Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983
39
fclk í
fréttum
Týndi bæði gulli og skóm
— en fékk allt
saman aftur
+ Heimsmeistarinn í tugþraut,
Englendíngurinn Daley Thomp-
son, hefur nú tekið gleöi sína aft-
ur en á heimsmeiataramótinu (
Helsinki og eftir það varð hann
fyrir heldur leiðinlegum óhöpp-
um.
Þegar Thompson hafði unnlð
sigur í sinni grein í Helsinki varð
hann svo glaöur aö hann reif af
sér skóna, sérstaka lukkuskó, og
kastaði þeim fagnandi upp til
áhorfendanna. Hann haföi raunar
ekki fyrr sleppt skónum frá sér en
hann dauðsá eftir þeim en þótt
hann sárbændi áhorfendur um að
skila þeim aftur kom allt fyrir ekki.
Skórnir voru horfnir eins og dögg
fyrir sólu.
Thompson fékk nú gullið sitt og
hélt aö því búnu heim til London.
Þar vildi nú ekki betur til en svo,
að Thompson gieymdi medalíunni
í bifreiö kærustunnar og þegar
hann ætlaði aö vitja hennar var
hún horfin. Thompson var sem
sagt orðinn bæöi gulllaus og skó-
laus en frú Lukku þótti nú nóg
komið og ákvaö að grípa í taum-
ana.
Gullið hans Thompsons er nú
komið í leitirnar, fannst í póst-
kassa í London, og nokkrum dög-
um eftir það bárust honum tveir
bögglar — með skónum. Send-
endurnir voru tveir og lét aöeins
annar þeirra nafn síns getið.
Hannu Pihkala heitir hann og
Thompson sendi honum um hæl
ákaflega hjartnæmt þakkarbróf.
Daley Thompson, óheppni tugþrautarmeistarinn.
+ Yasuhiro Nakasone, forsætisráðherra Japana, er margt til lista
lagt, t.d. þykir hann ekki ónýtur málari og vann meira aö segja til
verðlauna fyrir eina mynd sína í fyrra. Þegar hann hefur staöiö (þv(
heilan dag að stjorna Japönum, sem að vísu láta vel að stjórn, þykir
honum gott aö grípa í pensilinn og segir, að þaö sé svo róandi fyrir
hugann.
Igor í
hryllings-
bókasafninu
+ Igor heitir hann, sem býður
fólk meira en velkomið í nýtt
hryllingsbókasafn, sem
opnaö hefur verið í borginni
Orlando í Bandaríkjunum.
Bókasafnið er hvorki meira
né minna en kennt við sjálfan
Vincent Price, meistara hroll-
vekjunnar í tvennum skiln-
ingi. Vincent er ekki aðeins
snillingur sem leikari heldur
hefur hann einnig skrifað
margar sögur, sem fá kalt
vatn til aö hríslast á milli
skinns og hörunds á lesand-
anum. Þar segir m.a. annars
frá Igor, sem opnar dyrnar í
bókasafninu — og lokar
þeim aftur.
Hugheilar þakkir til allra er veittu mér gleöi með heim-
sóknum, gjöfum, skeytum og símtölum í tilefni 80 ára
afmælis míns 11. október sl. ViÖ hjónin munum eiga
ánægjulegar minningar frá þessum degi.
Viggó Nathanaelsson.
Hjartans þakklæti og viröingu votta ég öllum þeim er
heiöruöu mig á áttræöisafmæli mínu á svo margvísleg-
an hátt.
Guö blessi ykkur öll og verndi.
Karrel Ögmundsson,
Bjargi, Keflavík.
Ég þakka innilega öllum þeim innanlands og utan er
sýndu mér vinsemd og gáfu mér stórgjafir og blóm á 80
ára afmæli mínu.
Kær kveðja og farsæl framtíö.
Sveinn Sveinsson,
Þórufelli 16.
s—0 Lýsing í
skammdeginu
Framleiðum Ijósastaura til
lýsingar á götum, bílastæðum,
heimkeyrslum og göngustígum.
Stærð frá 1,5—16 m
Vélsmiðjan Stálver hf.,
Funahöfða 17, 110 R.
Sími: 83444.
Húseigendur —
Húsbyggjendur
Smídum innveggi, einangrun, klæðum úti-
veggi og setjum timburloft.
Seljum í miklu úrvali grindarefni, viðarþiljur
og spónaplötur á afar hagstæðu verði. Góðir
greiðsluskilmálar.
Ath.: Við erum við símann alla helgina. Leit-
ið tilboða og upplýsinga ykkur aö kostnað-
arlausu.
VERKVAL SF
Simar A1529-79132