Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 34 Afmæli: Stefán Reykjalín byggingameistari Vinur minn og samstarfsmaður um langt skeið, Stefán Reykjalín byggingameistari á Akureyri, er 70 ára í dag, sunnudaginn 9. október. Það má nú segja, að hratt fljúgi stund, því mér finnst eins og það hafi gerst í gær, þegar vinir og kunningjar Stefáns fögnuðu hon- um sextugum í eftirminnilegri veislu, sem hann hélt þá á heimili sínu. Þó er liðinn heill áratugur og hefur vissulega margt gerst og breyst á þeim tíma. Það sem mér finnst þó ekki hafa breyst síðan er hinn síungi andi sem í manninum býr og gerir það að verkum að hann er alltaf léttur og hress. Það liggur jafnvel við að Stefán yngist með árunum að þessu leyti og að mínu mati eru þetta einhverjir bestu eiginleikar, sem hverjum manni eru gefnir. Og að fá slíka samverkamenn er ómetanlegt. Stefán fæddist á Akureyri fyrir sjötíu árum. Hann getur líka stát- að af því að vera fæddur í hjarta bæjarins því sá atburður átti sér stað í Brekkugötu 5, sem er í miðj- um miðbænum. Foreldrar hans voru Ingibjörg Bjarnadóttir og Guðmundur Olafsson, bygginga- meistari, en þau voru ekki gift og var Stefán þess vegna tekinn í fóstur af konu Guðmundar, en hún var Svanfríður Jónsdóttir. Með þeim flutti hann 2ja ára gamall að Stóra-Holti í Fljótum og ólst þar upp til 12 ára aldurs. Að vera al- inn upp í Fljótum í Skagafirði býr hver maður að allt sitt líf, það get- ur sá er þessar línur ritar vottað. Þar var ég svo heppinn að vera í sveit til fjölda ára, þar var mann- lífið einstakt og náttúrufegurð mikil. Enda er það svo að þessi ár hefur Stefán minnst á við mig mjög oft og á frá þeim margar skemmtilegar minningar. Ekki gerðist hann þó Fljótamaður til frambúðar því fjölskyldan flutti til Akureyrar aftur árið 1926 þar sem Guðmundur gerðist umsvifa- mikill byggingameistari. Árið 1933 deyr Svanfríður fóstra hans og þá er það sem foreldrarnir ganga í hjónaband og taka upp búskap saman. Hefur Stefán það oft í flimtingum, að hann hafi fæðst óskilgetinn, en orðið skil- getinn þegar hann stóð á tvítugu. Stefán gekk í Menntaskólann á Akureyri og varð stúdent vorið 1938. Ekki varð þó meira úr bók- legu námi, en hann hafði starfað mikið með föður sinum að bygg- ingum og tók nú að sér bygginga- eftirlit í sveitum fyrir Kaupfélag Eyfirðinga. Vegna allra þessara starfa öðlaðist hann meistararétt- indi sem húsasmiður án þess að þurfa að fara í eiginlegt nám og árið 1943 hóf hann sjálfstæðan rekstur í byggingariðnaði, rekstur sem hann rak farsællega í rúm- lega 30 ár. Eru margar stærri byggingar á Akureyri byggðar af Stefáni og hans mönnum og má þar t.d. nefna Landsbankann, Út- vegsbankann, Búnaðarbankann, Amaro og Heimavist Menntaskól- ans. Þær eru síðan ótaldar allar íbúðirnar, smáar og stórar, sem Stefán hefur byggt og selt og það er mér kunnugt um að hann var annálaður fyrir dugnað og áreið- anleika. Þannig munu skólameist- ararnir báðir, Sigurður og Þórar- inn, ætíð hafa ieitað til Stefáns, þegar þeir þurftu að fá bygg- ingarleg ráð og síðan byggði hann að þeirra undirlagi Heimavist Menntaskólans, eins og áður er getið. Og til marks um traust Þór- arins á Stefáni og vissu um að hann gæti leitt nemendur á betri brautir þá voru menn um tíma sendir í vinnu hjá honum þegar út af reglum skólans hafði verið brugðið. Þetta var kallað að fara á Brimarhólm og er mér minnisst- ætt, þegar einn ágætur skólabróð- ir minn lenti þar í vikutíma. Er hann nú virðulegur hæstaréttar- lögmaður á Akureyri og telur vist- ina hjá Stefáni með betri köflun- um í uppeldi sínu. Stefán Reykjalín gerðist fram- sóknarmaður. Sumum reynist oft erfitt að henda reiður á því hvaða stefna hún sé þessi framsóknar- stefna, hvort þetta séu íhalds- menn eða sósíalistar og allt þar á milli. Ég segi stundum að Stefán sé einn af betri íhaldsmönnum, sem ég hefi hitt, en eitt er víst, að samvinnuhugsjónin er honum í blóð borin og hann er einlægur samvinnumaður. í bæjarstjórn- arkosningunum 1954 var Stefán í fimmta sæti á lista Framsóknar- flokksins, en þá fékk flokkurinn þrjá menn kjörna. Atvikin höguðu því svo, að tveimur árum síðar fluttust tveir af aðalmönnunum úr bænum og upp frá því átti Stefán setu í Bæjarstjórn Akureyrar til ársins 1978 eða í 22 ár. Þær eru ekki margar nefndirnar á vegum bæjarins, sem Stefán hefur ekki setið í í lengri eða skemmri tíma. Þó er byggingarnefnd sú sem hann átti lengst setu i eða 25 ár, lengst af sem formaður. Formaður Hafnarstjórnar hefur hann verið frá 1962 til þessa dags og um ára- bil hefur hann átt sæti í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga. Stefán hefur verið umdeildur, eins og alltaf er um þá, sem gefa sig að opinberum málum, en ætíð hefur hann leitast við að gera það sem honum hefur þótt rétt og það sem hann hefur talið bæjarfélaginu fyrir bestu. Það veit sá sem þetta ritar af löngum og nánum kynnum við þann sem um er rætt. í árslok 1971 urðu þáttaskil í lífi Stefáns Reykjalín. Þá er hann skipaður formaður í stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri, sem þá hafði átt við mikla rekstr- ar- og fjárhagserfiðleika að etja um skeið. Sýnir þetta hvert traust var borið til Stefáns að fela hon- um þetta verkefni, því mjög mikil óvissa var um framtíð þessa fyrir- tækis og miklar efasemdir um að hægt væri að koma því á réttan kjöl. Með skipun Stefáns í þetta embætti hófst það samstarf okkar, sem síðar leiddi til einlægr- ar vináttu og trúnaðar, sem aldrei hefur borið skugga á. Þarna sýndi hann kjark, svo sem hans var von, með því að takast á hendur þetta áhættusama starf. Hann hafði öðlast viðurkenningu í öllum fyrri störfum sínum og hann hafði miklu að tapa ef þessi tilraun heppnaðist ekki. Mér verður oft hugsað til þessara ára. Aldrei lét Stefán neinn bilbug á sér finna og vol og víl var nokkuð sem ekki komst að á þeim bæ. Bjartsýnin hafði alltaf yfirhöndina og eins og sagt var í upphafi þessarar grein- ar voru þetta þeir kostir, sem stjórnarformaður undir þessum kringumstæðum þurfti að vera búinn. Það hefur sennilega aldrei komið nægilega skýrt fram hversu mikinn þátt Stefán átti í því að smám saman fór að birta til í raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar _____________ ________ _ húsnæöi í boöi Iðnaðarhúsnæði til leigu Til leigu 700 fm upphitaö iðnaðarhúsnæöi í Örfirisey. Góð aöstaða fyrir starfsfólk. Upplýsingar í síma 19433, kvöldsími 77877. Skrifstofuherbergi Eitt skrifstofuherbergi er til leigu í miðbæn- um til 1. september 1984. Nánari upplýsingar í síma 13535. Við Síðumúla Fullbúið ca. 300 fm verslunarhúsnæði á götu- hæð til leigu. Malbikuð lóö og bílastæöi. Uppl. í símum 33982 og 31080. fundir — mannfagnaöir Hafnarfjörður Samkomur í opnu húsi hefjast í íþróttahúsinu við Strandgötu fimmtudaginn 13. október kl. 14.00. Stjórn Styrktarfélags aldraðra. Frá Seyðfirðingafélaginu í Reykjavík Vinafagnaður félagsins veröur í Domus Med- ica sunnudaginn 9. október frá kl. 3—6. Seyðfirðingar og gestir mætið vel og stund- víslega. húsnæöi óskast Árbæjarhverfi Verslunar- og þjónustufyrirtæki óskar eftir aö taka á leigu verslunarhúsnæöi í Árbæj- arhverfi. Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 17. október nk. merkt: „Á — 8975“. Skrifstofuhúsnæði óskast Óska að taka á leigu 50—100 fm skrifstofu- húsnæði á jarðhæð. Æskileg staðsetning Múlahverfi eöa Skeifan og víðar. Næg bílastæði þurfa að vera fyrir hendi. Tilboð sendist augl.deild Mbl. fyrir 14. okt. merkt: „Skrifstofuhús — 8698“. íbúð óskast Við óskum eftir að taka á leigu 2—3 her- bergja íbúð fyrir einn af starfsmönnum okkar, sem verður ein í heimili. Upplýsingar í síma 29166 og 86734. fA KÓRUND" k LAUGAVEGUR 15 P.o. BOX 622 ^ 121 REYKJAVlK ICELAND SÍMI 29166 Verslunarhúsnæði óskast Viö leitum aö hentugu húsnæði fyrir fata- verslun á jarðhæð einhversstaðar í nágrenni duðciurb UKKar Durgarium za Frekari uppl. í síma 81699.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.