Morgunblaðið - 14.09.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
5
Landsmálafélagið Vörður:
Sverrir og Gunnar á
fundi um álsamninga
„SVERRIR Hermannsson iðn-
aðarráðherra og Gunnar G.
Schram alþingismaður verða
framsögumenn á almennum
fundi Landsmálafélagsins Varð-
ar, sem haldinn verður í Valhöll
við Háaleitisbraut á morgun,
fimmtudag, klukkan 20.30,“
segir í frétt sem Mbl. hefur bor-
ist frá Verði. í fréttinni segir
ennfremur:
„Eins og alkunna er voru upp-
haflegir samningar íslendinga við
Svissneska álfélagið gerðir á miðj-
um sjöunda áratugnum og raf-
orkuverð samkvæmt þeim endur-
skoðað um áratug seinna. Síðan
hefur ekki tekist að ná samning-
um um endurskoðun á raforku-
verðinu fyrr en nú, þegar skipuð
INNLENT
hafði verið ný samninganefnd, eft-
ir að síðasta iðnaðarráðherra,
Hjörleifi Guttormssyni, hafði
gjörsamlega mistekist að ná
nokkrum samningum við álfélag-
ið. Fundarstjóri verður Sveinn
Björnsson verkfræðingur. Á fund-
inum verða staðreyndir málsins
kynntar varðandi samningana."
Héraðsfundur
Húnavatns-
prófastsdæmis
HÉRAÐSFUNDUR Húnavatnspró-
fastsdæmis var haldinn á Hólmavík
sunnudaginn 4. sept. sl.
Þar setti prófastur sr. Róbert
Jack inn í embætti Hólmavíkur-
prestakalls sr. Flóka Kristinsson
en sr. Andrés Ólafsson hafði fengið
lausn frá því embætti að eigin ósk
eftir 35 ára starf. Einnig var sr.
Ólafur Hallgrímsson skipaður
prestur í Mælifellsprestakalli.
Fundinn sátu átta prestar og 15
safnaðarfulltrúar.
Guðmund-
ur H. Odds-
son látinn
GUÐMUNDUR H. Oddsson fyrrver-
andi skipstjóri er látinn.
Hann fæddist í Bolungarvík 3.
júlí 1911. Foreldrar hans voru
Oddur Guðmundsson kaupmaður
og Jósefína Bjarnadóttir kennari.
Hann kvæntist 6. september 1936
Ólafíu Laufey Halldórsdóttur og
eignuðust þau 4 börn.
Guðmundur lauk meira fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum 1933 og var skipstjóri og
stýrimaður á bátum og togurum í
27 ár og útgerðarmaður um skeið.
Formaður skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Öldunnar í 12 ár
og sat í Verðlagsráði sjávarút-
Guómundur H. Oddsson
vegsins í 10 ár. Einn af stofnend-
um Sjómannadagsins í Reykjavík
og sat í fulltrúaráði hans í 35 ár.
Mögnuð mittisúlpa
Litir: Grátt, brúnt, dökkblátt.
Stæröir: 50—56.
Verö 1645 kr,-
Vatterað með Holofill.
Sendum í póstkröfu.
Póstkröfusími 11620
Fæst í bókaverslunum,
matvörubúöum og
hljómplötuverslunum
Karnabæjar
itoiAwhf
Sími 85742
Hvað er svona
merkilegt
við
Scarsdalekúr?!
Milljónir manna um allan heim
hafa komist aö raun um aö
HANN
VIRKAR!!
Samm Sinclair Baker, höfundur
Scarsdale-kúrsins er staddur
á íslandi.
Hann mun gefa eiginhandaráritun
og ráðleggingar í eftirtöldum versl-
unum í dag:
1. Mál og menning Laugavegi 18
kl. 14—15.
2. Sigfús Eymundsson Austur-
stræti 18 kl. 15—16.
3. ísafold, Austurstræti 10, kl.
16—17.
Einstakt
tækifæri