Morgunblaðið - 02.09.1983, Síða 48
fgtomtmMatiiti
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
Alda um-
ferðarslysa
ÞRETTÁN ára stúlka varð fyrir
bifreið á Hofsvallagötu um klukk-
an 18.30 í gær.
Hún hjólaði suður Hofsvalla-
götuna og hugðist beygja til
vinstri inn á Melhaga þegar hún
varð fyrir bifreið. Hún var flutt í
slysadeild en meiðsli hennar eru
ekki talin alvarleg.
Alda umferðarslysa reið yfir í
gær og voru sex manns fluttir í
slysadeild.
Sjá frétt bls. 3.
Morgunblaðið/Júlíus.
JL
Jr
Morgunblaðið/Friðþjófur.
Marsbúi í Reykjavík? Nei, reyndar ekki, en ef lesendur fletta
upp á blaðsíðu 26 í blaðinu í dag er skýringuna þar að finna.
Atvinnuleysi er yfir-
vofandi hjá læknum
„ÉG HELD að það sé óhætt að segja
að það sé offramboð af læknum á
íslandi, að minnsta kosti í sumum
greinum. Mér er þó ekki kunnugt um
að læknar gangi atvinnulausir á land-
inu enn sem komið er, en það er Ijóst
að erlendis starfa margir íslenskir
læknar sem vafalítið kæmu heim ef
stöður byðust. Og það er enginn vafi
á því að það er yfirvofandi hætta á
atvinnuleysi í stéttinni í náinni fram-
tíð,“ sagði prófessor Jónas Hall-
grímsson, forseti læknadeildar Há-
skóla íslands, þegar Mbl. innti hann
eftir atvinnuhorfum lækna, sérstak-
lega með tilliti til hins mikla fjölda
stúdenta, sem innritar sig árlega í
læknisfræði við háskólann.
Nú í ár hefja 137 stúdentar nám
á fyrsta ári i læknisfræði, og sagð-
ist Jónas búast við að sú tala hækk-
aði, vegna þess að niðurstaða
haustprófa fyrsta árs nemenda frá
í fyrra lægi ekki fyrir ennþá. Jónas
sagði að þetta væri svipaður fjöldi
og í fyrra, en þessi tala segði ekki
alla söguna um atvinnuhorfur
lækna nú um stundir, heldur skipti
meira máli að frá árínu 1973 hefðu
um 40 læknar útskrifast árlega úr
læknadeild háskólans. Á árunum
þar á undan var þessi tala helmingi
lægri. Jónas sagði að margt af
þessu fólki sem útskrifast hefur á
sl. 10 árum hefði farið í sérnám til
útlanda, hefði jafnvel starfað úti í
Um 15 tonn af frystum laxi frá ÍSNO til Þýzkalands:
Verðmæti farmsins
um 3 milljónir króna
808 læknar hafa
nú læknisleyfi
hér á landi
nokkur ár, en væri nú að huga að
því að snúa aftur heim.
Jónas var spurður hvað væri til
ráða; hvort til greina kæmi að
lækka tölu nemenda sem hleypt er
upp á annað ár, en nú komast 36
áfram. Jónas sagði að það væri
pólitísk ákvörðun sem læknadeild-
in gæti ekki skipt sér af. Talan 36
væri miðuð við það hve læknadeild-
in gæti annað í kennslu.
Þess má geta á íslandi útskrifast
hlutfallslega töluvert fleiri læknar
árlega en í hinum Norðurlöndun-
um, en þó er þvf spáð að um 10
þúsund læknar verði atvinnulausir
á Norðurlöndunum árið 1990.
í dag hafa 808 læknar lækninga-
leyfi á íslandi. Þar af eru 399 bú-
settir í Reykjavík, 168 búsettir
utan Reykjavíkur og 241 eru við
framhaldsnám eða bráðabirgða-
störf erlendis. Læknakandídatar,
sem eiga ófengið lækningaleyfi eru
105.
Setti í þann stóra
Bandaríkjamaðurinn Art Carter
veiddi myndarlegan hæng við Tjarn-
arhólmann í Laxá í Aðaldal 13. ágúst
síðastliðinn. Laxinn reyndist 25
pund er á þurrt kom, einn af þremur
stærstu löxum sumarsins eftir því
sem Mbl. kemst næst. Carter veiddi
laxinn á flugu, Black Doctor númer
6, og stóð viðureignin í um hálfa
klukkustund. Ekki langur tími mið-
að við stærð laxins, en á ýmsu gekk
samt sem áður og veiðimaðurinn
mátti elta laxinn óravegalengd niður
með ánni og taka á sig mikla króka
meðan laxinn rann viðstöðulaust
niður allar flúðir.
Lax þessi er sá stærsti sem á
land hefur komið i Laxá i sumar.
Þar hefur laxinn verið með
minnsta móti i sumar, en það fór
aldrei svo að það næðist ekki nema
eins og eitt svona tröll. Annar
mun stærri slapp í Kirkjuhólma-
kvíslinni um svipað leyti og enn
einn í 30 punda klassanum reif sig
lausan á sama veiðistað fyrr um
sumarið og hafði heila flugulínu
með sér. Lax Carters var allleginn
og líklega ívið þyngri er hann gekk
í ána nýrunninn og spengilegur.
Senn líður að lokum laxveiði-
tímans og fyrirsjáanlegt að lax-
veiðin í heild verði miklu betri en
síðasta sumar. Gloppur hafa þó
verið, norðaustanlands og austan
hefur verið afar léleg veiði, annars
staðar hefur yfirleitt ekki vantað
laxinn.
Sjá „Eru þeir að fá’ann?"
blaðslðu 24.
FYRIR aðalfund Stéttarsambands bænda sem nú stendur yflr á
Reykjum í Hrútafirði var lögð ályktun frá stjórn Sambands garð-
yrkjubænda, sem gerir ráð fyrir breyttri uppbyggingu Stéttarsam-
bandsins, þannig að sérbúgreinasamböndin svokölluðu fái beina
aðild að sambandinu. Kristján Benediktsson formaður Sambands
garðyrkjubænda sagði í samtali við Mbl. að hann teldi að Stéttar-
sambandið myndi í framtíöinni verða heildarsamtök búgreinasam-
banda.
Sérbúgreinasamböndin svoköll-
uðu eru Samband garðyrkju-
bænda, Landssamband kartöflu-
bænda, Samband eggjaframleið-
enda, Svínaræktarfélag íslands,
Félag ferðaþjónustubænda, Sam-
band ísl. loðdýraræktenda, Hags-
munafélag hrossabænda, Félag
kjúklingaframleiðenda og Lands-
samband veiðifélaga. Væntanlega
yrðu þá stofnuð sérstök sambönd
sauðfjárræktenda og mjólkur-
framleiðenda.
Fjöldi annarra tillagna var
lagður fyrir fundinn, m.a. um
verðlagsmál, framleiðslumál og
félagsmál bænda.
Sjá: „Ástandið víða betra,
ef bændur stæðu almennt
rétt að verki“
— segir Eyjólfur Konráð Jónsson
ÞESSA dagana er vcrið að slátra um
15 tonnum af laxi í laxeldisstöð
fyrirtækisins ÍSNO í Þingeyjarsýslu,
að sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
eins eiganda fyrirtækisins, en fisk-
urinn verður síðan frystur og seldur
til Vestur-Þýzkalands.
Eyjólfur Konráð sagði um að
ræða stórfisk, sem væri á bilinu
15—30 pund, en hann var kreistur
Aðalfundur Stéttarsambands bænda:
Garðyrkjubænd-
ur æskja aðildar
í desember sl. „Þetta er mjög góð-
ur fiskur og því fáum við gott verð
fyrir hann. Væntanlega verður
það í námunda við 200 krónur
fyrir kílóið, eða um 3 milljónir
króna fyrir farminn."
Eyjólfur Konráð sagði aðspurð-
ur að starfsemi fyrirtækisins
gengi mjög vel og væri stefnt að
því að slátra um 150 tonnum í vet-
ur, sem væri að verðmæti miðað
við umrætt verð um 30 milljónir
króna. „Slátrunin fer væntanlega
fram um miðjan vetur og við
reiknum með að geta selt fiskinn á
Ameríkumarkað, en við höfum
þegar hafið markaðsstarfsemi þar
og gerum ráð fyrir að fá gott verð
fyrir afurðirnar," sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson að síðustu.
Kalt um
EKKI ber á öðru en að haustið sé að
hefja innreið sína. f fyrrinótt fór hita-
stig niður í 1 gráðu á þremur stöðum á
landinu, á Hveravöllum, Grímsstöð-
um og Hellu. Þá snjóaði á Norðaust-
ur- og Austurlandi, en snjórinn hvarf
þegar líða tók á gærdaginn og fjall-
vegir s.s. yfir Fjarðarheiði og
helgina
Oddsskarð voru ruddir þannig að eng-
in hætta væri á hálku.
Um helgina verður frekar kalt á
landinu öllu, að sögn veðurfræð-
inga, og má búast við skúrum annað
veifið. Á sunnudag verður væntan-
lega rigning á Suður- og Austur-
landi, en öllu betra tíðarfar fyrir
vestan.