Morgunblaðið - 19.10.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983 51
ÖRVERUFRÆÐI eftir dr. Ara Kr. Sæmundsson
Plöntuveirur
Það eru margir, sem ekki gera
sér grein fyrir því, að veirusjúk-
dómar hrjá jafnt plöntur sem dýr
og menn. Reyndar herja veirur á
bókstaflega allar lífverur, hvort
sem þar er um að ræða bakteríu,
kartöflugras, silung eða mús.
Veirur geta til og með lagst á veir-
ur, svo það má með sanni segja að
veirur séu sýklar sýklanna.
Hér er ætlunin að gera stuttlega
grein fyrir plöntuveirum. Þessar
veirur eru mjög margvíslegar að
lögun og gerð (mynd 1), og um 300
ólíkar plöntuveirur hafa nú verið
einangraðar og auðkenndar. Þar
sem plöntur hafa ekkert eða mjög
frumstætt ónæmiskerfi, þá eru
þær yfirleitt mjög illa á vegi
staddar, ef þær eru svo óheppnar
að verða fyrir veirusýkingu.
Plöntuveirur og
berar þeirra
Plöntur eru staðbundnar lífver-
ur. Þær eru ekki haldnar þeim
ósið að vera síhóstandi framan í
hvor aðra eða yfirleitt að vera að
Laufblaö af tóbaksplöntu með veiru-
sjúkdóm. (Úr bók K.M. Smith).
smám saman upp og deyja (mynd
3). Oft má sjá mjög sérstök sjúk-
dómseinkenni tengd æðakerfi
plantnanna. Æðarnar grotna
niður, en áður geta þær misst all-
an lit, orðið því sem næst glærar.
Sjúkdómseinkenna verður einnig
oft vart í blómum og ávöxtum.
Blómin aflitast og ávextirnir
verða allir aflaga, hýðið sprungið,
og þeir ekki beint spennandi til
átu.
Sjúkdómur sá sem ákveðin veira
veldur, er oft mjög einkennandi
fyrir þá veiru í náttúrulegum hýsli
sínum. Hafa plöntuveirufræðing-
ar valið þann kostinn að skýra
veirurnar í höfuðið á hýslinum að
viðbættum klassískum einkennum
veirusýkingarinnar. Verða þessi
nöfn oft ákaflega skrautleg og
næstum ógerlegt að þýða þau yfir
á íslensku, eða hvernig líka nöfn
eins og upprúllað-laufblað-á-
kartöflugrasi-veiran (potato leaf-
roll virus) eða svartir-hringir-á-
kálblaði-veiran (cabbage black
ringspot virus).
Lokaorð
Plöntuveirur hafa valdið og
valda enn ómældum skaða. Þær
eru þyrnir í augum bænda og
garðyrkjumanna, þar sem þær
leggjast á nytjaplöntur, skraut-
jurtir og tré. Veirusjúkdómar i
plöntum eru einnig erfiðir viður-
eignar, eins og gefur að skilja. Það
gefur augaleið að rannsóknir á
veirusjúkdómum í plöntum og
dreifingu þeirra beinast fyrst og
fremst að því að reyna að skil-
greina smitleiðir. Sú hefur líka
órðið raunin, að baráttan við
plöntuveirur hefur fyrst og fremst
beinst gegn berunum sjálfum.
Þeir eru sjálfsagt mikilvægasti
hlekkurinn í þessari sjúkdóms-
keðju, og ef hægt er að greina þá
og lífshættir þeirra eru vel þekkt-
ir, þá eru aðgerðir raunhæfar.
Annað sem menn hafa reynt að
gera, er að rækta upp plöntu-
stofna, sem eru ónæmir gagnvart
sýkingu með ákveðinni veiru. Þó
eru ekki allir veirusjúkdómar til
ama í plöntum. Þannig valda t.d.
veirur hinum klassísku litabreyt-
ingum, sem sjá má á blómum
sumra túlípana, og hafa af mörg-
um verið talin til fegurðarauka
fremur en hitt.
Heimildir:
K. M. Smith (1977). Plant vinises,
('hapman & Hall, London.
L. Bos (1970). Symptoms of virus dis-
eases in planLs Centre for Agricultural
Publishing and Documentation, Wag-
eningen.
Plöntuveirur eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hér má sjá veirur, sem
sýkja m.a. tóbaksplöntur, tómatplöntur og baunagrös. Veirur sem þessar eru
u.þ.b. 1/50000 úr millimetra f þvermál. (Ur bók L. Bos).
kássast hver utan í annarri. Mað-
ur skyldi því ætla að plöntuveirur
ættu erfitt uppdráttar, þar sem
hinar klassísku smitleiðir dýra
eru ekki fyrir hendi til að bera
þær á milli. Plöntufrumur hafa
líka utan um sig hlífðarvegg úr
beðmi (cellulose), sem er góð vörn
gegn alls konar utanaðkomandi
áreiti. En plöntuveirur hafa séð
við þessu og hafa komið sér upp
flóknu kerfi bera (vectors), sem
sjá um dreifinguna. Það má með
sanni segja að allar lífverur, sem
nærast á plöntum geti gegnt hlut-
verki bera, en ýmiss konar skor-
dýr eru þó fremst í flokki. Algeng-
ast er að skordýr beri veirur á
milli í munnvatni. Þegar skordýr
nærast á laufblöðum sýktrar
plöntu, þá innbyrða þau um leið
töluvert magn af veirum. Veirurn-
ar berast síðan úr meltingarfær-
unum yfir í blóðrásina og enda
loks í munnvatnskirtlunum. Það-
an eiga svo veirurnar greiða leið
inn í ósýkta plöntu, þegar viðkom-
andi skordýr fara að gæða sér á
henni. Afkastamest skordýra við
veiruburð er eflaust blaðlúsateg-
und ein, Myzus persicae, en talið er
að hún beri á milli a.m.k. 50 ólíkar
plöntuveirur. Aðrir berar, í hópi
þeirra afkastameiri, eru ýmsir
smámaurar (mites) og svo þráð-
ormar (nematodes). Þráðormar
gæða sér á rótum plantna og bera
í þær sýkilinn svo að segja frá
öfugum enda. Aðrar smitleiðir
sem mætti nefna, eru með afleggj-
urum og fræjum. Afleggjari, sem
tekinn er af sýktri plöntu, er að
öllum líkindum einnig sýktur, og
þar af leiðandi plantan, sem upp
af honum vex. Einnig eru þess
dæmi að plöntuveirur berist á
milli kynslóða með fræjum.
Sjúkdómseinkennin
Sjúkdómseinkennin geta verið
margvísleg. Algengast er að sjúk-
dómseinkennanna verði fyrst vart
á laufblöðum, t.d. sem litlir hring-
laga blettir (mynd 2). Þessir blett-
ir stafa af því að þegar frumurnar
deyja, þá brotnar blaðgrænan
niður, ekki ósvipað því sem gerist
á haustin, og önnur litarefni verða
meira áberandi. Laufin veslast svo
,upplausntil
abyrgðar
Á RÉTTRI LEIÐ
Sunnlendingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Hellubíói fimmtudaginn 20.
október kl. 20.30. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra ræðir störf
og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þingmenn flokksins í kjördæminu mæta á
fundinn. Allir velkomnir.
Sjálfstæöisflokkurinn.