Morgunblaðið - 18.09.1983, Side 12
60
r
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983
/ ............... ................... 11,1 N
, Hvcrt
pessara
tungumála
langar þig
35
til að tala?
Frönsku, þýsku, ensku eða dönsku? Eða
viltu e.t.v. frekar teygja þig til fjarlægari
landa og læra grisku eða japönsku? Með að-
stoð hinna rómuðu Linguaphone tungu-
málanámskeiða verður námið þér á engan
hátt ofraun. Það sannar reynsla yfir flöginra
milljón nemenda um allan heim, af öllum
þjóðemum og á öllum aldri. Allir hafa þeir
aukið við tungumálakunnáttu sína gegnum
Linguaphone. Þú getur auðveldlega orðið
einn þeirra.
Auðvelt og
ánægjulegt
Yfir 200 tungumálamenn um allan heim
hafa komið við sögu í 60 ára þróun Lingua-
phone námskeiðanna. Afrakstur þeirrar
vinnu er margreynt og fullkomnað náms-
kerfi, sem hefur reynst ótrúlega einfalt en
fljótvirkt. Heymar og sjónminni leggjast á
eitt og á örfáum mánuðum lærirðu nýtt
tungumál. Ekki með þrotlausu striti yfir
glósubókum í kennslustundum, heldur með
auðveldu og ánægjulegu námi í stofunni
heima.
35tungumál
Linguaphone tungumálanámskeiðin eru
fáanleg bæði á segulbandsspólum (kassett-
um) eða á litlum hljómplötum. Bækumar
fást ými8t með enskum eða dönskum
skýringartextum.... og nú er danska nám-
skeiðið fáanleg i fyrsta sinn með íslenskum
texta.
Hringdu eða skrifaðu eftir frekari upplýsing-
um um eitthvert eftirtalinna tungumála-
námskeiða. Okkar er ánægjan ef við getum
aðstoðað.
Kassettur eóa hljómplötur
Norska
Sænska
Danska
Flnnska
Islenska
Þýska
Hollenska
Enska 1, 2 og 3
frska
Velska
Franska
Italska
Pólska
Tékkneska
Amerísk enska
Rússneska
Japanska
Spœnska (Kastlllía)
Spœnska (Rómanska Amerika)
Portugalska
Serbó-króatiska (Júgóslavía)
Hebreska
Nýpersneska
Stöóluö arabiska
Alsirsk arabíska
Egyps|c arabiska
Mandarinska (Kinverska)
Kantónska (Kinverska)
Afrikanska
Súlska (Zulu)
Svahilska (Swahili)
Hlndverska (Indland)
Malajiska
Indónesiska
Iringdu eða skrifaðu eftir upplýsingabæklingi
Hljódfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96 - Sími 13656
Brídge
Arnór Ragnarsson
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Vetrarstarfsemi félagsins
hófst sl. miðvikudag með eins
kvölds tvímenningi. 22 pör spil-
uðu með mitchell fyrirkomulagi.
Hæsta skor fengu:
A—V
Stefán Pálsson
— Ragnar Magnússon 324
Sigurður Sigurjónsson
— Júlíus Snorrason 311
Guðlaugur Jóhannsson
— Örn Arnþórsson 300
Kristján Blöndal
— Valgarð Blöndal 292
N—S
Sigurður B. Þorst.
— Gylfi Baldursson 337
Ásmundur Pálsson
— Karl Sigurhjartarson 320
Helgi Nielssen
— Alison Dorash 315
Gunnar Þórðarson
— Leif Österby 303
Meðalskor var 270.
Næsta miðvikudag, 21. sept-
ember, verður eins kvölds
tvímenningur aftur á dagskrá.
Sérstök athygli er vakin á því að
þá verður spilað í Gerðubergi,
menningarmiðstöðinni í Breið-
holti. Spilamennska hefst kl.
19.30.
Bridgefélag
Breiðholts
Síðastliðinn þriðjudag var
spilaður einskvölda tvímenning-
ur og var spilað í einum fjórtán
para riðli.
Úrslit urðu þessi:
1. Kjartan Kristófersson
— Helgi Skúiason 185
2. -3. Einar Hafsteinsson
— Guðmundur Skúlason 168
2.-3. Sævin Bjarnason
— Óli M. Andreasson 168
4. Garðar Garðarsson
— Friðrik Jónsson ' 162
Meðalskor 156
Næstkomandi þriðjudag verð-
ur spilaður einskvölda tvímenn-
ingur, en þriðjudaginn 27. sept.
hefst þriggja kvölda hausttví-
menningur og er allt spilafólk
velkomið.
Spilað er í Gerðubergi í Breið-
holti kl. 19.30 stundvíslega.
Keppnisstjóri er Hermann
Lárusson.
Bridgefélag
Kópavogs
Fyrsta spilakvöld haustsins
var haldið fimmtudaginn 15.
sept. Spilaður var eins kvölds
tvímenningur en þátttaka var
dræm. í efstu sætum urðu þess-
ir:
Björn Halldórsson
— Ásgeir Ásbjörnsson 132
Grímur Thorarensen
— Guðm. Pálsson 132
Stefán Pálsson
— Rúnar Magnússon 113
Jónatan Líndal
— Þórir Sveinsson 112
Meðalskor 108 stig.
Fimmtudaginn 22. sept. verð-
ur spilaður eins kvölda tvímenn-
ingur og eru allir eldri meðlimir
BK hvattir til að mæta og taka
með sér nýja félaga. Spiiað er að
Þinghóli við Hamraborg og hefj-
ast spilakvöld kl. 20.00 stundvís-
lega.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Fyrsta umferð af 5 í tvímenn-
ingskeppni var spiluð ( gær. 42
pör mættu til leiks. Úrslit urðu:
Stig
1. Guðiaugur Nielsen —
Óskar Karlsson 199
2. Baldur Árnason —
Sveinn Sigurgeirsson 198
3. Birgir ísleifsson —
Karl Stefánsson 198
4. Eggert Benónýsson —
Sigurður Ámundason 197
5. Steinunn Snorradóttir —
Vigdís Guðjónsd. 195
6. Halldór Jóhannesson —
Ingvi Guðjónsson 179
7. Gísli Stefánsson —
Kristján Ólafsson 178
8. Árni Magnússon —
Jón Ámundason 177
9. Matthías Þorvaldsson —
Rögnvaldur Möller 175
10. Guðlaugur Karlsson —
Óskar Þór Þráinsson 174
Meðalskor 156
Næst verður spilað á fimmtu-
dag kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu.
Kaupmenn—kaupfélög. Heildsölubirgóir fyrir-
liggjandi: Rifflar, haglabyssur, skotfæri, byssu-
pokar, byssuólar og -festingar, hreinsisett,
heyrnarhlífar og kíkjar. Sími 24020
Harrington & Richardson, Mossberg, Winchester, Weaver, Weather Shield.
I.GUÐMUNDSSON & CO. HF