Morgunblaðið - 09.10.1983, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983
Eins dauöi er annars brauö — Stuö og
List hættar:
Ný hljómplötuverslun
tekur senn til starfa
Slegist um
gítarjöfur
Ygvie Malmsteen heitir hann
og er sænskur. Ef marka má
fregnir í meira lagi efnilegur gít-
arleikari í ofanálag.
Járnsíöan rakst fyrir stuttu á
litla klausu í enska poppritinu
Sounds, þar sem skýrt var frá
því aö tveir af kunnari söngvur-
um þungarokksins, Phil Mogg,
fyrrum í UFO, og Graham
Bonnet, áöur m.a. í Rainbow,
heföu háö mikiö kapphlaup um
aö ná í stráksa.
Báöir eru þeir kappar aö
safna liöi í nýjar sveitir og haföi
Bonnet vinninginn í þessu til-
viki. Veröur gaman aö sjá út-
komuna úr söfnun söngvar-
anrla.
Auglýsingar
inn í poppiö?
Auglýsingaheimurinn lætur
ekki aö sér hæöa. Ekki aöeins
eru íþróttafélög oröin háö stór-
fyrirtækjum á margan hátt,
heldur láta nú poppsveitir
glepjast af gylliboöum stórfyr-
irtækjanna hver á fætur ann-
arri.
Þaö nýjasta er, aö Suöur-
ríkjarokktríóiö 72 Top hefur
gert samning viö Schlitz-bjór-
fyrirtækiö um aö auglýsa vökv-
ann vinsæla viö hvert hugsan-
legt tækifæri. Gildir þá einu
hvort um er aö ræöa sjón-
varpsefni eöa tónleika. Fleiri
stjörnur eru reyndar meö bjór-
fyrirtæki upp á vasann.
Hver veit nema viö fáum aö
sjá Bubba Morthens eöa Hjört
Geirsson sprangandi um með
auglýsingu frá Kók eöa Pepsí.
Herdís Hallvarösdóttir — haatt
í Grýlunum.
Grýlur í hléi
til áramóta
Járnsíöunni barst fyrir
nokkrum dögum sá orörómur
til eyrna, aö Grýlurnar væru
búnar aö leggja upp laupana.
Þetta mun ekki allskostar rétt,
en hins vegar munu Grýlurnar
hafa afráöiö aö taka sér hlé til
áramóta.
Eins og skýrt var frá á Járn-
síðunni á sínum tima er Herdís
Hallvarösdóttir, bassaleikari
sveitarinnar, hætt og munar um
minna því hún var tvímælalaust
prímusmótor flokksins.
Þrátt fyrir mikinn ákafa gekk
leitin aö nýjum bassaleikara
eitthvaö treglega, enda ekki á
hverrar konu færi aö fyila skarö
Herdísar. Leitinni hefur nú veriö
hætt aö sinni á meðan þær
srjár, sem eftir eru, leggja höf-
uöiö i bleyti og hugsa ráö sitt.
Um tveggja ára skeið hefur
Halldór Ingi Andrésson, fyrrum
poppskríbent hér á Mbl. með
meiru, veitt hljómplötudeild Fálk-
ans forstööu. Járnsíðan hefur nú
fregnað, að Halldór sé búinn aö
segja starfi sínu lausu hjá Fálkan-
um og hyggist stofnsetja sína
eigin plötuverslun.
Eftir þvi sem næst veröur kom-
ist veröur verslun Halldórs Inga aö
Laugavegi 28, örstutt frá verslun-
um Fálkans og Skífunnar. Þá er
Gramm ekki langt undan. Stendur
til aö opna hana 7. október ef allt
fer aö óskum.
Eins dauöi er annars brauö og
sú speki á ekki síöur viö í poppinu
en á öörum sviöum. Tvær plötu-
verslanir eru nýlega búnar aö
leggja upp laupana, STUÐ-búöin
og List. Kemur fall þeirrar fyrr-
nefndu talsvert á óvart því rekstur
hennar virtist standa meö miklum
blóma.
Hins vegar hefur samdrátturinn í
plötusölu undanfarna mánuöi
vafalítiö þrengt lllilega að minni
búöunum jafnt sem þeim stærri.
Þær minni hafa einfaldlega minna
bolmagn til aö þrauka af erfiöa
tíma.
Pax Vobis
á uppleið
Hljómsveitin Pax Vobis hefur
á undan förnum vikum vakiö
talsverða athygli. Sveit þessi er
skipuö fjórmenningunum Ás-
geiri Sæmundssyni/söngur og
hljómborö, Skúla Sverrissyni/-
bassa, Þorvaldi Þorvalds-
syni/gítar og Sigurði Hannes-
syni/trommur.
Pax Vobis átti aö leika í Saf-
ari þrjú kvöld í þessari viku.
Þegar þetta er ritaö (fimmtu-
dagur 29. sept.) er ætlun um-
sjónarmanns Járnsíöunnar að
berja flokkinn augum eitthvert
umræddra kvölda. Umfjöllun
veröur því væntanlega að finna
á næstu Járnsíöu.
Ekki sakar aö geta þess í
lokin, aö Pax Vobis nýtur nú
aöstoöar bassaleikarans kunna
Halldórs Bragasonar, m.a. viö
hljóöstjórn. Halldór hefur áöur
leikiö t.d. í Big Nós Band.
Ágúst Ragnarason og Jón Ólafsson
Nýr Foss í
tónlistinni
Það er ekki bara ungviðið í poppinu, sem er iðið viö stofnun
hljómsveita. Nýjar sveitir skjóta upp kollinum eins og gorkúlur og enn
ein hefur nú látið til sín taka. Nefnist hún Foss.
Foss samanstendur af fjórum
köppum, sem allir eru gamalreynd-
ir í „bransanum”. Tveir þeirra
koma rakleiöis úr Start, Jón
Ólafsson, bassaleikari, og Ágúst
Ragnarsson, gítarleikari og söngv-
ari. Hinir tveir eru Axel Einarsson,
sem leikur á gítar og syngur vænt-
anlega meö Jóni og Ágúst, og
Ólafur Kolbeinsson.
V-Þjóðverjar stífir af
hamingju með strákana
Skyldu strákarnir i Mezzo fá aöra álíka tertu eftir Þýskalandsreisuna?
Uppselt á alla tónleika Mezzoforte:
Sveitinni boöiö á Montreaux-hátíöina á næsta ári
„Viö erum vitaskuld mjög ánægðir. Viðtökurnar hér í Þýskalandi
hafa verið ótrúlega góðar — miklu betri en bæöi viö og þýsku
samstarfsmennirnir geröu ráö fyrir. Við erum til dæmis aö spila hér
í Hamborg í kvöld fyrir fullu húsi og allir miðar, rúmlega 1000,
seldust upp fyrir nokkrum dögum,“ sagöi Jóhann Ásmundsson,
bassaleíkarí hljómsveitarinnar Mezzoforte, ( símtali viö blm. Morg-
unblaðsins frá Þýskalandi í gærkvöldi.
Þar hefur Mezzoforte veriö
tekiö opnum örmum. Þeir hafa
leikið fyrir fullu húsi í Múnchen,
Hannover, Berlín, Bonn og Boch-
um auk Hamborgar og eiga eftir
tvenna hljómleika þar t landi áöur
en þeir snúa aftur til Englands
þar sem þeir hafa nú fasta bú-
setu. „Þetta er gaman þegar
gengur svona vel,“ sagði Jóhann
Ásmundsson. „Áheyrendur
kannast viö tónlistina okkar, þaö
heyrum viö greinilega á hljóm-
leikunum, og eftir tónleikana í
Berlín á þriöjudagskvöldiö vorum
viö fengnir í klukkutíma útvarps-
þátt þar. Síöasta plata okkar hef-
ur verið hér á lista í þrettán vikur
og þetta viröist allt vera á upp-
leiö.“
Jóhann sagöi aö þeir félagar
heföu haft sérstaka ástæöu til aö
vera glaöir í gær, því þá barst
þeim boö um aö leika i upphafi
Montreaux-jazzhátíöarinnar
næsta sumar. Sú jazzhátíö er tal-
in helsta jazzhátíö heims og þar
leika aöeins færustu og virtustu
jazz- og funktónlistarmenn. „Viö
erum mjög hressír með þetta
eins og gefur aö skilja,“ sagöi
hann. „Viö vorum líka nýlega aö
fá fréttir af því aö platan okkar,
„Surprise Surprise", gengur vel í
Ástralíu og fleiri löndum. Viö
hlökkum því til aö senda frá
okkur nýju plötuna, sem viö
leggjum síöustu hönd á þegar viö
komum aftur til Englands. Þaö
veröur gaman aö sjá hverjar viö-
tökur hún fær. Þaö versta er að
viö erum á svo mikilli ferö alla
daga aö viö höfum varla tíma til
aö skoöa okkur um. Hér þurfum
viö aö keyra fimm og sex tíma
daglega á milli borga. Þaö veröur
því kærkomin hvíld þegar viö
komum loks heim til islands í
jólafrí — en þangað til höfum viö
meira en nóg aö gera,“ sagöi Jó-
hann Ásmundsson.