Morgunblaðið - 18.09.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983
67
Hún var nítján ára,
þegar hún og shahinn
voru gefín saman. Og
um leið varð hún keis-
aradrottning í íran.
Átta árum seinna
sendi hann hana burt.
skilja við konu sína, fórst hann í
flugslysi. í heilt ár var Soraya
lifandi-dauð, og þegar hún tók
þátt í veizlum, virtist hún sinnu-
laus með kampavínsglas fyrir
framan sig. Svefnleysi þjáði hana
og hún fór að taka inn deyfilyf. En
hún komst að raun um að hún var
komin inn á hættulega braut og
tókst að losa sig undan misnotkun
lyfja og áfengis.
Allt frá dauða Indovina hefur
ástalíf hennar verið daufara. Um
tíma sást þó ungur, franskur bar-
ón, sem var tuttugu árum yngri en
hún, oft í fylgd með henni. Hann
stytti sér aldur og aftur varð
Soraya einmana. Eins og sakir
standa, virðist hún ekki vera í
tygjum við nokkurn karlmann, en
stuðst við fáa, trygga vini.
Ánægðari og rólegri
f París á hún glæsilega íbúð. En
það er í fallega húsinu sínu á
Mallorka sem hún unir sér og nýt-
ur lífsins. Það eru duttlungar ör-
laganna, að á eynni þykir líka
þriðju konu shahsins, Farah Diba,
gott að dvelja. Soraya á landsetur
skammt frá bústað spænsku kon-
ungsfjölskyldunnar, en þar bjó
hún fyrsta sumarið eftir að hún
varð „ekkja". Það var líka á Mall-
orka að hún gekk um borð í lysti-
snekkju Khassogi olíufursta.
Alla viðhöfn og skraut, sem hún
kynntist í keisarahöllinni forðum,
hefur hún lagt til hliðar á Mall-
orka. Að vísu býr hún ríkmann-
lega, en nú leggur hún meiri
áherzlu á það sem er heimilislegt
og hentugt. lburður þar er ekki
svo býsna mikill. Hvíta villan er í
litla hafnarbænum Andraitx, um
það bil þrjátiu kílómetra fjarlægð
frá Palma. Þaðan er góð útsýn yfir
Miðjarðarhafið og villan er vel
falin fyrir forvitnum augum. Hún
er rækilega varin af vönduðu
rafmagnskerfi, sem kemur í veg
fyrir að nokkur komist þangað
óboðinn.
Villan er á fjórum hæðum, og
Soraya er fús til þess að opna dyr
fyrir ljósmyndurum. Viðhafnar-
stofan er á annarri hæð, og er
bæði í spænskum stíl og amerísk-
um. í eldhúsinu eru vélar af
mörgu tagi, og það er María, hús-
hjálpin, sem gætir hússins, þegar
Soraya er fjarstödd. í matstofunni
getur Soraya lagt á borð fyrir tólf
gesti. En hún leggur líka oft á
borð á grashjallanum framan við
húsið og steikir þar. Nóg er af
gestaherbergjunum. í þeim öllum
eru baðker. En baðker Sorayu ber
af. Það er í austurlenskum stíl,
hvítt og grænt. Og pálmaviðurinn
þarna er ekki í potti, hann er gróð-
ursettur í litlum lystigarði. Hann
er umkringdur gervigrasi.
Hefur þá Soraya fundið ham-
ingjuna á þessum stað? Ef til vill
ekki hástig hennar, en hún virðist
þó ánægð og það er komin ró yfir
hana eftir allan eltingaleikinn við
hamingjuna í rúman aldarfjórð-
ung. — Og hún segir af einlægni,
að því er virðist: „í húsi mínu á
Mallorka er ég hamingjusöm."
Salon NES
Seltirningar og nágrannar. Höfum opnað hársnyrti-
stofu aö Austurströnd 1, Seltjarnarnesi, (í húsi Nes-
skips hf.). Bjóðum uppá alhliöa hársnyrtingu. Gjöriö
svo vel aö reyna viöskiptin.
Hárgreiöslumeistarar Salon NES
Helga Jóhannsdóttir, 8ími 26065.
Sigríöur Garðarsdóttir.
Gódan daginn!
TpmDPMm
VE)RÁÐ ANLE GT VERÐ
B.M. VALLÁ
PANTANIR:
Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá
Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk.
Símar: 91-25930 og 91-25945
AFSIÁTTUR
ÁDILKAKJÖTI
TryggÖu þér
kjöt
meöan birgöir
endast
^Afurðasala Sambandsins
Kirkjusandi sími:86366