Morgunblaðið - 14.09.1983, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.09.1983, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 Sumar í september Morgunhladið/Bjorn (•uðmundsNon. Bændur um allt land keppast þessa dagana við að Ijúka sumarstörfum og ekki er seinna vænna að koma heyjum í hlöðu, því fé er þegar farið að koma af fjalli og haustannir eru á næsta leiti. I>essi sumarlega septembermynd er tekin við bæinn Bug í Fróðárhreppi fyrir nokkrum dögum. Taugadeild Fjórðungssjukrahússins á Akureyri: Lokuð vegna deilna og sjúklingar útskrifaðir Tiliögu um breytingu á skipulagi BÚR vísað til borgarstjórnar: Framkvæmdastjórum BÚR verði sagt upp BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sín- um í gær, þriðjudag, að vísa til borgar- stjórnar tillögu um breytingu á skipu- lagi á stjórn Bæjarútgerðar Reykjavík- ur. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, lagði fram tillöguna á fund- inum, en í henni felst meðal annars að framkvæmdastjórum fyrirtækisins verði sagt upp störfum. Tillaga borgarstjóra er í sam- ræmi við samþykkt útgerðarráðs frá því í maí sl. og er svohljóðandi: „Borgarráð samþykkir að breyta skipulagi í stjórnun Bæjarútgerðar Reykjavíkur í samræmi við tillögur ráðgjafarfyrirtækisins Hagvangs, frá í apríl sl., og samþykkt útgerð- arráðs frá, 4. maí sl. Jafnframt felur borgarráð borg- arstjóra að segja framkvæmdastjór- um fyrirtækisins upp störfum með tilskildum uppsagnarfresti, þar eð stöður þeirra eru lagðar niður með hinu nýja skipulagi. Einnig verði hið breytta starf framkvæmdastjóra auglýst laust til umsóknar. Borgarstjóra er einnig falið að annast í samráði við útgerðarráð og framkvæmdastjóra þær tilfærslur varðandi önnur störf og ráðningar, sem af hinu nýja skipulagi leiða." Þessi tillaga verður tekin fyrir fyrir á næsta borgarstjórnarfundi, sem verður á morgun, fimmtudag. w Aætlanir um loðnu- veiði verða að bíða — segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur „VIÐ hafrannsóknamenn getum enn ekki gert neinar áætlanir eða spár um ákveðinn afla af loðnu á þessu ári. Það hefur ekki tekizt að mæla stofnstærð væntanlegrar hrygningarloðnu. Það verður að bíða þar til í október,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur, er Morgunblaðið innti hann álits á áætlun Þjóðhagsstofnunar um veiði á 250.000 lestum af loðnu á þessu ári. Hjálmar sagði ennfremur, að magn, heldur væri hlutverk þeirra Akureyri, 12. september. „EITIR tíu ára samfellt starf á sama stad er orðið tímabært að breyta til. Ég óska FSA alls hins besta og að stjórn sjúkrahússins takist að fá vel hæfan mann í minn stað, vonandi mann með mikið þrek til að byggja upp þessa deild, því hér vantar enn mikið á að unnt sé að bjóða upp á þá þjónustu, sem nútíminn krefst," sagði Brynjólfur Ingvarsson, yfir- læknir taugadeildar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, þegar Mbl. spurðist fyrir um ástæður upp- sagnar hans, en hann sagði starfi Scandinavian Bank: Landsbank- inn eykur hlutafé sitt LANDSBANKI íslands hefur aukið hlutafé sitt í Scandi- navian Bank í 3% úr 2.5%. Tveir danskir bankar, — Den Danske Bank og Den Danske Provinsbank, sem samanlagt áttu 19.1% hluta- fjár, seldu hlutabréf sín, að því er segir í frétt í Wall Street Joijmsl síöastliðinn mánudag. Skandinaviska Enskilda Banken á nú 45.7% hlutafjár í bankanum, átti áður 37%, Un- ion Bank í Finnlandi á 23.6%, átti áður 19.1%, Bergen Bank á 23.6% og Skanska Banken 4.1%, átti áður 3.3%. Þessi sala dönsku bankanna er liður í þróun, sem átt hefur sér stað allt frá því Danir gengu í Efnahagsbandalag Evrópu. Hagsmunir Dana liggja í vax- andi mæii í ríkjum EBE, að því er segir í frétt Wall Street Journal. sínu lausu hjá sjúkrahúsinu í ágúst sl. með þriggja mánaða fyrirvara. Síðan þá hafa deilur magnast innan deildarinnar og milli yfir- læknisins og stjórnar sjúkrahúss- ins, sem að lokum leiddi til þess nýlega að Brynjólfur útskrifaði alla sjúklinga deildarinnar og neit- ar að innrita að nýju. „Það er rétt, að Brynjólfur Ingv- arsson hefur sagt lausri stöðu sinni. Við í sjúkrahússtjórn erum nú að leita fyrir okkur með mann í hans stað og væntanlega verður staðan auglýst laus til umsóknar innan tíðar, annað vil ég ekki um málið segja á þessu stigi," sagði Gunnar Ragnars, formaður sjúkrahússtjórnar. Eftir því sem Mbl. kemst næst, munu deilur milli yfirlæknis og sjúkrahússtjórnar hafa staðið all- lengi og þá aðallega með uppbygg- ingu deildarinnar og þá þjónustu, sem þar skal veita. Jafnframt munu hafa komið til deilur innan starfsliðs deildarinnar varðandi fyrirkomulag á rekstri hennar og meðferð á sjúklingum. Taugadeild- in hefur verið til húsa í Skólastíg 7 á Akureyri og starfað í 10 ár. Brynjólfur Ingvarsson hefur verið yfirlæknir deildarinnar allan þann tíma. GBerg. ætlunin hefði verið að reyna að koma mælingum á stofnstærð væntanlegrar hrygningarloðnu í ágúst, en af ýmsum ástæðum hefði það ekki tekizt. Þangað til slík mæling tækist væri ekki hægt að ráðleggja neitt um hvort veiða ætti eða hve mikið. Ákvörðun um veiði yrði því að bíða niðurstaðna sameiginlegs leiðangurs með Norðmönnum í október. Hjálmar sagði ennfremur, að það væri ekki hlutverk hafrannsóknamanna að taka ákvarðanir um veiði og aðeins að kynna yfirvöldum niður- stöður rannsókna sinna og ábend- ingar í framhaldi þeirra. Yfirvöld- in tækju síðan ákvörðun um veiði og magn. Samkvæmt samkomulagi við Norðmenn og EBE höfum við samþykkt að hefja ekki veiðar úr sameiginlegum loðnustofni fyrr en að loknum áðurnefndum rann- sóknum. Þá eru löndin bæði að nokkru leyti háð niðurstöðum haf- rannsóknamanna hvað varðar ákvörðun um veiðar. Verða afurðalánin gengistryggð á ný? í ATHUGUN er aö taka upp geng- istryggingu afuróalána á ný skv. upp- lýsingum, sem Morgunblaöiö hefur aflað sér. Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að í vikulokin yrði Ijóst, hvert fyrirkomulag rekstr- ar- og afurðalána yrði, en hann kvaöst hafa óskað eftir því við Seðla- bankann í sumar, að þau yrðu tekin til sérstakrar athugunar. Viðskiptaráðherra kvaðst búast við, að tillögur Seðlabankans um vaxtabreytingar liggi fyrir um helgina og að lánskjaravísitala yrði birt í upphafi næstu viku. Þá sagði Matthías Á. Mathiesen, að byggingarvísitalan myndi liggja fyrir um næstu helgi og kæmi þá í ljós hver hækkun bygginarkostn- aðar hefði orðið milli ágúst- og septembermánaðar. Berjumst með öllum ráðum gegn þjóðnýtingu fiskiðnaðar 14. septemher_ úiaéamanni Morjpin- blaösins, Birni Bjarnasyni, í St. Johns, Ný- fundnalandí. „Sambandsstjórnin í Ottawa stefnir að því að þjóðnýta fisk- iðnaóinn hér á austurströnd Kan- ada,“ sagði Brian Peckford, for- sætisráðherra Nýfundnalands, í samtali við mig í dag og bætti við: „Ríkisstjórn Nýfundnalands mun berjast gegn því með öllum þeim ráðum sem okkur eru tiltæk. Ég veit ekki hvað við gerum, en eitt er víst að við leyfum sambandsstjórn- inni ekki að einoka undirstöðuat- vinnugrein okkar." Deilan stendur um stærsta út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki hér á Nýfundnalandi, Fisheries Products, en Hæstiréttur fjallar — segir forsætisráöherra Nýfundna- lands um hugmyndir Kanadamanna nú um kröfu helsta viðskipta- banka þess um að fyrirtækið verði gert upp. Af samtölum við Peckford og Gus Edchegary, for- stjóra Fisheries Products, í dag er ljóst að báðir aðilar telja lík- legt að unnt reynist að ná samn- ingum þeirra á milli sem koma í veg fyrir þau áform sambands- stjórnarinnar að sameina Fish- eries Products og tvö minni fyrirtæki hér á Nýfundnalandi með þátttöku Sam.bar.uSSÍjórn- arinnar, en þau áform hennar eru ástæðan fyrir því að Fisheri- es Products var sett undir skiptaráðanda. Fisheries Products sem á 44 togara kaupir allan veiðarfæra- búnað að Hampiðjunni hf. og lét forstjórinn mjög vel af þeim viðskiptum sem skipta stórum fjárhæðum. Tveir af nýjum tog- urum Fisheries Products eru hannaðir af Jóni Hafsteinssyni skipaverkfræðingi. Bria.n Peckford, forsætisráð- herra, sagði að ekkert gæti kom- ið í stað sjávarútvegs í atvinnu- lífi Nýfundnalands og því sé óhugsandi að eignarhald á stærsta útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki í fylkinu verði hjá sambandsstjórninni. Hug- myndir um leiðir eru enn óljós- ar, en niðurstaðan mun fást á næstu dögum og virðist ljóst að fylkisstjórnin beiti sér nú fyrir því að fá nýja aðila til að fjár- festa í Fisheries Products og jafnvel gerast hluthafi sjálf. Fisheries Products tapaði fé á síðasta ári einkum vegna birgða- spfnunar, en í ár hefur dæminu verið snúið við, birgðir minnkað og hagnaður orðið á rekstrinum, en hann nam 1,5 milljón kan- adískum dollurum á öðrum árs- fjórðungi 1983.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.