Morgunblaðið - 19.10.1983, Qupperneq 1
Myndasögur
Skák/bridge
Ólöf Kolbrún ... 42
Kennsla 44/45
Skák 46/47
Biskupsembætti.. .48/49
Leiklist 50
Plöntuveirur 51
Sjónarhorn 54/55
Midvikudagur 19. október
56
56
Fólk í fréttum 57
Bíó/dans/leikhús 58/59
Velvakandi 60/61
Popp 62/63
A leiÖ til sigurs!
Australia II siglir
þöndum seglum aö markinu
„Þad verður geysilega erfitt að ná
bikarnum úr höndum Bandaríkja-
manna, en takist það ekki nú veit ég
ekki hvenær það verður,“ sagði Ben
Lexcen, hinn 47 ára gamli hönnuður
áströlsku skútunnar Australia II, áður
en úrslitakeppni baráttunnar um
Ameríkubikarinn hófst. Lexcen hafði
lög að mæla. Að lokinni undankeppn-
inni, þar sem 7 skútur frá 5 löndum
höfðu reynt með sér í keppninni um
áskorendasætið í úrslitaviðureigninni
gegn bandarísku skútunni Liberty,
duldist engum að hér var á ferð fyrsta
skútan í fimm áratugi, sem virtist geta
veitt Bandaríkjamönnum verðuga
keppni. Þessi staðreynd fór heldur
ekki framhjá Bandaríkjamönnum
sjálfum, sem neyttu allra bragða til
þess að reyna að fá Australia II
dæmda úr leik fyrir ólöglegan útbún-
að. Þessi „ólöglegi“ útbúnaður, sem
þeir vísuðu til, var nú og áður
Á
réttum
kili
Glaöbeittir þre-
menningar:
John Bertrand,
skipstjóri skút-
unnar (t.h.),
Phil Judge,
einn úr áhöfn-
inni, og Alan
Bond (t.v.), sá
er kostaði út-
gerð skútunnar
í keppnina,
fagna sigri.
óþekkt tegund kjalar, sem Lexcen
hannaði. Skipti það forráðamenn
Siglingaklúbbs New York-borgar litlu
þótt engar athugasemdir hefðu verið
gerðar við kjöl skipsins í undan-
keppninni. Bandaríkjamennirnir
gengu meira að segja svo langt í ör-
væntingarfullum tilraunum sínum til
þess að fá kjölinn, sem þeir höfðu
reyndar aldrei séð, dæmdan ólögleg-
an, að þeir höfðu samband við hlutað-
eigandi í Hollandi, þar sem Lexcen
hafði reynt kjölinn í sérstakri þar til
gerðri laug, og reyndu að fá þá til að
staðfesta að þeir hefðu átt hlut að
máli við hönnun kjalarins. lltanað-
komandi aðstoð við hönnun hefði þýtt
brot á reglugerðunum, sem reyndar
hafa alla tíð verið settar af Banda-
ríkjamönnum sjálfum. Hollendingar
fúlsuöu hins vegar við agninu og lýstu
þessari tilraun Bandaríkjamanna,
sem „undirförulli og lævíslegri“.
Hvernig áhöfn skútunnar Australia II
náði Ameríkubikarnum úr klóm
Bandaríkjamanna eftir 132 ára einokun