nokkur
framleiðsluaukning varð hjá
þeim á fyrstu fjórum mánuðum
ársins, en síðan hefur fram-
leiðslan staðið í stað. Eins og
staðan er í dag hjá bandarísku
framleiðendunum er aðeins um
55% af framleiðslugetu þeirra
nýtt, sem segir sína sögu.
Bandarísku framleiðendurnir
hafa ekki notið góðs, nema að
hluta, af hinni auknu fram-
leiðslu í bílaiðnaðinum á þessu
ári, þar sem stöðugt vaxandi
innflutningur á ódýrara stáli
hefur komið til.
1 skýrslunni segir, að fram-
leiðsla á stáli í Japan hafi staðið
í stað fyrstu þrjá mánuði þessa
árs, en síðan hafi heldur rofað
til, bæði hvað varðar fram-
leiðslu fyrir innanlandmarkað
og til útflutnings.
Niðurstaða ráðstefnunnar
hvað varðar EBE-löndin er sú,
að um nokkra framleiðsluaukn-
ingu hafi verið að ræða fyrstu
sex mánuði ársins, sérstaklega
með vaxandi eftirspurn í Bret-
landi og Vestur-Þýzkalandi.
Hins vegar hafi eftirspurnin
farið minnkandi í Frakklandi og
á Ítalíu. Því sé í raun óraunhæft
að gera ráð fyrir umtalsverðri
framleiðsluaukningu á seinni
hluta ársins.
Þá kemur fram, að fram-
leiðsla landa innan OECD á 2.
ársfjórðungi þessa árs hafi verið
um 85,8 milljónir tonna. Fram-
leiðslan var hinsvegar um 78,4
milljónir tonna á 1. ársfjórð-
ungi. En ef litið er til 2. árs-
fjórðungs 1982 þá var fram-
leiðslan um 88,5 milljónir tonna.
ÞESSIR krakkar efndu til hlutaveltu aö Flúðaseli 76, Breiðholtshverfi, til
ágóöa fyrir Kvennaathvarfið hér í Reykjavík og söfnuöu rúmlega 400 krón-
um. — Krakkarnir heita: Margrét Theódórsdóttir, Sara Guömundsdóttir,
Olafur Theódórsson og Þór Theódórsson.
ÞÆR HEITA Harpa Þorláksdóttir, Kristín Eva Þórarinsdóttir og Sesselja
Járvelá og efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra.
— Þær söfnuðu þar alls rúmlega 1.600 krónum, til stuðnings félaginu.
ÞESSAR stöllur efndu til hlutaveltu til ágóöa fyrir SÁÁ og söfnuöu rúmlega
350 krónum. Þær heita Ásta Birna Ragnarsdóttir, Anna Hallsdóttir og Anita
Sigurbergsdóttir.
ÞÆR EIGA heima í Kópavogi þessar ungu dömur og efndu til hlutaveltu til
ágóöa fyrir Styrktarfél. lamaöra og fatlaöra þar í bænum. Þær heita Stefanía
Anna Þórðardóttir, Sigurborg Sveinsdottir og Ásta Katrín Hannesdóttir. Þær
söfnuðu til starfsemi félagsins 420 kr.