Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983
34
Afmæli:
Stefán Reykjalín
byggingameistari
Vinur minn og samstarfsmaður
um langt skeið, Stefán Reykjalín
byggingameistari á Akureyri, er
70 ára í dag, sunnudaginn 9.
október. Það má nú segja, að hratt
fljúgi stund, því mér finnst eins og
það hafi gerst í gær, þegar vinir og
kunningjar Stefáns fögnuðu hon-
um sextugum í eftirminnilegri
veislu, sem hann hélt þá á heimili
sínu. Þó er liðinn heill áratugur og
hefur vissulega margt gerst og
breyst á þeim tíma. Það sem mér
finnst þó ekki hafa breyst síðan er
hinn síungi andi sem í manninum
býr og gerir það að verkum að
hann er alltaf léttur og hress. Það
liggur jafnvel við að Stefán yngist
með árunum að þessu leyti og að
mínu mati eru þetta einhverjir
bestu eiginleikar, sem hverjum
manni eru gefnir. Og að fá slíka
samverkamenn er ómetanlegt.
Stefán fæddist á Akureyri fyrir
sjötíu árum. Hann getur líka stát-
að af því að vera fæddur í hjarta
bæjarins því sá atburður átti sér
stað í Brekkugötu 5, sem er í miðj-
um miðbænum. Foreldrar hans
voru Ingibjörg Bjarnadóttir og
Guðmundur Olafsson, bygginga-
meistari, en þau voru ekki gift og
var Stefán þess vegna tekinn í
fóstur af konu Guðmundar, en hún
var Svanfríður Jónsdóttir. Með
þeim flutti hann 2ja ára gamall að
Stóra-Holti í Fljótum og ólst þar
upp til 12 ára aldurs. Að vera al-
inn upp í Fljótum í Skagafirði býr
hver maður að allt sitt líf, það get-
ur sá er þessar línur ritar vottað.
Þar var ég svo heppinn að vera í
sveit til fjölda ára, þar var mann-
lífið einstakt og náttúrufegurð
mikil. Enda er það svo að þessi ár
hefur Stefán minnst á við mig
mjög oft og á frá þeim margar
skemmtilegar minningar. Ekki
gerðist hann þó Fljótamaður til
frambúðar því fjölskyldan flutti
til Akureyrar aftur árið 1926 þar
sem Guðmundur gerðist umsvifa-
mikill byggingameistari. Árið
1933 deyr Svanfríður fóstra hans
og þá er það sem foreldrarnir
ganga í hjónaband og taka upp
búskap saman. Hefur Stefán það
oft í flimtingum, að hann hafi
fæðst óskilgetinn, en orðið skil-
getinn þegar hann stóð á tvítugu.
Stefán gekk í Menntaskólann á
Akureyri og varð stúdent vorið
1938. Ekki varð þó meira úr bók-
legu námi, en hann hafði starfað
mikið með föður sinum að bygg-
ingum og tók nú að sér bygginga-
eftirlit í sveitum fyrir Kaupfélag
Eyfirðinga. Vegna allra þessara
starfa öðlaðist hann meistararétt-
indi sem húsasmiður án þess að
þurfa að fara í eiginlegt nám og
árið 1943 hóf hann sjálfstæðan
rekstur í byggingariðnaði, rekstur
sem hann rak farsællega í rúm-
lega 30 ár. Eru margar stærri
byggingar á Akureyri byggðar af
Stefáni og hans mönnum og má
þar t.d. nefna Landsbankann, Út-
vegsbankann, Búnaðarbankann,
Amaro og Heimavist Menntaskól-
ans. Þær eru síðan ótaldar allar
íbúðirnar, smáar og stórar, sem
Stefán hefur byggt og selt og það
er mér kunnugt um að hann var
annálaður fyrir dugnað og áreið-
anleika. Þannig munu skólameist-
ararnir báðir, Sigurður og Þórar-
inn, ætíð hafa ieitað til Stefáns,
þegar þeir þurftu að fá bygg-
ingarleg ráð og síðan byggði hann
að þeirra undirlagi Heimavist
Menntaskólans, eins og áður er
getið. Og til marks um traust Þór-
arins á Stefáni og vissu um að
hann gæti leitt nemendur á betri
brautir þá voru menn um tíma
sendir í vinnu hjá honum þegar út
af reglum skólans hafði verið
brugðið. Þetta var kallað að fara á
Brimarhólm og er mér minnisst-
ætt, þegar einn ágætur skólabróð-
ir minn lenti þar í vikutíma. Er
hann nú virðulegur hæstaréttar-
lögmaður á Akureyri og telur vist-
ina hjá Stefáni með betri köflun-
um í uppeldi sínu.
Stefán Reykjalín gerðist fram-
sóknarmaður. Sumum reynist oft
erfitt að henda reiður á því hvaða
stefna hún sé þessi framsóknar-
stefna, hvort þetta séu íhalds-
menn eða sósíalistar og allt þar á
milli. Ég segi stundum að Stefán
sé einn af betri íhaldsmönnum,
sem ég hefi hitt, en eitt er víst, að
samvinnuhugsjónin er honum í
blóð borin og hann er einlægur
samvinnumaður. í bæjarstjórn-
arkosningunum 1954 var Stefán í
fimmta sæti á lista Framsóknar-
flokksins, en þá fékk flokkurinn
þrjá menn kjörna. Atvikin höguðu
því svo, að tveimur árum síðar
fluttust tveir af aðalmönnunum úr
bænum og upp frá því átti Stefán
setu í Bæjarstjórn Akureyrar til
ársins 1978 eða í 22 ár. Þær eru
ekki margar nefndirnar á vegum
bæjarins, sem Stefán hefur ekki
setið í í lengri eða skemmri tíma.
Þó er byggingarnefnd sú sem
hann átti lengst setu i eða 25 ár,
lengst af sem formaður. Formaður
Hafnarstjórnar hefur hann verið
frá 1962 til þessa dags og um ára-
bil hefur hann átt sæti í stjórn
Hafnasambands sveitarfélaga.
Stefán hefur verið umdeildur, eins
og alltaf er um þá, sem gefa sig að
opinberum málum, en ætíð hefur
hann leitast við að gera það sem
honum hefur þótt rétt og það sem
hann hefur talið bæjarfélaginu
fyrir bestu. Það veit sá sem þetta
ritar af löngum og nánum kynnum
við þann sem um er rætt.
í árslok 1971 urðu þáttaskil í lífi
Stefáns Reykjalín. Þá er hann
skipaður formaður í stjórn
Slippstöðvarinnar á Akureyri,
sem þá hafði átt við mikla rekstr-
ar- og fjárhagserfiðleika að etja
um skeið. Sýnir þetta hvert traust
var borið til Stefáns að fela hon-
um þetta verkefni, því mjög mikil
óvissa var um framtíð þessa fyrir-
tækis og miklar efasemdir um að
hægt væri að koma því á réttan
kjöl. Með skipun Stefáns í þetta
embætti hófst það samstarf
okkar, sem síðar leiddi til einlægr-
ar vináttu og trúnaðar, sem aldrei
hefur borið skugga á. Þarna sýndi
hann kjark, svo sem hans var von,
með því að takast á hendur þetta
áhættusama starf. Hann hafði
öðlast viðurkenningu í öllum fyrri
störfum sínum og hann hafði
miklu að tapa ef þessi tilraun
heppnaðist ekki. Mér verður oft
hugsað til þessara ára. Aldrei lét
Stefán neinn bilbug á sér finna og
vol og víl var nokkuð sem ekki
komst að á þeim bæ. Bjartsýnin
hafði alltaf yfirhöndina og eins og
sagt var í upphafi þessarar grein-
ar voru þetta þeir kostir, sem
stjórnarformaður undir þessum
kringumstæðum þurfti að vera
búinn. Það hefur sennilega aldrei
komið nægilega skýrt fram hversu
mikinn þátt Stefán átti í því að
smám saman fór að birta til í
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
_____________ ________ _
húsnæöi í boöi
Iðnaðarhúsnæði til leigu
Til leigu 700 fm upphitaö iðnaðarhúsnæöi í
Örfirisey. Góð aöstaða fyrir starfsfólk.
Upplýsingar í síma 19433, kvöldsími 77877.
Skrifstofuherbergi
Eitt skrifstofuherbergi er til leigu í miðbæn-
um til 1. september 1984. Nánari upplýsingar
í síma 13535.
Við Síðumúla
Fullbúið ca. 300 fm verslunarhúsnæði á götu-
hæð til leigu. Malbikuð lóö og bílastæöi.
Uppl. í símum 33982 og 31080.
fundir — mannfagnaöir
Hafnarfjörður
Samkomur í opnu húsi hefjast í íþróttahúsinu
við Strandgötu fimmtudaginn 13. október kl.
14.00.
Stjórn Styrktarfélags aldraðra.
Frá Seyðfirðingafélaginu
í Reykjavík
Vinafagnaður félagsins veröur í Domus Med-
ica sunnudaginn 9. október frá kl. 3—6.
Seyðfirðingar og gestir mætið vel og stund-
víslega.
húsnæöi óskast
Árbæjarhverfi
Verslunar- og þjónustufyrirtæki óskar eftir
aö taka á leigu verslunarhúsnæöi í Árbæj-
arhverfi.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 17. október
nk. merkt: „Á — 8975“.
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Óska að taka á leigu 50—100 fm skrifstofu-
húsnæði á jarðhæð.
Æskileg staðsetning Múlahverfi eöa Skeifan
og víðar. Næg bílastæði þurfa að vera fyrir
hendi.
Tilboð sendist augl.deild Mbl. fyrir 14. okt.
merkt: „Skrifstofuhús — 8698“.
íbúð óskast
Við óskum eftir að taka á leigu 2—3 her-
bergja íbúð fyrir einn af starfsmönnum
okkar, sem verður ein í heimili. Upplýsingar í
síma 29166 og 86734.
fA KÓRUND"
k LAUGAVEGUR 15
P.o. BOX 622
^ 121 REYKJAVlK ICELAND
SÍMI 29166
Verslunarhúsnæði
óskast
Viö leitum aö hentugu húsnæði fyrir fata-
verslun á jarðhæð einhversstaðar í nágrenni
duðciurb UKKar
Durgarium za
Frekari uppl. í síma 81699.