Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 18
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983 Soraya fyrrv. keisaradrottning. í aldarfjórðung hefur hún verið á sí- felldum þeytingi frá einni veizlu til annarrar. Hún er glæsilega búin. Ber úrvals gimsteina sem shahinn leyfði henni aö halda við skilnaö þeirra. Soraya-villan er á Mallorca. Hún er byggö á bjargi og blátt Miöjaröar- hafið blasir viö. Á þessu ári er liðinn aldar- fjórðungur frá því að Soroya, önnur eiginkona íranskeis- ara, hin fyrsta var Fawzia, systir Farouks Egyptalands- konungs heitins, varð að yfir- gefa eiginmann sinn og ætt- arland og lofa því að gifta sig aldrei aftur. Upp frá því hef- ur allt líf hennar verið leit að hamingju. Mennirnir, sem hún hefur unnað, hafa ýmist dáið eða yfirgefið hana. Hún ætlaði að verða leikkona, en það fór út um þúfur. í París á hún óhófsíbúð, en hún unir bezt íhúsi sínu á sólskins- eynni Mallorka. „Þar get ég verið eins og ég sé heima hjá mér,“ segir drottningin. „Prinsessan með sorgbitin græn augu“, hefur Soraya oft verið köll- uð. Alltaf falleg, alltaf umkringd glæsimönnum, sem hafa upp á flestar heimsins lystisemdir að bjóða. En ekkert dugði, hún var ekki hamingjusöm. Arum saman fylgdu blaðamenn ferðum hennar á næturklúbbum Evrópu, þar sem hún var í för með ýmsum karl- mönnum. Hún brosti aldrei, ein- mana kona, sem hræddist einver- una og leitaði huggunar í flakkinu og neytti deyfilyfja og sterks áfengis. Eftir að aldarfjórðungur er liðinn frá því að shahinn af ír- an rak hana í burtu, er hún loks að finna sálarfrið í fallega húsinu sínu á Mallorka. — Hér get ég hvílt mig og verið ég sjálf, segir hún og býður oft vinum sínum þangað heim. Aldrei elskað neinn annan Harmleikur Sorayu Esfandiaris hófst í febrúar 1951, þegar hún giftist shahinum af Iran. Hún var ofsalega ástfangin og óskaði þess eins að fá ávallt að eyða ævinni með honum. En það fór nú á ann- an veg. Shahinn var mjög háður því að hún fæddi honum son til þess að setjast í páfuglshásætið á sínum tíma. Og þegar hjónabandið var barnlaust, varð hann að stíga það erfiða skref að skilja við kon- una sem hann elskaði. 15. marz 1958 var Soraya send með flugvél til Evrópu og hefur aldrei síðan stigið fæti á íranska grund. Soraya hafði því nær engrar menntunar notið, og lífið við persnesku hirðina spillti henni. Alls konar munaður og óhóf var sjálfsagt fyrir hana og shahinn sá um það, að hana skorti aldrei neitt. Hann gaf henni mikið fé, greiddi henni laun mánaðarlega (hve há vissi aldrei neinn) og lét hana halda nokkrum hluta úrvals gimsteina sem hann hafði gefið henni sambúðarárin. En þó að shahinn væri rausnarlegur á fjár- muni við hana, var hann mjög strangur og einskorðaður að öðru leyti: Soraya varð að heita því að giftast aldrei aftur. Hann gat ekki bannað henni að eiga vini, en hún mátti aldrei ganga svo langt að giftast þeim. Það hefur Soraya ekki heldur gert. í aldarfjórðung hefur hún verið „ekkja shahsins". Hefur hún ekki viljað gifta sig af þægð við hann? Nei, segja þeir sem standa henni næst. Shahinn er eini maðurinn sem hún hefur elskað, og þar sem hún hefur ekki getað gleymt hon- um, hefur hún ekki heldur viljað rísa upp gegn boði hans. Vera má og líka að óttinn við að missa fjár- hagslegt öryggi hafi hindrað hana í því að rjúfa það heit sem hún hafði eitt sinn unnið. Tveir friðlar dóu En þó að Soraya hafi aldrei fundið jafnoka shahsins, hefur Soraya gengur út af glæailegu hóteli aö loknum morgunveröi. Sorgbitna prinsessan með grænu augun Þaö er ekki þröngt um Sorayu í rúminu. A því er ísbjarnarskinn. hún haft nána umgengni við marga aðra karlmenn. Ríkir, hugrakkir og frægir voru þeir all- ir, og þar sem hún er „rómantísk" að eðlisfari, varð hún oft mjög ástfangin. En ekki varanlega. Tveir þeirra dóu, hinir yfirgáfu hana. Fyrsti elskhugi hennar eftir skilnaðinn var glaumgosinn Gúnt- er Sachs. I tvö ár voru þau saman á ferð og flugi og nutu alls konar lífsnautna. Hvort þeim hefur komíð hjúskapur til hugar, vitum við ekki, en hafi svo verið, hefur símskeyti frá shahinum komið í veg fyrir það. Fyrrverandi keis- aradrottning frans gat ekki gifzt uppskafningi. Italska prinsinum, Raymond Orsini, tókst í nokkra mánuði að laða fram bros á andlit Sorayu. Leikarinn Maximillian Schell var mjög hrifinn af henni og á frönsku Miðjarðarhafsströndinni skemmti hún sér með Englendingnum Hugh O’Brien. Þjóðverjinn Peter Hall lét sér fátt um finnast um lífið á næturklúbbunum. Hann reyndi að beina lífi Sorayu í heil- brigðan farveg. En hann gafst upp eftir tvö ár og sneri vonsvikinn aftur til Alpanna. ítalska leiksviðsstjóranum Franco Indovina varð hún mjög ástfangin af. En hann var giftur og átti tvö börn — og þegar að lokum leit út fyrir að hann mundi VAXTARLAG VERTU í TAKT VIÐ TÍMANN! VIÐ EIGUM FÖT Á FLESTA OG SÉRSAUMUM A ALLA. ER EKKERT ANDA MAL æ SMOKING, JAKKAFÖT, STAKAR BUXUR OG STAKIR JAKKAR. Hi's Snorrabraut Simi 13505

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.