Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 Farin aö skipta um ham í maímánuöi. Á útkikki. Ljóamynd KEE Hvít í Heiömörkinni í mars. Rjúpa situr í tré. Myndin er tekin f VeiÖi talin hafa lítil áhrifd stofninn Fáar fuglategundir ísienskar vekja jafn mikinn áhuga á meðal landsmanna og rjúpan og kemur þar margt til. Bæði er það að rjúpan þykir fallegur fugl, hvít á vetrum og móbrún með hvíta vængi á sumrum, og einnig hitt að rjúpan hefur verið mönnum ráðgáta og er enn, og koma þar einkum til hinar sérkenniiegu stofnsveiflur henn- ar, en frá því að menn fóru að gera skýrslur um útflutning á rjúpum, árið 1864, eru til skjalfestar heimildir um sveiflur í stofninum. Megin reglan hefur verið sú að rjúpnastofninn hefur náð hámarki og hrunið tíunda hvert ár, en tvær undantekningar eru þó frá því, eins og síðar greinir. Hins vegar virtist sem í fyrra væri að „rofa til“ í rjúpnastofninum, en þá virtist sem um væri að ræða allmikla upp- sveiflu í stofninum um land allt og var fjölgunin talin nema nálægt 50%. Var það von margra, ekki síst veiðimanna að fjölgunin héldi áfram í ár, og virðist svo vera á Norðausturlandi, en hinsvegar virðist stofninn standa í stað á Suður- og Vesturlandi, hvað sem veldur. Vegna langvarandi stöðugleika rjúpnastofnins undanfarin ár, þ.e. allt þangað til á síðasta ári, hefur mönnum verið tíðrætt um hvort ekki ætti að friða rjúpuna. Hafa menn haft þá skoðun af ýmsum orsökum. Einhver hluti veiðimanna taldi, og telur kannski enn, að eina leiðin til að rjúpunni fjölgi sé að friða hana um nokkurra ára skeið. Síðan eru aðrir sem hafa viljað, og vilja trúlega enn, friða fuglinn fyrir veiðimönnum, sem þeir álíta hina mestu varga, — morðóða, — sem ekkert kvikt megi sjá, og ekki fari rjúpnastofninn að rétta við fyrr en veiðum verði hætt og þá helst að eilífu. í þessari grein er leitast við að segja frá þesum fugli, sem lengi hefur staðið styrr um, og rann- sóknum sem á rjúpum hafa verið gerðar. Er greinin byggð á ritgerð eftir Arnþór Garðarsson líffræð- ing, sem um árabil hefur stundað rannsóknir á rjúpum. Ritgerðin birtist í riti Landverndar, Fuglar, sem út kom árið 1982. Eini villti hænsnfuglinn Rjúpan, sem er allstór fugl, veg- ur að jafnaði um hálft kíló og er karrinn — karlfuglinn — yfirleitt ívið þyngri, eða sem nemur um 50 grömmum. Rjúpan er eini villti fuglinn íslenski sem er af ættbálki hænsnfugla, en til þess ættbálks teljast um 240 tegundir alls. Ber í þeim flokki fyrst að nefna hin góð- kunnu hænsni, kalkúna, ýmsa fas- ana og fleiri tegundir. Rjúpan er af ætt orra, en heimkynni þeirra eru einkum fjöll, heiðar og skógar, eins og menn þekkja af íslensku rjúpunni. Talið er að rjúpan hafi numið iand hér frá Grænlandi, þar sem íslenska rjúpan er í útliti mjög lík rjúpnastofnum Norður-Ameríku og Grænlands. Þá hafa oftsinnis flækst hingað til lands rjúpur fá Norðaustur Grænlandi á vetrum og einnig hafa grænlenskar rjúpur náðst á skipum út af landinu um vetrartímann. Grænlensku rjúp- urnar má þekkja frá hinum ís- lensku á litnum og má m.a. nefna að fjaðurstafirnir í handflugs- fjöðrunum eru hvítir í stað svartra hjá íslensku rjúpunni, en einnig er hitt að grænlensku fugl- arnir eru mun feitari en hinir ís- lensku. Hins vegar sker það að jafnaði úr að fyrri hluta vetrar má finna grænlenska steina í fóörnum fuglanna. Heyrst hefur sú kenning að íslenskar rjúpur flækist til Grænlands, eða fari jafnvel þang- að í stórum flokkum, en ekki hafa slíkar kenningar verið sannaðar. Skiptir þrisvar litum Flestum er kunnugt um að rjúp- an íslenska skiptir litum eftir árstímum og dregur þannig dám af umhverfi sínu og klæðist þann- ig „felulitum". Veitir þetta rjúp- unni vörn gegn ránfuglum, en fálkinn hefur frá aldaöðli reynst rjúpunni skeinuhættur, enda er hún megin uppistaðan í æti hans. Rjúpan skiptir um lit þrisvar sinnum á ári. Klæðist hún sumar- búningi, haustbúningi og vetrar- búningi. Búningur sumarsins og haustsins er brúnn og er karrinn einkum dökkur á haustin, en vetr- arbúningurinn er að mestu hvítur, eins og flestum er kunnugt. Þó eru stélfjaðrir rjúpunnar svartar allt árið og flugfjaðrir vængjanna hvítar. Fyrri hluta vetrarins er rós- rauður blær á hinum hvíta bún- ingi fuglsins, en það stafar af lit- arefninu karótínóðíi, en það er í fæðu rjúpunnar. Þá eru fætur og tær rjúpunnar „loðnir", en fiðrið á fótunum er til þess að varna hita- tapi, en auk þess auðveldar þessi fótabúnaður fuglinum gang í snjó. Loks má geta þess að andlitsfall rjúpna er talsvert breytilegt. Eru karrarnir með svartan borða frá nefi og aftur um augun, en einung- is sumir kvenfuglar eru með slík- an taum. Er slik gríma algengari hjá ungum kvenfuglum en göml- um. Þá á rjúpan það sammerkt með mörgum öðrum hænsnfuglum að hún er með nakta kamba, en kambarnir, sem eru yfir augunum eru einkum áberandi hjá körrun- um á vorin, þegar þeir stíga í vænginn við kvenfugla. Þenja þeir þá kambana, sem eru mjög æða- ríkir, út með blóðþrýstingi og standa þeir oft upp yfir hvirfilinn, svo að það virðist lýsa af þeim, kvenþjóðinni til mikillar ánægju. Lífréttur fálkans Eins og áður gat, er rjúpan fálk- anum mikilvæg hér á landi sem annarstaðar og segja má að hún sé lífréttur hans. Fer fjöldi fálka og viðkoma mjög eftir stofnstærð rjúpunnar, en ekki er talið að fálk- ar hafi nein veruleg áhrif á stærð rjúpnastofnsins, undir öllum venjulegum kringumstæðum. Drepa fálkar einkum karra á vor- in og ungar rjúpur á haustin, en þessir hópar skipta einmitt minnstu um heildarviðgang stofnsins. Rjúpnakarrar verða einkum fyrir barðinu á fálkanum á tímabilinu mars til júní, en þá skera þeir sig talsvert úr landslag- inu, en ungamorðin standa yfir- leitt frá júlílokum og fram eftir vetri. Þegar vetur ríkir og snjór er yfir kjörlendi rjúpunnar fellur hún mjög vel inn í landslagið og á þá fálkinn erfitt með að finna rjúpuna. Sama vandamál er vel- þekkt meðal veiðimanna. Af öðrum þeim fuglum sem rjúpur veiða má nefna hrafninn, en í þeirra hlut falla einkum veik- ir fuglar og lasburða og svo hræ, en á vorin er hrafninn skæður eggjaþjófur. Ekki er talið að hrafnar hafi nein teljandi áhrif á stofninn. Þá má nefna að refur veiðir rjúpu, en hann drepur rjúpur allt árið. Á vorin drepur refurinn oft kvenfugla á hreiðrum og étur þá einnig egg og unga. Undir vissum kringumstæðum gæti refurinn haft áhrif á stofninn, en þá þyrfti rjúpnastofninn að vera í miklu lágmarki. Skæðasti óvinur rjúpunnar er þó maðurinn, en hann veldur miklum afföllum meðal hennar. Um tíma var mikið flutt út af rjúpum, en mest kvað að útflutn- ingi árið 1927, en þá voru fluttir út um 250 þúsund fuglar, en næstu þrjú árin á undan var útflutning- urinn litlu minni. Á fyrri hluta þessarar aldar stunduðu allnokkr- ir rjúpnaveiðar eins og hreina at- vinnu, en nú eru rjúpnaveiðar í flestra augum skemmtileg íþrótt og heilsubót. Kvenfuglinn lauslátur Það var áður nefnt að rjúpna- karrar yrðu mjög fyrir barðinu á fálkanum á vorin, en það stafar af því að karrinn helst hvítur langt fram eftir vori og er því mjög áberandi í landinu. Dreifa karr- arnir sér um varplöndin og verja umráðasvæði sín af hörku fyrir ágangi annarra rjúpnakarra. Virðist því hvíti liturinn einkum vera ætlaður til auglýsingar, til að gera fuglinn áberandi, þannig að engum öðrum körrum dyljist að viðkomandi svæði sé frátekið. Vegna hins áberandi litar er karr- inn fálkanum auðveld bráð og eru þess dæmi að allt að þriðjungur karra á ákveðnu svæði sé drepinn af fálkum. Þrátt fyrir þetta álag er ekki talið að mikil afföll rjúpnakarranna hafi áhrif á stofnstærð rjúpna. Þó rjúpnakarrarnir sperri sig hver framan í annan um varptím- ann og séu staðbundnir hver á sínu yfirráðasvæði, þá verður hið sama ekki sagt um kvenfuglana. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 21 Þórtmörk í maimánuði síðasta stofnhrun rjúpunnar hófst með miklum ungadauða af völdum veðurs í júlímánuði árið 1966. Mikilvirk jurtaæta Það er talið vafalaust að rjúpnastofninn getur takmarkast af fæðuskorti vegna eigin ofbeitar þegar stofninn er í hámarki, en hins vegar er ekki vitað hve lengi gróðurinn er að ná sér eftir slíka ásókn. Ekki er heldur vitað hvort áhrifa ofbeitar gætir lengi á gróðri eftir rjúpnahámörk. Hugsanlegt er talið að rándýr hafi veruleg áhrif á viðgang stofnsins, en aðeins þegar hann er í lágmarki. Einnig er hugsanlegt að veiðar hafi sömu áhrif undir sömu kringumstæðum, það er ef veiðiálag er mjög mikið og stofn- inn óvenjulítill. Þó það kunni að koma mörgum á óvart, er rjúpan mikilvirk jurta- æta, einkum í hámarksárum og valda stofnsveiflur rjúpunnar því að gróðurinn fær hvíld með nokkru millibili og getur náð sér aftur eftir ofbeitina I hámörkum stofnsins. Hins vegar getur Arnþór Garð- arsson þess, að stofnsveiflur rjúp- unnar séu á meðal flóknustu og forvitnilegustu fyrirbæra náttúr- unnar og eigi menn langt í land með að skilja þær til nokkurrar hlítar. Varla sé við því að búast að skilningur á sveiflunum aukist verulega, nema þær séu kannaðar um langan tíma og í samhengi við marga aðra þætti vistkerfisins ásamt umfangsmikilli tilrauna- starfsemi. Heppilegra að byrja veiðar fyrr Veiðitíminn á rjúpum hefst Kvenfugl á hreiðri upp við Skjaldbreið. Myndin er tekin í júnímónuði. Ljósmynd/ Grétar Eiríksson Kvenfuglinn er að verulegu leyti óháður landamerkjum karranna og hjá þeim á mikið lauslæti sér stað. Þegar einn karri fellur í val- inn fyrir fálka eða af öðrum orsökum, er hans landsvæði sam- stundis yfirtekið af nágranna- karranum, sem um leið tekur sam- an við ekkju hins látna. Eftir því sem á vorið líður eykst fjölkvæni karranna og fleiri karrar láta líf- ið, en þetta lauslæti rjúpnanna leiðir til þess að nánast allir kvenfuglarnir verpa eggjum og kom upp ungum að einhverju leyti. Á vorin eru það karrarnir sem byrja á því að helga sér svæði, en um hálfum mánuði síðar mæta kvenfuglarnir til leiks. Varp fugl- anna hefst í maílok og þegar kom- ið er fram í fyrstu viku júnímán- aðar er talið að flestir fuglarnir séu fullorpnir. Eru egg rjúpunnar 10—11 að meðaltali, en eggin geta verið allt frá 8 og upp í 16 í hreiðri. Það tekur rjúpuna um þrjár vikur að unga út, en ungarn- ir skríða úr eggjunum síðla í júni- mánuði. Það tekur ungana um það bil tíu vikur að ná fullum vexti, en fullri þyngd hafa ungarnir náð f byrjun september. Hins vegar tek- ur það ungana ekki nema tfu daga að verða fleygir, en það skapast af því að vegna hins öra vaxtar þurfa ungarnir að ná mikilli yfirferð vegna fæðuöflunar. Lifa ungarnir einkum á skordýrum og kornsúru- laukum í upphafi, en sú fæða er mjög næringarrík. Smám saman safnast ungfuglinn á staði þar sem gnótt er fæðu, en rjúpnakarr- arnir blandast hins vegar ekki hópnum, heldur halda sig stakir eða fáeinir saman, en þegar ung- arnir eru komnir úr eggjunum hætta karrarnir innbyrðis stríði sínu. Tíu ára stofnsveifla Það hefur löngum verið ein- kennandi fyrir rjúpnastofninn að fjöldi fuglanna hefur sveiflast til, en slfkar sveiflur eru og einkenn- andi fyrir ýmsar aðrar tegundir jurtaæta. Nefna má að hérastofn- ar hafa tíu ára sveiflu, ýmsir rjúpnastofnar hafa sveiflu á bil- inu þrjú til tíu ár, stofnar stúf- músa og læmingja sveiflast á þriggja til fjögurra ára fresti. Hafa þessar sveiflur mikil áhrif á stofna þeirra rándýra og ránfugla sem á þeim lifa og einnig hefur verið hægt að sýna fram á sam- svarandi breytingar á þeim gróðri sem jurtaæturnar hafa viðurværi sitt af. íslenski rjúpnastofninn hefur yfirleitt verið með tíu ára stofn- sveiflu, hann hefur náð hámarki, hrunið og náð öðru hámarki á tíu ára tímabili. Tvær undantekn- ingar hafa þó verið á þessum sveiflum stofnsins. Sú fyrri var á árunum 1900—1920, en þá var rjúpnastofninn í langvarandi há- marki, en frá árinu 1968 hefur stofninn haldist stöðugur og til- tölulega lítill, eða allt þangað til 1982, þegar veruleg fjölgun mæld- ist um land allt, eða um 50%. Hins vegar virðist hafa komið aftur- kippur í fjölgunina í ár hvað Vest- urland og Suðurland varðar, en áframhaldandi fjölgun hefur átt sér stað á Norðausturlandi, en það sýna talningar sem gerðar hafa verið á vissum svæðum þar. Nokkrar kenningar eru uppi um það, hvað veldur sveiflum í rjúpnastofnum og öðrum dýra- og fuglastofnum. Má þar fyrst nefna að árferði er talið hafa áhrif á stofnstærðina, í öðru lagi er litið til fæðukeðja í vistkerfinu, þ.e.a.s. samspils gróðurs, jurtaætu og rándýrs. Loks er bent á að sýnt hefur verið fram á reglubundnar breytingar á erfðaeiginleikum og atferli með breyttum þéttleika stofna. Arnþór Garðarsson líf- fræðingur telur í ritgerð sinni, að allar eigi þessar kenningar nokk- urn rétt á sér. Varðandi íslenska rjúpnastofn- inn er talið ljóst að tíðarfar al- mennt hefur veruleg áhrif á við- gang stofnsins. Bendir hið lang- varandi hámark í stofninum á árabilinu 1900—1920 til þess, en þá voru einnig stofnar æðarfugls, svo og anda og silungs í Mývatni í hámarki. Þá ber þess að geta að samkvæmt núgildandi Iögum þann 15. október, en áður fyrr var veiðitíminn mun lengri en nú er, en rjúpur eru nú veiddar til 22. desember. Ekki er talið að veiðar á haustin hafi alla jafna áhrif á stærð stofnsins næsta vor, vegna þess að aukning dauðsfalla af einni orsök leiðir til minnkandi dauðsfalla af annarri orsök. Virðast heildar- dauðsföllin ákvarðast af öðrum þáttum en einstökum dauðsföll- um. Talið er að mun heppilegra sé að byrja rjúpnaveiðar fyrr en nú er gert, en það er vegna mikillar veltu i rjúpnastofninum og mikilla og hraðra affalla unga á haustin. Með því myndi rjúpnastofninn nýtast mun betur en nú er, án þess að áhrif veiða ykjust. Fyrir nokkrum árum komu fram tillögur um breytingu á veiðitíma, sem miðuðu að því að færa upphaf veiðanna lengra fram á veturinn. Telja sérfræðingar fulla ástæðu til þess að vara við slíkum hugmyndum, þar sem slíkt myndi leiða til minnkandi nýt- ingar á stofninum og hugsanlega auka áhrif veiða á hann. Við fyrstu sýn geta veiðarnar virst ráðandi þáttur í afföllum rjúpunnar og hafa menn gert sér hugmyndir um að með friðun væri hægt að rétta stofninn við úr þeirri lægð sem hann hefur verið í. Hægt er að meta viðkomu og afföll rjúpna og byggjat þær aðferðir á því að meta þéttleika, viðkomu og dauðsföll á vissum athugunar- svæðum yfir sumartímann. Þá er einnig litið til aldurshlutfalls í afla veiðimanna á haustin og fjölda og aldursskiptingar á at- hugunarsvæðunum á vorin. Sýna þær athuganir sem gerðar hafa verið, að árleg dánartala fullorð- inna rjúpna er um 50% að jafnaði, en fer upp í 70% í fækkunarárum. Hvað ungfuglana varðar er fækk- unin á fyrsta ári um 80% í fjölg- unarárum, en fer upp í 95% í fækkunarárum. Heildarafföll rjúpnastofnsins á tímabilinu 1. ágúst til 1. maí eru um 62% í þeim árum sem fjölgun er mest. Hins vegar eru afföllin um 76% þegar - stofninn er stöðugur á milli ára, eins og frá árinu 1968, en afföllin ná um 88% þegar fækkun verður um 50% á milli ára, eins og átt hefur sér stað þegar hrun hefur orðið í rjúpnastofninum. Á veiði- tíma virðast afföllin vera um 20% af öllum vetrarafföllum og er talið óvarlegt að áætla hlutdeild veið- innar meiri en 10—15% af árlegri dánartölu rjúpnanna. Af því má sjá að veiði hefur tiltölulega lítil áhrif á rjúpnastofninn. í hraunum og háfjalla- urðum á haustin Rjúpan lifir í hópum frá því í júlímánuði og fram til mánaða- móta apríl og maí, og eru fyrstu hópar rjúpnanna á sumrin sam- ansettir af ungum og kvenfuglum. Gegna kvenfuglarnir því hlutverki að vernda ungana fyrir veðrum og óvinum, eða þar til ungarnir verða óháðir mæðrunum, en þá eru þeir um mánaðar gamlir. Fara þá að myndast ört stækkandi hópar rjúpna. Síðla í ágústmánuði fara fyrstu rjúpurnar til fjalla, en þar er um fullorðna fugla að ræða. Safnast þeir í urðir og snjódældir og halda sig oft við efstu fjallseggjar. í septembermánuði fylgja síðan fyrstu ungarnir í kjölfarið og um mánaðamótin september-október eru flestar rjúpur komnar til fjalls. Áður en snjór er orðinn stöðugur, eru fuglarnir í háfjalla- urðum og hraunum á daginn, en eiga náttstað í mólendi og fljúga þær oft langar leiðir í ljósaskipt- unum til og frá náttstað. Á daginn eru þær oft svo umsetnar fálkum að þær mega sig lítið hræra og geta því lítið nærst. En þegar rökkva tekur, vænkast hagur rjúp- unnar og geta þær þá nýtt sér beitilöndin svo til ótruflaðar af loftárásum fálkanna. Einnig auð- veldar það rjúpunni fæðuöflun þegar jörð er hvít og sama má segja um þoku. Kjörlendi rjúpunnar á haustin eru snjóþungar og raklendar heið- ar, oft 300—500 metra yfir sjávar- máli, þar sem mikið vex af korn- súru og smjörlaufi. Gamlir fuglar ríkjandi Þegar snjór liggur yfir rjúpna- svæðunum, fækkar ferðum rjúp- unnar til og frá náttbólum. Þær setjast smám saman að í snjó- dældum og grasvíðimóum og á öðrum þeim stöðum þar sem gnótt er fæðu. Yfirleitt verða þessir staðir undirlagðir af snjó um miðjan veturinn og flytja þá rjúp- urnar sig niður á láglendið á ný og hasla sér völl í kjarrlendi og í snjóléttum hlíðum og móum. Á vetrarferðum rjúpunnar fara gamlir fuglar jafnan fyrstir, en síðan koma ungfuglarnir í kjölfar- ið. Eru gömlu rjúpurnar dreifðari en ungfuglinn og í smærri hópum og veldur ferðahraði gömlu fugl- anna því að þeir ná alla jafna í betri beit en þeir ungu og því eru lífslikur þeirra meiri, og einnig eru eldri rjúpur yfirleitt í smærri hópum en ungfuglinn og því er minna um afföll í þeirra hópi af völdum manna og rándýra. Þá eru innan vetrarhópa rjúpnanna virð- ingarstigar og líklegt talið að þar séu gamlir fuglar ríkjandi og því virðist ýmislegt hjálpast að við það að draga úr afföllum gamalla rjúpna á kostnað ungfuglsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.