Morgunblaðið - 14.09.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
21
VR-félagar tóku upp kartöflur um helgina:
Fjölskylda gat spar-
að sér 2.200 krónur
„VIÐ RÉÐUMST í þetU fyrst og
fremst til að hafa sem mesta fjöl-
breytni í félagsstarfinu hjá okkur,“
sagði Magnús L. Sveinsson, formað-
ur Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, í samtali við Morgunblaðið,
en félagið stóð fyrir upptöku kart-
aflna um helgina meðal félags-
manna sinna á svæði sem það hafði
fengið til þess að setja niður kartöfl-
ur á. Maður á vegum félagsins sá
um niðursetningu og annað því við-
víkjandi og félagar í Verslunar-
mannafélaginu komu ekki inní
framkvæmdina fyrr en að upptöku
var komið.
„Við auglýstum þetta í VR bláð-
inu og kynntum okkar félags-
mönnum að þeim stæði til boða að
koma og taka upp kartöflur fyrir
aðeins 10 krónur kílóið, sem er
30% af því verði sem kartöflur
kosta út úr búð. Við stefndum að
því að hver fjölskylda tæki upp
um það bil 100 kíló, þó það væri að
sjálfsögðu engin skylda og ef fjöl-
skyldan gerði, það sparaði hún sér
um 2.200 krónur. Við erum sér-
staklega ánægðir með hvað fé-
lagsmenn VR tóku þessu vel og
kunnu vel að meta þetta, því á
laugardeginum mættu milli 4 og
500 manns til upptöku, en alls
komu rúmlega 7 tonn upp úr garð-
inum,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að þetta hefði
verið félaginu algerlega að kostn-
aðarlausu, 10 krónurnar sem
borgaðar hefðu verið fyrir kílóið,
stæðu undir kostnaði af þessu.
Uppskeran hefði verið ágæt og
kartöflurnar góðar matarkartöfl-
ur. Hann sagði að þeir hjá VR
hefðu vissulega áhuga á því næsta
sumar að endurtaka þetta, miðað
við undirtektirnar nú.
Eins og sjá má voru heilu fjölskyldurnar mættar til að taka upp kartöfhir
og margt barna.
VR-félagar vinna að kartöfluupptókunni á laugardag.
Ljósmynd Jón SvavarsNon
í STUTTU MÁLI
Þingeyjarsýslur:
Slátrun hefst
llúsavík, 13. september.
GÖNGUR hófust hér með fyrra
móti og hefur gengist vel því veður
hafa verið hagstæð. Um vænleika
fjárins eru misjafnar skoðanir en
gróður á afréttinni kom seint og
sölnaði líka seinna en í venjulegu
árferðL
Slátrun hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga á Húsavík hefst á morg-
un og er áætlað að fella 45 þús-
und fjár eða rúmlega einu þús-
undi færra en í fyrra. Flest er
áætlað að komi úr Mývatnssveit
eða rúmlega 10 þúsund og úr Að-
aldal tæp 8 þúsund.
Fréttaritari
Fyrirlestur um
hveralfffræði
MIÐVIKUDAGINN 14. september
mun dr. Jakob K. Kristjánsson
halda erindi á vegum líffræðinga-
félags er nefnist „Líf í hverum og
laugum á íslandi".
í erindinu verður fjallað um
nýlegar rannsóknir í hveralíf-
fræði, sem unnar hafa verið við
Líffræðistofnun Háskólans.
Rætt verður um nokkrar helstu
gerðir hvera hér á landi og þær
lífverur sem helst einkenna mis-
munandi gerðir. Sérstaklega
verður tekið fyrir hitastigsbilið
60—100°C og rætt um hvernig
og á hverju lífverur geta lifað við
slíkar aðstæður. Fjallað verður
um nýlegar niðurstöður rann-
sókna á útbreiðslu baktería af
ættkvíslinni Thermus í hverum á
fslandi og einnig um rannsóknir
og einangrun á ýmsum frum-
bjarga hitakærum bakteríum.
(Frétutilkrnning.)
Leiðrétting
ÞAU mistök áttu sér stað í frá-
sögn af helgarskákmótinu á
Patreksfirði, að rangt var farið
með nafn sigurvegarans. Hið
rétta er að Ingi R. Jóhannsson
sigraði með miklum yfirburðum
á mótinu. Mbl. biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
HAHCii_fo»p corrotA .
„Svarti folinn“
í Tónabíói
FIMMTUDAGINN 15. september
verður frumsýnd í Tónabíói mynd-
in Svarti folinn (The Black Stall-
ion). Framleiðandi er Francis Ford
('oppola.
Segir í tilkynningu frá Tóna-
bíói að hann hafi sennilega með
þessari mynd viljað bæta fyrir
heldur óhugnanlegt hestaatriði í
mynd sinni „The Godfather".
Kvikmyndataka er í höndum
Caleb Deschanel og leikstjóri er
Carrol Ballard. Tekst þeim báð-
um vel upp og þó sérstaklega
Deschanel, en myndataka hans
er mjög góð.
í byrjun myndarinnar fær
drengurinn Alec Ramsey gefins
frá föður sínum ævaforna styttu
af hesti og tengist saga hennar
grískum goðsögnum. í kjölfar
þess dregst Alec með furðu-
legum hætti inn í óvænta og
ævintýralega atburðarás.
Flugvirkjafélagid:
Lendingarbann
á sovézkar vél-
ar í 269 daga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
áskorun frá Flugvirkjafélagi ís-
lands þar sem skorað er á ríkis-
stjórn Islands, að banna lendingar
sovéskra flugvéla á íslandi í 269
daga.
Þessi áskorun er tilkomin
vegna þess atburðar þegar sov-
ésk stjórnvöld létu skjóta niður
farþegaflugvél í áætlunarflugi
og granda henni áoamt farþeg-
um og áhöfn.
Náttsöngur í
Hallgrímskirkju
í KVÖLD, miðvikudaginn 14. sept-
ember, hefst Náttsöngur að nýju í
Hallgrímskirkju í Reykjavík eftir
dálítið hlé.
Sungin er tiðagjörð (complet-
orium) og flutt tónlist. í kvöld
munu þau Ragnheiður Guð-
mundsdóttir söngkona og Helgi
Bragason orgelleikari flytja
Stabat Mater eftir Vivaldi.
Náttsöngurinn hefst kl. 22 og
stendur í u.þ.b. hálfa klukku-
stund.
Miðvikudaginn 21.9. munu
hjónin Martial Nardeau og Guð-
rún S. Birgisdóttir flautuleikar-
ar verða gestir í Náttsöng og
flytja tónverk fyrir 2 þverflaut-
ur.
Blómaker hjá
Flóru
FLÓRA í Hafnarstræti 16 er að
hefja nýja þjónustu með blóma-
ker fyrir banka, skrifstofur og
fleiri. Segir í fréttatilkynningu
frá Flóru að þjónustunni verði
þannig háttað að útveguð verði
blómaker og séð um umhirðu
þeirra. Einnig verða veittar al-
hiiða ráðleggingar um staðsetn-
ingu og val keranna. Opið er til
2.00 alla virka daga og símanúm-
erið er 24025.
Leiðrétting
f FRÉTT af opnun Hárgreiðslu-
stofunnar Safírs í Mbl. í gær var
farið rangt með heimilisfang
stofunnar. Hárgreiðslustofan
Safír er til húsa að Nóatúni 17.
Leiðsögunámskeið
Ferðamálaráðs
FERÐAMÁLARÁÐ gengst fyrir
námskeiói fyrir verðandi leiðsögu-
menn. Námskeiðið hefst 29. sept.
og lýkur í maí næsta vor.
Fluttir verða fyrirlestrar tvö
kvöld í viku og próf verða haldin
í nóv. og maí. Skráning fer fram
á skrifstofu Ferðamálaráðs ís-
lands að Laugavegi 3, Reykjavík.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Sex tónleikar
á Austurlandi
Sinfóníuhljómsveit íslands leggur af
stað í tónleikaferðalag til Austurlands
fimmtudaginn 15. september, segir í
frétt sem Morgunblaðinu hefur borist
frá hljómsveitinni. í fréttinni segir
ennfremur:
„Haldnir verða á næstu dögum
tónleikar á sex stöðum austanlands,
og verður efnisskráin fjölbreytt og
aðgengileg. Stjórnandi hljómsveitar-
innar verður Guðmundur Emilsson.
Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur
með hljómsveitinni og Einar Jó-
hannesson leikur einleik á klarin-
ettu.
Meðal viðfangsefna eru „Italska
sinfónían" eftir Mendelssohn, eitt
hið skemmtilegasta tónverk sinnar
tegundar, forleikur að gamanóper-
unni „Rakarinn í Sevilla“ eftir Ross-
ini, svo og aría úr annarri óperu
hans og ennfremur einleiksverk
fyrir klarinettu og hljómsveit, og
loks fjörug og ísmeygileg Vinartón-
list, sem engan lætur ósnortinn, að
ógleymdum „Hátíðarmarsi" eftir Pál
Isólfsson og tveimur „sumarsöngv-
um“ eftir Inga T. Lárusson, sem Jón
Þórarinsson hefur fært í hljómsveit-
arbúning.
Tónleikarnir fara fram sem hér
segir:
Á SeyAúrirði, finimludag 15. sept. kl. 21.
Á l'áskrúðiifirAi, fóstudaK 16. sept. kl. 21.
Á Vopnafirði, laucardaf! 17. sept. kl. 17.
Á Eskifirði, sunnudaf! 18. sept. kl. 16.
Í Neskaupstað. sunnudaf; 18. sept. kl. 21.
Á Egilsslöðum. mánudaf! 19. sept. kl.2l.
Starf sinfóníuhljómsveitarinnar
skal samkvæmt lögum miða að því
að auðga tónmenningu Islendinga,
efla áhuga og þekkingu á æðri tón-
list og gefa landsmönnum kost á að
njóta hennar, m.a. með tónleikahaldi
sem víðast um landið. Með þessi
markmið í huga eru tónleikaferðir
hljómsveitarinnar farnar og hafa
þær átt sívaxandi vinsældum að
fagna um byggðir landsins."
Kínversk menningarheimsókn
KÍNVERSK menningarsendinefnd dvaldist hér á landi dagana 8.—12. þ.m.
Formaður nefndarinnar var Lu Zhixian vara-menningarmálaráðherra kín-
verska alþýðulýðveldisins. Nefndarmenn kynntu sér íslensk lista- og menn-
ingarmál og heimsóttu nokkrar menningarstofnanir. Nefndin átti viðræður
við íslensk stjórnvöld meðan á dvölinni stóð, en Ragnhildur Helgadóttir
mcnntamálaráðherra stýrði þeim viðræðum af íslenskri hálfu og er hún á
myndinni ásamt Lu Zhixian.