Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 1
60 SÍÐUR 209. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Líbanon: Orrustuvélum beitt til varnar Beirut, 13. september. AP. RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, hefur ákveðið, að yfirmönnum banda- ríska gæsluliðsins verði í sjálfsvald sett hvort þeir kveðja til orrustuþotur þegar á það er ráðist og óttast margir, að sú ákvörðun kunni að flækja Bandaríkjamenn enn frekar í átökin í Líbanon en orðið er. Vegna þessa hafa Sýrlendingar varað við nýju Víetnam í Líbanon og segjast munu auka stuðninginn við bandamenn sína í Líbanon. Reagan, Bandaríkjaforseti, hef- ur ákveðið, að yfirmenn banda- ríska gæsluliðsins í Beirut geti beðið um aðstoð orrustuflugvéla frá flugmóðurskipi undan strönd- inni ef þeir telja það nauðsynlegt í varnarskyni. Fréttastofa í einka- eigu í Beirut, sem þykir hafa góða heimildamenn innan líbönsku rík- isstjórnarinnar, sagði í dag, að auk þessa hefði Reagan heitið Amin Gemayel, forseta Líbanons, að koma líbanska hernum til hjálpar með orrustuflugvélum og fallbyssum herskipanna ef Sýr- lendingar og drúsar gera sig lík- lega til að þrengja að Beirut. Farouk Chareh, utanríkisráð- herra Sýrlands, sagði á blaða- mannafundi í Damaskus í dag, að Bandaríkjamenn stefndu að aukn- um hernaðarátökum í Líbanon og varaði þá við og sagði, að þannig hefði hafist íhlutun þeirra í Víet- nam. Kvað Farouk Sýrlendinga mundu verja stöðvar sínar og efla stuðninginn við andstæðinga Líb- anonsstjórnar, sem hann sagði mikilvæga sýrlenskum öryggis- hagsmunum. Líbanski herinn á nú í höggi við drúsa og margar aðrar sveitir vinstrimanna í fjöllunum suðaust- ur af Beirut. Er einkum barist um þorpið Souk El-Gharb, sem er á hernaðarlega mjög mikilvægum stað. Ef drúsum tekst að ná því er Beirutborg umkringd á alla vegu af fjandmönnum ríkisstjórnarinn- ar og skjólstæðingum Sýrlend- inga. NEI, NEI. Fulltrúi Sovétmanna í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna, Oleg A. Troyanovsky, beitti á mánudag neitunarvaldi þegar til atkvæða- greiðslu kom ályktun, þar sem harmað var, að Sovétmenn skyldu hafa skotið niður suður-kóreönsku farþegaflugvélina með 269 manns innanborðs. Sovétmenn eiga einn af fimm fastafulltrúum í öryggisráðinu og geta beitt neitunarvaldi gegn ályktunum þess. Sjá ennfremur frétt á bls. 16. Bannað að berja fólk New York, 13. september. AP. BORGARSTJÓRNIN í New York ákvað í gær, að hér eftir skuli leigubílstjórar þar í borg vera ódrukknir við akstur, kurteisir og ekki mjög illa til fara. Þeim verður líka gert að lemja ekki fólk og far- þegarnir eiga að ráða því á hvaða útvarpsstöð er hlustað. „Þetta er liður í tilraunum okkar til að endurskipuleggja reksturinn og hressa dálítið upp orðstír þeirra, sem atvinnugrein- ina stunda," sagði Jack Lusk, ráðgjafi borgarstjórnarinnar í þessum málum, en eitt megin- atriðið er, að „leigubílstjóri má ekki beita farþega líkamlegu ofbeldi" og svo að auki á hann að gefa rétt til baka. Þessa nýbreytni má rekja til þess, að árið 1982 var skipuð nefnd til að kanna ástandiö í leigubílaakstri í New York. Rannsóknin stóð í eitt ár en löngu áður var þó nefndar- mönnum orðið það ljóst, að sá, sem hætti á að taka leigubíl í New York-borg „gerði það bara uppá sína“. Ný stjórn íIsrael Jerúsalem, 13. september. AP. YITZHAK Shamir, utanríkisráðherra, hefur myndað nýja meirihlutastjórn í Israel og styðja hana fimm af þeim sex flokkum, sem stóðu að stjórn Beg- ins. Samkomulagið um stjórnar- mynduniha tókst í gær, mánudag, og hafa flokkarnir fimm 62 menn á þingi af 120 og njóta auk þess stuðnings tveggja þingmanna Tel- em-flokksins. Menachem Begin, forsætisráð- herra, ákvað fyrir tveimur vikum að segja af sér en kvaðst mundu bíða með að afhenda forseta af- sögnina þar til eftirmaður hans fyndist. Yitzhak Shamir, utanríkisráðherra, lætur hér ganga til undirritunar sáttmála hinnar nýju samsteypustjórnar í ísrael. Það er Avraham Shapira, einn leiðtoga samstarfsflokkanna, sem við því tekur, en á hina hönd Shamir er David Levy, aðstoðarforsætisráðherra. AP. Sovéskir listamenn vilja ekki snúa heim London, Keneyjum, Madrid, 13. september. AP. SOVÉSKA leikstjóranum Yuri Lyubimov hefur verið veitt dvalarleyfi í Bretlandi um stundarsakir að því er talsmaður innanríkisráðuneytisins tilkynnti í dag. í gær sögðu spænsk stjórnvöld, að sovéskur píanóleikari hefði beðist hælis þar í landi og í dag greindi lögreglan í Feneyjum frá því, að sovéskur blaðamaður, sem þar var staddur, hefði ekki mætt á flugvöllinn þegar halda átti til Sovétríkjanna. Yuri Lyubimov hefur ásamt framinn og refsingin mun fylgja. fjölskyldu sinni verið í Bretlandi síðustu sjö vikurnar þar sem hann hefur stjórnað leikritsgerð sinni á „Glæp og refsingu" eftir Dostóévskí. Hann hefur verið ómyrkur í máli um aðstæður listamanna í Sovétríkjunum og í viðtali við BBC í kvöld sagði hann, að „undirsáti“ í sovéska sendiráðinu hefði komið til sín og sagt: „Glæpurinn hefur verið Við munum ná til þín.“ Er Lyub- imovs nú vel gætt af bresku lög- reglunni. Lyubimov er þekktastur fyrir störf sín við Taganka-leikhúsið í Moskvu, sem einkum er sótt af menntamönnum og ungu fó!ki; en þar hafa oft verið sett á svið verk, sem eru á mörkum þess leyfilega í Sovétríkjunum. Hann hefur því ekki ósjaldan átt í nokkrum útistöðum við stjórn- völd. Breska blaðið The Daily Telegraph segir í dag, að hafi Lyubimov ákveðið að yfirgefa ættjörðina muni það hafa næst- um því jafn miklar afleiðingar fyrir sovéskt menningarlíf og þegar ballettdansarinn Rudolf Nureyev flúði. Stjórnvöld á Spáni skýrðu frá því í gær, að Alexander Toradze, 24 ára gamall sonur georgíska tónskáldsins David Toradze, hefði ’beoiö þar h.ælis. Hann hafði verið á ferðalagi með sin- fóníuhljómsveit sovéska ríkis- útvarpsins þegar hann lét sig hverfa 25. ágúst sl. Tveimur dög- um síðar stytti hljómsveitar- stjórinn, Boris Korsakov, sér aldur í hótelherbergi sínu í Gij- on. Hann er sagður hafa þjáðst af þunglyndi. Toradze er af mörgum talinn einhver efni- legasti píanóleikari nú á dögum. Sovéskur blaðamaður, sem var á kvikmyndahátíðinni í Feneyj- um ásamt nokkrum löndum sín- um, mætti ekki þegar hópurinn hélt aftur til Sovétríkjanna að því er lögreglan sagði í dag. Ekki er vitað hvar hann er niðurkom- inn e.n þó búist við, að hann muni brátt láta til sín heyra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.