Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 28
V 76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983 „ Hún var alltaf ab stagast <x þv< QÓ dansgólfið vxri ósLctt. " Fyrirhuguð húsgagnakaup SÁÁ: Ást er... ... að hlusta á hann leysa öll þín vandamál. TM Rec U S Pat 0« -all nghts reserved c 1983 Los Angeles Times Syndicate ÞetU eru sígaretturnar sem ég mæli með við þá sem hætta að reykja. t'að er ekki hægt að opna pakkann! Kallaði ekki forstjórinn ...? HÖGNI HREKKVÍSI Fullkomlega eðlileg, enda hag- kvæmnissjónarmið í íyrirrúmi Ólafur Jóhannsson skrifar: „Talsvert hefur verið skrifað í blöð að undanförnu um væntanleg kaup SÁÁ á dönskum húsgögnum í hina nýju sjúkrastöð samtak- anna við Grafarvog í Reykjavík. Er fundið að því við SÁÁ að ákveðið hafi verið að versla við er- lendan aðila í þessu sambandi, en ekki keypt vara frá innlendum framleiðendum. Ennfremur hefur það verið nefnt aðjreir sem styrkt hafi starfsemi SÁÁ, hafi ekki ætl- ast til þess að fjármagn yrði flutt úr landi með þessum hætti. Hjá forystumönnum SÁÁ hefur það komið fram að við saman- burðarathugun hafi komið í ljós að með því að skipta við hinn danska framleiðanda um allan húsbúnað í sjúkrastöðina, spari samtökin sér um 490 þúsund krón- ur, en heildarsamningsupphæðin nemur 2.860.000 krónum og er því um meira en 15% sparnað að ræða hjá SÁÁ í þessu tilfelli. Tæplega hálf milljón króna er upphæð sem fjárvana samtök kasta ekki frá sér til þess eins að skipta við innlenda aðila. Ef innlendir húsgagna- framleiðendur eru ekki samkeppn- isfærir, hvað varðar verð og/eða gæði, verða þeir að taka því að almenningur, fyrirtæki og félaga- samtök leiti til þeirra sem full- nægja gerðum kröfum. Eðlileg viðbrögð framleiðenda væru þau að bæta framleiðsluna og verðið, ætlist þeir til þess að markaður- Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér 1 dálkunum. inn virði þá viðlits. Þá ber einnig til þess að líta að SÁÁ hefur síðastliðna mánuði skapað mikla vinnu við byggingu sjúkrastöðvarinnar í Grafarvogi. fslensk fyrirtæki og starfsmenn þeirra hafa nú um þetta leyti fengið 30 milljónir króna við bygg- ingu sjúkrastöðvarinnar. Allir, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða félaga- samtök hverskonar, hljóta að kappkosta að halda öllum kostn- aði í lágmarki. Ekki verður annað séð en SÁÁ hafi hingað til staðið sig bærilega á þvi sviði, enda er á því höfuðnauðsyn að sýna aðhald, sparnað og skynsamlega fjárfest- ingu, eins og efnahagsástandinu er nú háttað. Mættu sem flestir taka SÁÁ sér til fyrirmyndar í þessu efni, þar sem ekki verður annað séð en að samtökin hafi það að leiðarljósi að halda kostnaði f lágmarki, án þess þó að það bitni á gæðum, enda eru innkaup af þessu tagi alltaf háð mati kaupanda. Að þessu athuguðu, fæ ég ekki séð að neitt athugavert sé við Þórunn Haraldsdóttir skrifar: „Kærar kveðjur sendi ég bíl- stjóranum á R-6434, sem er ljósblár Volvo. Við mættumst á Ægisíðunni í gær (fimmtudag), rétt fyrir kl. 13.00. Þar gekk ég á gang- stéttinni, en þú komst akandi á talsverðum hraða eftir götunni og jóst yfir mig bleytunni af götunni. Ég mætti mörgum bílum þarna og allir tóku tillit til gangandi vegfarenda. Nú finnst manni, að reykvískir bílstjórar ættu að vera orðnir fyrirhuguð kaup SÁÁ á húsbúnaði frá Danmörku. Hins vegar er óskandi að íslenskur iðnaður nái meiri fótfestu á húsgagnamarkað- inum en nú er, því um 70% hús- gagna sem hér eru á markaði, eru erlend framleiðsla. Hins vegar er hæpið að framleiðendur nái því markmiði að auka markaðshlut- deild sína með því einu að agnúast út í SÁÁ. Fjölmörg dæmi eru til um það að innlendir aðilar hafi keypt hús- búnað erlendis. Er þar skemmst að minnast húsgagnanna í „diskó- teki ríkisstjórnarinnar" í Borgar- túni 6, húsgagna í hinu nýja elli- heimili í Kópavogi og fleiri dæmi mætti nefna. Ekki minnast menn þess að stuna eða hósti hafi heyrst frá íslenskum húsgagnaframleið- endum í tilefni þessara innkaupa. Skyldu húsgagnaframleiðendur finna í SÁÁ farveg fyrir gremju sína vegna húsgagnakaupa fyrr- nefndra aðila? Og ætli framleið- endur séu að reyna að vara aðra við að kaupa vörur erlendis, með þessari herför á hendur SÁÁ?“ leiknir í að sýna gangandi fólki tillitssemi eftir allar rigningar sumarsins. En þú, kæri bílstjóri, skuld- ar mér kr. 133,-, en það er kostnaður við hreinsun á káp- unni minni. Sokkana og skóna hreinsaði ég sjálf. Mundu svo næst, þegar þú ekur um í rigningu og eyst úr pollunum, að kannski þarft þú sjálfur einhvern tíma að ganga í rigningu og verður þá sjálf- sagt ekki hress yfir svona baði." Þú skuldar mér krónur 133.- Mér hálfbrá Starri skrifar: „Ég átti erindi á eina af bíla- sölum borgarinnar og varð fróð- ari um margt eftir þá heimsókn. Ég rak augun í gamlan ryð- brunninn fólksvagn og átti sá að kosta 30 þúsund krónur. Varla var hægt að fá nokkurn bíl, sem bíl væri hægt að kalla, fyrir minna en 100 þúsund krónur. óþarfi er að minnast á verð nýrra bíla, en þeir kosta mörg hundruð þúsund, jafnvel nálægt einni milljón, þeir fínustu. Ég hefi spilað í Happdrætti Iláskólans í áratugi og fundist það þess virði á stundum. En mér hálfbrá þegar ég sá að hæsti vinningur þessa ágæta happ- drættis var seinast kr. 30 þús- und. Sem sagt, það er hægt að kaupa gamlan aflóga fólksvagn, árgerð 1970 — og eitthvað, fyrir þessa upphæð. Gamlan bíl af dýrari gerðum væri ekki hægt að kaupa fyrir þessa peninga, þótt maður ætti jafnvel trompmiða."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.