Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983
rekstri Slippstöðvarinnar og nú er
þetta sterkt og rótgróið fyrirtæki.
Því hefur oft verið haldið fram og
það með nokkrum rétti, að samn-
ingar þeir sem stöðin gerði við
Einar ríka á sínum tíma hafi verið
sá vendipunktur, sem betri tíð
framundan byggðist á.
Einar skrifaði bréf til Stefáns á
sextugsafmæli hans fyrir 10 árum
og segir þar m.a. þetta: „Ég hef
sjaldan fyrirhitt á lífsleiðinni
jafneinlægan mann og þig og mik-
inn drengskaparmann. Ég er ekki
viss um að viðskipti mín við
Slippstöðina hf. hefðu orðið jafn-
mikil og þau urðu, ég vona okkur
báðum til mikillar blessunar, ef
þinna mannkosta hefði ekki notið
við.“ Þessi orð segja raunar allt
sem þarf að segja um þátt Stefáns
í því sem áunnist hefur á liðnum
árum. Við höfðum spurnir af því,
að skipin reyndust Einari vel og
þessi samskipti urðu Stefáni til
þeirrar blessunar, sem Einar von-
aðist svo eftir. Það er mér kunn-
ugt um, og mér er heldur ekki
grunlaust um það, að það hafi ein-
mitt verið þetta verkefni hans,
sem hefur gert það að verkum, að
mér finnst hann hafa yngst á þeim
árum, sem liðið hafa síðan hann
tókst það á hendur.
Stefán er og hefur verið gæfu-
maður. Öll þau verk, sem hann
hefur tekið að sér og honum hafa
verið falin, hefur hann leyst af
hendi á farsælan hátt. Þrátt fyrir
allt þetta var hans mesta gæfa að
eignast sína ágætu eiginkonu, sem
hann giftist árið 1940. Hún heitir
Guðbjörg Bjarnadóttir og er ætt-
uð frá Leifsstöðum í Eyjafirði.
Bubba er góð kona og frá henni
geislar góðvild og hjartahlýja.
Hún hefur verið Stefáni stoð og
stytta og það hefur hann kunnað
að meta. Hún varð sjötug fyrr á
þessu ári og kennir enn vélritun í
Gagnfræðaskólanum, en það hefur
hún gert um nær 30 ára skeið.
Þeim varð tveggja sona auðið,
sem báðir eru uppkomnir og fyrir
löngu farnir úr foreldrahúsum.
Bjarni fæddist árið 1949 og starf-
ar nú sem arkitekt á Akureyri, er
giftur Svövu Aradóttur og eiga
þau tvö börn. Guðmundur fæddist
árið 1953, er giftur Guðrúnu
Jónsdóttur og starfar sem fram-
kvæmdastjóri Apótekarafélags ís-
lands. Þau eiga eitt varn, en son
átti hann fyrir hjónaband. Þetta
eru ljúfir drengir og bera foreldr-
um sínum gott vitni.
Kæru vinir, Stefán og Bubba. Á
þessum tímamótum sendum við
Guðríður ykkur bestu kveðjur og
árnaðaróskir. Stefáni þakka ég
samvinnuna á liðnum árum og
vonast til þess, að við megum
njóta krafta hans sem lengst.
Gunnar Ragnars
Blaöburöarfólk
óskast!
Austurbær
Laugavegur frá 101 —171
JltotQgiiittMftfrife
35
Armstrong
Armafilex
pipueinangrun
Pípulagningamenn - Húsbyggjendur -
Lesið þessa auglýsingu!
Veruleg verðlækkun á ARMAFLEX-pípueinangrun hefir nú nýlega gert það að verkum, að
þessi vandaða framleiðsla á pípueinangrun, sem hingað til hefir hér á landi einungis verið
notuð til einangrunar í frystihúsum og verksmiðjum, mun nú halda innreið sína á sölumarkað
pípueinangrunar fyrir hverskonar húsahitun og kaldavatnsleiðslur.
FYRIRLIGGJANDI: slöngur — plötur — límbönd og tilheyrandi lím og málning.
Þ. ÞQRGRIHSSQN & C0
Hringið eftir ókeypis
sýnishorni-bæklingi.
Ármúla 16, Reykjavík, sími 38640.
Tökum notaða, vel með farna Lada-bíla upp í nýja.
Nýir
og notaðir
bílar
Stórkostlegir
greiðsluskilmálar
Lánum helming af veröi í 9 mánuði
Óverðtryggt
Verð frá kr.
271.000
Lada 1200 kr. 153.000
Lada 1300 kr. 142.000
Lada Safír kr. 162.000
Lada Canada kr. 192.000
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600