Morgunblaðið - 19.10.1983, Page 6
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
Morgunblaðið/Kristján örn.
Helgarmótið á Fáskrúðsfirði:
Stórmeistarinn
Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari, varð vinningi á undan næstu mönnum á
helgarskákmótinu á Fáskrúðsfirði þar sem flestir af okkar sterkustu skákmönnum
voru mættir til leiks. Guðmundur hlaut sex og hálfan vinning af sjö mögulegum, en
þeir Margeir Pétursson, Guðmundur Halldórsson, Jóhann Hjartarson og Ingi R.
Jóhannsson fimm og hálfan. Þessi frábæri árangur Guðmundar lofar góðu fyrir
horfur landsliðsins í átta landa keppninni síðar í þessum mánuði, en þar mun hann
tefla á fyrsta borði og mæta öflugustu skákmönnum Norðurlandanna, V-Þýzkalands
og Póllands.
Aðstæður á helgarmótinu á
Fáskrúðsfirði voru ágætar, en því
miður gleymdist að panta gott
veður og alla þrjá dagana sem
mótið stóð yfir rigndi sem hellt
væri úr fötu. Keppendur urðu því
að hírast inni á milli skáka og
spillti það að vonum fyrir heim-
sókninni, því oft hafa helgarmótin
náð hápunkti sínum með
skemmtilegum skoðunarferðum.
Gangur mótsins
í fyrstu tveimur umferðunum
gafst heimamönnum og öðrum
Austfirðingum sem mættir voru
til leiks kostur á að reyna sig gegn
gestunum og voru sumar skákirn-
ar þá ærið einstefnukenndar enda
styrkleikamunurinn sums staðar
mjög mikill. í þriðju umferð fóru
síðan Reykvíkingarnir að lenda
saman og skulum við líta á helstu
úrslit frá og með þeirri umferð:
3. umferð:
Guðmundur Sig. —
Asgeir Þór Arnason 1—0
Benóný Ben. —
Margeir Pétursson
Tómas Björnsson —
Ingi R. Jóhannsson
Jóhann Hjartarson —
Guðmundur Halldórsson 'k
Guðmundur Árnason —
Elvar Guðmundsson
Arnór Björnsson —
Kristján Örn Elísson
Dan Hansson —
Sturla Péturson
Sævar Bjarnason —
Viðar Jónsson
0-1
V4-V4
■'k
1-0
1-0
1-0
1-0
Þrenn úrslit í þessari umferð
komu mjög á óvart, sérstaklega
frábær árangur tveggja 14 ára
gamalia pilta, þeirra Guðmundar
Árnasonar og Tómasar Björnsson-
ar. Guðmundur hélt skákinni við
Elvar ávallt í jafnvægi og vann
síðan eftir glæfralega fórn Elvars,
sem sennilega vanmat ungan and-
stæðing sinn. Tómas þjarmaði
lengi að alþjóðlega meistaranum,
sem varð að taka á öllu sínu til að
halda jafntefli. Þá náði Guðmund-
ur Halldórsson jafntefli með
svörtu eftir erfiða vörn gegn Jó-
hanni Hjartarsyni. Meistari Ben-
óný fer aldrei troðnar slóðir og í
skákinni við Margeir afrekaði
hann það að hróka undir iok skák-
arinnar, í 30. leik, og hlýtur það að
jaðra við heimsmet, því sem kunn-
ugt er framkvæma flestir þá at-
höfn í upphafi skákar. Ekki dugði
þessi hugkvæmni Benónýs til að
bjarga skákinni því riddarapar
hans mátti sín lítils gegn öflugu
biskupapari. Benóný stendur á því
fastar en fótunum að riddarar séu
sterkari en biskupar og lætur
biskupa sína því oft snemma af
hendi, en að þessu sinni varð hon-
um hált á slíkri herstjórn.
4. umferð:
Dan — Guðmundur Sig. 0—1
Margeir — Arnór 1—0
Ingi R. — Sævar 0—1
Tómas — Jóhann 0—1
Guðm. Halld. — Guðm. Á. 1—0
Nú varð aftur á móti fátt um
óvænt úrslit. Inga R. Jóhannssyni
var orðið Ijóst að hann yrði ekki
með í baráttunni um efsta sætið
að sinni þvi Sævar tefldi Nimzo-
indversku vörnina af svo mikilli
festu og krafti að ekki varð við
neitt ráðið.
5. umferð:
Guðm. Sig. — Guðm. Halld. 1—0
Sævar — Margeir 'k — 'k
Jóhann — Dan 1—0
Eftir annan dag keppninnar var
Guðmundur Sigurjónsson einn
keppenda með fullt hús. Toppur-
inn var nú farinn að grisjast veru-
lega og ljóst að hættulegustu
keppinautar hans yrðu þeir Mar-
geir, Jóhann og Sævar.
6. umferð:
Margeir — Guðmundur V4 — V4
Sævar — Jóhann 'k — V4
sigraði örugglega