Morgunblaðið - 02.09.1983, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
46
• Gunnar Birgisson ÍR
Gunnar undir
2 mín. í 800 m
GUNNAR Birgisson hlaupari
úr ÍR hefur bætzt í hóp þeirra
hlaupara íslenzkra, sem rofið
hafa tveggja mínútna múrinn í
800 metra hlaupi, því á móti í
Hvidovre í Danmörku í fyrri
viku hljóp hann vegalengdina
á 1:59,1 mínútu og sigraði.
Daginn eftir undirstrikaði
Gunnar að hann hefur sigrast á
þessum gamla múr íslenzkra
millilengdahlaupara, því þá
hljóp hann á 1:59,6 mínútum í
Ringsted og sigraði aftur.
fyrra hlaupinu sigraöi Gunnar á
endaspretti en i því síðara
leiddi hann alla leið.
Viggó Þ. Þórisson FH keppti
einnig i Hvidovre og Ringsted,
hljóp á 2:02 og 2:00,7. Á móti í
Tárnby sl. föstudag jafnaði
hann síöan sveinametiö í 800
metrum er hann hljóp á 2:00,1
mínútu og sigraöi. Nú varð
Gunnar annar á 2:00,2. Viggó
átti bezt áöur 2:00,3 frá í fyrra,
og Gunnar 2:00,4 mínútur.
Schrijvers í
markinu gegn
íslendingum
Hinn gamalreyndi mark-
vörður, Piet Schrijvers,
stendur aö öllum líkindum í
marki Hollendinga í Evrópu-
leiknum gegn íslendingum í
Groningen í næstu viku.
Schrijvers er í 14 manna
hópi sem hollenska knatt-
spyrnusambandiö hefur nú til-
kynnt fyrir leikinn. (slendingar
fengu að sjá þennan góð-
kunna markvörö á Laugar-
dalsvellinum fyrr í sumar,
stjörnulið Víkings lék gegn
Stuttgart, og fór ekki milli
mála að hér var toppmaöur á
ferðinni, enda hafði Lárus
Guömundsson, landsliösmið-
herji, á oröi að hann væri ör-
ugglega einn besti, ef ekki
besti markvöröur í Evrópu enn
þann dag í dag.
Nú fær Lárus líklega að
spreyta sig gegn Schrijvers í
Groningen í næstu viu.
Fundur hjá
hjólreiða-
mönnum
Hjólreiöafélag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld kl. 20.00
að Fríkirkjuvegi 11. Dagskrá:
Sýnd veröur kvikmynd frá
Hellukeppninni í fyrra og
rætt um starfsemina í
sumar. Einnig verður talaö
um mótiö sem fram fer á
morgun.
Stjarnan norður
Handknattleikslið Stjörn-
unnar fer norður til Akureyr-
ar um helgina og leikur viö
heimamenn.
Liðið leikur við Þór í kvöld
kl. 20.30 og á morgun viö KA
kl. 14.00. Á sunnudag veröur
svo hraðmót félaganna
þriggja.
Veröur kallað á Búbba
— i landsleikinn gegn
EKKI veröur hægt að tilkynna fyrr
en í dag hvernig landsliöshópur-
inn fyrir leikinn gegn Hollandi í
Groningen næsta miðvikudag
verður skipaður.
Jóhannes Atlason, landsliös-
þjálfari, á nú í nokkrum erfiöleikum
meö aö koma saman liöi, þar sem
enn er óljóst um nokkra atvinnu-
mennina og einnig eiga nokkrir
þeirra sem leika hér heima viö
meiðsli aö stríða.
Nú er öruggt aö Lárus Guö-
mundsson getur komið í leikinn,
og einnig koma Ásgeir, Pétur og
Atli frá Þýskalandi. Ekki er öruggt
meö fleiri atvinnumenn — þar sem
t.d. liö Péturs Péturssonar og Arn-
órs hafa enn ekki viljaö gefa
ákveöiö svar.
Af þeim leikmönnum sem leika
hér heima verða þeir Siguröur Lár-
usson, Jón Gunnar Bergs og Ólaf-
ur Björnsson ekki meö. Siguröur
er meiddur, Jón Gunnar er í próf-
um og Ólafur á viö meiösli i auga
aö stríöa. Þaö er þvi Ijóst aö erfitt
gæti oröiö aö fylla í stööur miö-
varöa — þar sem þessir þrír leik-
menn fara ekki meö. Því vaknar sú
spurning hvort nú veröi kallaö á
Jóhannes Eövaldsson, fyrrum
landsliösfyrirliöa, frá Skotlandi,
þar sem hann leikur meö Mother-
well. Jóhannes Atlason vildi ekki
svara þeirri spurningu í gærkvöldi
hvort svo yröi, sagöi aö þaö yröi
bara aö koma í Ijós í dag, en neit-
Hópferð Vals
VALSARAR fara hópferð til ísa-
fjaröar í fyrramáliö til aö fylgjast
með leik IBÍ og Vals í 1. deildinni
í fótbolta.
Farið verður frá Flugleiöum kl.
10.00 og eru sætapantanir hjá
Flugleiðum.
Blóðtaka fyrir íslandsmeistara Vals:
Hollandi í næstu viku?
aöi því ekki aö svo gæti fariö aö
hann yröi aö nota gamalreynda
landsliðskappa, sem ekki hafa
leikiö undanfariö.
Morgunblaöiö hefur þaö fyrir
satt aö Siguröur Halldórsson,
Skagamaöur, fari aö öllum líkind-
um til Hollands, og einnig þeir
Bjarni Sigurösson, markvöröur, og
Sveinbjörn Hákonarson.
Landsliöiö skipaö leikmönnum
21 ára og yngri leikur daginn áöur
viö Hollendinga, og hefur valiö á
þeim hópi heldur ekki veriö til-
kynnt. Skv. heimildum Morgun-
blaösins munu Skagamennirnir
Siguröur Jónsson og Guöjón
Þóröarson leika meö yngra liöinu,
Guöjón þá sem annar tveggja sem
mega vera eldri.
— SH.
• Jóhannes Eðvaldsson í lands
leik.
Magnea og Sigrún
leika í Noregi
ÞAÐ ER NÚ frágengið að lands-
liðsstúlkurnar í handknattleikn-
um, Magnea Friðriksdóttir og
Sigrún Bergmundsdóttir úr Val,
leiki með norska liöinu Gjerpen í
1. deild í vetur.
Stúlkurnar hafa dvalist í Noregi í
sumar og var Sigrún ákveöin í aö
leika þar í vetur. Magnea ákvaö
þaö svo nú nýverið aö vera þar
einnig og hefur HSl nýlega gefiö
leyfi fyrir því.
Magnea Friöriksdóttir
Kielarliðið sterkt
THW Kiel, lið Jóhanns Inga
Gunnarssonar í Þýskalandi, geröi
góða æfingaferð til Danmerkur á
dögunum.
Liöið lék þar ellefu leiki gegn öll-
um bestu félagsliöum Danmerkur
og síöan gegn landsliöinu. Kiel
sigraöi í tíu leikjanna og geröi eitt
jafntefli. Einn daginn lék liöiö þrjá
leiki, alla í fullri lengd, og sá síöasti
var gegn landsliöinu. Sigraöi Kiel
örugglega, 20—16. Voru Danir
meö alla sína bestu menn sem
léku á síöustu Ólympíuleikum og
er greinilegt aö Kielarliöiö er vel
undirbúið undir veturinn í Bundes-
ligunni.
— SH.
Þaö verður mikil blóötaka fyrir
Val aö missa þessar stúlkur, en
þær voru tvær af sterkustu leik-
mönnum liösins á síöasta keppn-
istímabili er liðiö tryggöi sér ís-
íandsmeistaratitilinn.
Norska blaðiö Aftenposten
skýröi frá því á dögunum, aö ís-
lensku stúlkurnar muni örugglega
setja svip sinn á deildarkeppnina í
vetur, og var fyrirsögn greinarinnar
er fjallaö var um félagaskipti t Nor-
egi reyndar: „í ár eru islendingar
meö ... “. Segir blaöið aö Gjerp-
en hafi staöiö sig mjög vel í sumar
— liöiö hafi unniö nokkrar sterkar
„túrneringar", nú síöast hafi liöiö
sigrað í alþjóöakeppni í Dan-
mörku. Búist er viö liöinu sterku í
vetur.
— SH.
Lalli með
glæsimark
Lárus Guðmundsson var í
míklum ham í fyrrakvöld er Wat-
erschei sigraði Kortríjk 3—0 í
belgísklu deildinni og skoraöi
hann tvö mörk.
Fyrra markið var stórglæsilegt
— þrumuskot, vel utan teigs, sigldi
efst í markhorniö. Þaö er ánægju-
legt aö íslensku landsliösmennirnir
erlendis standa sig vel um þessar
mundir — en Pétur Pétursson lék
einnig vel í fyrrakvöld, eins og viö
sögöum frá í gær. Þá átti Ásgeir
Sigurvinsson stórleik meö Stutt-
gart í fyrrakvöld.
Norðurlandsmótið í golfi;
Mjög spennandi keppni
Héöinn Gunnarsson varð um
síöustu helgi Noröurlandsmeist-
ari í golfi, er hann sigraði í því
móti á Jaöarsvellinum á Akureyri.
MorgunblaeW/Kri*t)án Arngrimsson.
• Hóðinn Gunnarsson slær hér inn á níunda grín í Norðurlandsmótinu
á Akureyri. Magnús Birgisson fylgist með, lengst til vinstri.
Um 70 kylfingar mættu á mótiö,
frá Akureyri, Húsavík, Ólafsfirði og
Sauöárkróki. Spenna var mikil í
karlaflokki. Héöinn og Magnús
Birgisson voru efstir og jafnir eftir
fyrri daginn, og er niu holur voru
eftir síöari daginn voru hvorki fleiri
né færri en fimm kappar jafnir —
höföu allir notaö 119 högg.
Er hér var komiö sögu komst
Héðinn í mikiö stuö og lék síöustu
níu holurnar á 34 höggum, einu
höggi undir pari, og tryggöi sér
Noröurlandsmeistaratitilinn.
Úrslitin í flokkunum uröu sem
hér segir:
Karlar: Án forgjafar: Héðinn Gunnarsson GA 153
Magnús Birgisson GA 157
Kristján Hjálmarsson GA 158
Meö forgjöf: Héöinn Gunnarsson GA 141
Skarphéöinn Ómarsson GH 141
Sverrir Valgarösson GSS 145
Konur:
Án forgjafar:
Jónína Pálsdóttir GA
Inga Magnúsdóttir GA
Auöur Aöalsteinsd. GA
Meö forgjöf:
Jónína Pálsdóttir GA
Inga Magnúsdóttir GA
Auöur Aöalsteinsd. GA
Unglingar:
Án forgjafar:
Ólafur Gylfason GA
Ólafur Sæmundsson GA
Ólafur Þorbergsson GA
Meö forgjöf:
Ólafur Gylfason GA
Ólafur Sæmundsson GA
Brynjar Bragason GA
178
184
214
144
158
160
165
171
172
143
145
145
iþróttlr eru
einnig á bls.
45 í dag