Morgunblaðið - 02.09.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
47
Mikilvægur
Blikasigur
Blikastúlkurnar stigu stórt skref að
íslandsmeistaratitli í knattspyrnunni í
gærkvöldi er þær sigruöu ÍA 3:2 {
Kópavogi. Sigurmarkið gerði Bryndís
Einarsdóttir úr vítaspyrnu skömmu
fyrir leikslok.
Leikurinn var jafn og spennandi.
Staðan í leikhléi var 1:1, og í þeim síöari
tóku Skagastúlkurnar svo foyrstu 2:1.
En Blikarnir náöu aö skora tvö mörk
áöur en yfir lauk og sigra. Laufey Sig-
uröardóttir skoraöi bæöi mörkin fyrir
ÍA, en Bryndís Einarsdóttir geröi tvö
fyrir UBK og Ásta B. Gunnlaugsdóttir
eitt. Annaö mark Bryndísar var úr víta-
spyrnu.
Á Víkingsvellinum sigraði heimaliöiö
Víöi, Garöi, 2:0. Bæði mörkin komu eftir
þrumuskot Dýrleifar, markvöröurinn
hélt boltanum í hvorugt skiptiö, þó hon-
um tækist aö verja, og framherjar Vík-
ings náöu boltanum í bæöi skiptin og
skoruöu, fyrst Helga Bragadóttir og svo
Jóna Bjarnadóttir. Leikurinn hófst allt of
seint, eins og því miöur vill alltof oft
henda í kvennaknattspyrnunni. Hann
átti að hefjast klukkan 18.30 en hófst
ekki fyrr en laust fyrir kl. 20.00. Settur
haföi veriö á leikur í fjóröa flokki í
haustmóti kl. 18.00 og uröu stúlkurnar
aö gjöra svo vel aö bíöa. Þess má geta
aö einnig þurfti aö bíöa eftir dómara.
— SH.
• Laufey Sigurðardóttir fagnar hér síðara marki sínu í gærkvöldi. Skagastúlkurnar náöu þá
forystu 2:1, en uröu aö sætta sig við tap er upp var staðið. Það er Karitas Jónsdóttir,
tvíburasystir Siguröar Jónssonar, knattspyrnukappa af Skaganum, sem fagnar markinu meö
Laufeyju. Morgunblaðið/Friöþiófur.
Framarar komnir á toppinn
Tveir leikir
í kvöld
TVEIR leikir eru á dagskrá í
knattspyrnunni í kvöld. í 1. deild
leika UBK og Þróttur í Kópavogi
og hefst sá leikur kl. 18.30. Á Ak-
ureyri leika svo KA og Einherji í 2.
deild og hefst hann á sama tíma.
Schuster
framlengdi
samninginn
um fimm ár
VESTUR-ÞÝSKI knattspyrnu-
kappinn Bernd Schuster fram-
lengdi í gær samning sinn viö
spánska félagið Barcelona til
fimm ára.
Ekki voru neinar tölur nefndar í
sambandi viö þennan samning, en
víst er aö ekki hafa veriö neinir
smáaurar á feröinni. Haft^var eftir
spánskum heimildarmönnum aö
hann hafi fengið fyrir þennan
samning eitthvaö á milli þeirra
tveggja upphæöa, sem áöur haföi
veriö rætt um, þ.e.a.s. þeirra tæp-
lega fjörtíu milljóna ísl. kr. sem
hann haföi farið fram á, og rúm-
lega tuttugu og átta milljóna ísl. kr.
sem félagiö haföi boðiö.
Ekki voru gefnar neinar yfirlýs-
ingar um nánari tölur aö þessu
sinni.
FRAMARAR komust á topp 2.
deildar í knattspyrnu er þeir sigr-
uðu Njarðvíkinga 3:0 á Laugar-
dalsvellinum. Eru þeir nú meö
einu stigi meira en KA þegar
bæöi lið eiga tvo leiki eftir.
Þaö var Steinn Guöjónsson sem
kom Frömurum á sporiö er hann
skoraöi fyrsta mark þeirra á 23.
mín. meö fallegum skalla. Steinn
var svo aftur á feröinni tíu mín.
síöar er hann komst einn inn fyrir
vörn UMFN og var felldur. Víta-
spyrna var dæmd og úr henni
skoraöi Hafþór Sveinjónsson af
öryggi.
Leikurinn var fjörugur og náöu
bæöi liö aö sýna ágætis takta. f
upphafi seinni hálfleiksins átti
Sverrir Einarsson, Framari,
þrumuskot í samskeytin og seinna
í leiknum skaut Kristinn Jónsson í
þverslá Njarövikurmarksins. Suö-
urnesjamenn voru því heppnir aö
fá ekki á sig fleiri mörk, en á 78.
mín. gulltryggöi Guömundur Torfa-
son sigurinn meö skallamarki af
stuttu færi eftir fyrirgjöf Hafþórs úr
aukaspyrnu.
Njarövíngar voru klaufar aö
skora a.m.k. ekki eitt mark. Seint í
leiknum fengu þeir mjög gott færi,
mikil þvaga myndaöist í teignum,
en sóknin endaöi meö þvi aö bolt-
anum var þrumaö yfir markiö.
Eins og áöur sagöi var leikurinn
fjörugur, bæöi liö reyndu aö spila
netta knattspyrnu og tókst þaö
nokkuö vel. Aöstæöur voru líka
hinar ákjósanlegustu, gott veöur
og góöur völlur.
Staðan
Fram 16 8 6 2 28- -17 22
KA 16 8 5 3 26- -18 21
FH 15 6 6 3 24- -16 18
Víðir 16 6 6 4 12- -10 18
UMFN 17 7 3 7 17- -16 17
Einherji 16 5 7 4 14- -15 17
Völsungur 16 6 3 7 15- -15 15
KS 16 3 7 6 14—18 13
Fylkir 16 3 4 9 13- -22 10
Reynir 16 1 7 8 8- -24 9
Fredheim Pepp-
meier látinn
Fredheim Peppmeier, aðal-
framkvæmdastjóri Alþjóöa hand-
knattleikssambandsins, lést í
gær úr hjartaslagi, 54 ára gamall.
Peppmeier haföi unniö mikið og
gott starf fyrir alþjóða sambandiö
og rak það með miklum skör-
ungsskap og dugnaöi. Áöur en
hann tók viö þessu starfi var hann
framkvæmdastjóri vestur-þýska
handknattleikssambandsins, og
I var hann vel þekktur hér á landi.
Bætti 35 ára met Hauks
ÞORVALDUR Þórsson grinda-
hlaupari úr ÍR setti nýtt íslands-
met í 200 metra grindahlaupi á
innanfélagsmóti ÍR-inga í Laugar-
dalnum í fyrradag, hljóp á 23,8
sekúndum. Hefur Þorvaldur þá
sett um tug íslandsmeta í 110,
200 og 400 metra grindahlaupum
í sumar, sem er frábær frammi-
staða.
Eldra metið áttu Stefán Hall-
grímsson KR og Hjörtur Gíslason
KR, 24,2 sekúndur, en þeir settu
metiö í sama hlaupi í fyrrahaust og
slógu þá viö 31 árs gömlu meti
Arnar Clausen ÍR, en met Arnar
var 24,4 sekúndur frá 1951.
j hlaupinu í fyrrakvöld setti Stef-
án Þór Stefánsson ÍR nýtt ungl-
ingamet á þessari vegalengd, hljóp
á 25,0 sekúndum, en gamla metiö
var frá 1948 og því oröið 35 ára
gamalt. Þaö var 25,4 sekúndur og
í eigu Hauks Clausen ÍR, sem var
afburða spretthlaupari á sínum
tíma og er enn á íslenzku meta-
skránni í nokkrum greinum.
Ugglaust getur Stefán Þór
meira, því hann hljóp fyrir skömmu
á 24,3 sekúndum í Kaupmanna-
höfn, en þá var meðvindur örlítiö
yfir leyfilegum mörkum.— ágás.
Snjallir
Skaga-
strákar
LIÐ FRÁ KA, Þór, Völsungi,
Tindastóli og ÍA tóku þátt í
miklu sex flokka móti á Akur-
eyri á dögunum. Mótið, sem
einkenndist af leikgleöi og
spennu, var liöur í samstarfi
Eimskips og KSÍ um aö efla
knattspyrnustarf og áhuga í
landinu.
Liö Akraness sigraöi á mótinu
og vann alla sína leiki. i ööru sæti
varö lið KA og Þór í því þriöja. í
mótslok afhenti Björn Kjaran,
skipstjóri hjá Eimskip, sigurliöinu
Skipstjórabikarinn og auk þess
fengu leikmenn efstu liðanna
verðlaunapeninga. Þá fengu tveir
leikmenn viöurkenningu: Arnar
Gunnlaugsson, sem var marka-
hæsti maður mótsins, og Bjarki
Gunnlaugsson, sem var valinn
besti lelkmaöur mótsins. Svo
skemmtilega vill til aö þeir eru
tvíburar og leika meö liöi Skaga-
manna.
Skagaliöiö má sjá á myndinni
hér aö neöan, en til hliöar tekur
Bjarki viö viöurkenningu sinni
sem besti maður mótsins.