Morgunblaðið - 19.10.1983, Síða 14
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
Ályktanir
Á ÞINGI Sambands ungra sjálfstæðismanna
sem nýlega var haldið í Reykjavík voru sam-
þykktar fjölmargar ályktanir í mörgum
málaflokkum. Það var yfirlýst stefna ungra
sjálfstæðismanna að á þinginu myndu þeir
einkum einbeita sér að gerð samþykkta í
þeim málaflokkum sem ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins fara með í ríkisstjórninni.
Meginefni þings Sambands ungra sjálf-
stæðismanna var „Atvinnuþróun og há-
tækniiðnaður“, en um það efni fjölluðu þrír
kunnir sérfræðingar, en einnig var í lok
þingsins samþykkt ítarleg ályktun um þetta
mál. Þá má auk þess nefna að samþykktar
voru ályktanir um efnahags- og viðskipta-
SUS-þings
mál, menntamál, utanríkismál, öryggis- og
varnarmál, húsnæðismál og orku- og iðnað-
armál, auk margra annarra ályktana um ein-
staka málaflokka, ásamt almennri stjórn-
málaályktun.
Ályktanir þær sem þingið samþykkti voru
flestar samþykktar samhljóða, en þær sem
ekki hlutu slíkan algeran stuðning, hlutu að-
eins örfá mótatkvæði, þannig að af því má
sjá að einhugur ríkti á þinginu. Hér á eftir
fer nokkur hluti ályktana SUS-þingsins, en
ályktanir um samgöngumál, sjávarútvegs-
mál, orku- og iðnaðarmál, heilbrigðismál,
húsnæðismál, málefni þróunarríkja og um-
hverfismál verða birtar síðar.
Frá setningu SUS-þings, formaður Heimdallar í ræðustól.
Menntamál:
Nemendum gefist aukinn
kostur á vali
Skólar gegna mjög mikilvægu hlut-
verki í samfélagi nútímans. MeðferA
og öflun upplýsinga skiptir æ meira
máli. Þekking verður sífellt mikilvæg-
milli skóla
ari fyrir gengi einstaklinga á vinnu-
markaði og gæfu þeirra sjálfra.
Til að efla hvern einstakling og
hæfileika hans þarf að þroska með
honum virðingu fyrir menntun og
menningarlegri arfleifð þjóðarinn-
Efnahags- og viðskiptamál:
Einkaframtak og atvinnufrelsi
tryggir lífskjör og hagsæld
VIÐ MYNDUN ríkisstjórnarinnar í maí síðastliðnum voru um margt
óvenju dökkar blikur á himni efnahagsmála og þótti sýnt að héldi svo
fram sem horfði skapaðist alvarlegt hættuástand með uggvænlegum
afleiðingum fyrir efnahag og atvinnustarfsemi. 27. þing Sambands
ungra sjálfstæðismanna lýsir yfír stuðningi við þá viðleitni ríkisstjórnar-
innar að vinna bug á efnahagsvandanum, en fyrstu aðgerðir hennar hafa
þegar skilað þeim árangri að tryggja rekstur atvinnuvega og hafa með
því forðað þjóðinni frá atvinnubresti sem yfír vofði. Verðbólga er þegar
tekin að hjaðna verulega og frekari merki þess munu koma í Ijós á
næstunni. Hér er um að ræða úrslitatilraun til að kveða þennan vágest í
kútinn og eiga engir meiri hagsmuna að gæta en launþegar að það
takist. Þingið leggur áherslu á að upphafsráðstafanirnar eru tímabund-
ins eðlis og gerðar í því skyni að skapa svigrúm fyrir frekari aðgerðir,
sem horfa til lengri tíma. Óhjákvæmilegt er að beita tiltækum stjórnar-
tækjum á sviði ríkisfjármála og peningamála í því augnamiði að skapa
aðhald og festu, enda er markviss stjórn í þessum efnum nauðsynleg
forsenda þess, að varanlegur árangur náist í glímunni við verðbólguna. I
þessu sambandi skal lögð áhersla á eftirfarandi atriði sem m.a. er ætlað
að hamla gegn óhóflegri peningaþenslu.
Vinna verður bug á rekstrarerf-
iðleikum ríkissjóðs og tryggja
hallalausan ríkisbúskap.
Erlendar lántökur verði háðar
ströngu aðhaldi og komi einungis
til greina við fjármögnun arð-
bærra og gjaldeyrisskapandi verk-
efna.
Vaxtastefnan miðist við að
hvetja til sparnaðar og tryggja
jafnvægi á lánsfjár- og peninga-
markaði.
Tryggt verði að jafnvægi ríki í
viðskiptum við önnur lönd.
íslendingar bera nú mikinn
kostnað af gegndarlausri offjár-
festingu á ýmsum sviðum atvinnu-
lífsins. Hér er um að ræða afleið-
ingu þess að fjármagni hefur verið
beint til pólitískra gæluverkefna
og atkvæðakaupa en ekki fengið
að renna þangað sem það skilaði
arði. Hér þurfa að verða á alger
Stjómarskrármál:
Kynna málið
almenningi
27. ÞING SUS vekur athygli á
nauðsyn þess að Alþingi láti ekki
niður falla umfjöllun um endur-
skoðun stjórnarskrárinnar. Þingið
hvetur Alþingi til að gangast fyrir
kynningu um þetta mál meðal al-
mennings með það fyrir augum að
afgreiðslu þessa mikilvæga máls
verði lokið fyrir lok þessa kjör-
tímabils.
umskipti ef ekki á að koma til
stöðnunar í atvinnulífi og frekari
hnignunar í lífskjörum almenn-
ings. Setja ber arðsemissjónarmið
í öndvegi og tryggja með því hag-
vöxt og sköpun nýrra atvinnu-
tækifæra. Endurskoða verður
rækilega framlög ríkissjóðs til
fjárfestingarlánasjóða.
27. þing Sambands ungra
sjálfstæðismanna hvetur til þess,
að framleiðsla hefðbundinna
greina landbúnaðar verði löguð að
þörfum markaðarins. Áhersla skal
lögð á að þessi aðlögun taki m.a.
mið af landnýtingu og beitarþoli
en ekki vélrænu kvótakerfi. Brýnt
er að þannig verði staðið að mál-
um, að nýjar búgreinar geti skap-
að fleiri atvinnutækifæri í náinni
framtíð, sem yrði mótvægi við
hugsanlegan samdrátt í öðrum
búgreinum.
27. þing Sambands ungra sjálf-
stæðismanna lýsir yfir stuðningi
við áform ríkisstjórnarinnar um
sölu ríkisfyrirtækja og hvetur til
þess að dregið verði úr umsvifum
ríkisins hvar sem við verður kom-
ið og rekstur færður til einkaaðila
og sveitarfélaga eftir því sem við
á. Fjárlagagerð á að miðast við
áætlanagerð frá grunni en ekki
byggjast á sjálfvirkni. Framfylgja
ber þeirri meginreglu að bjóða út
rekstur og framkvæmdir á vegum
hins opinbera hvar sem því verður
við komið. Skatta verður að lækka
og einfalda, sem er forsenda fyrir
því að skattsvik verði upprætt. Því
er treyst að tekjuskattur af al-
mennum launatekjum verði af-
numinn og að skattlagning fyrir-
tækja miðist við að örva eiginfjár-
munamyndun og sparnað f
atvinnurekstri.
Á sviði viðskiptamála leggur 27.
þing Sambands ungra sjálfstæðis-
manna áherslu á frjálsa verð-
myndun, samkeppni og heilbrigða
viðskiptahætti. Víða skortir enn
mjög á að verðmyndun sé með
frjálslegum hætti og bendir þingið
t.d. á nauðsyn þess að losa búvöru-
verðsmyndun úr viðjum sex-
mannanefndar. Ennfremur er
brýnt að afnema álagningarreglur
innflutningsverslunar, sem ekki
hafa verið annað en hvatning til
óhagkvæmra vöruinnkaupa er-
lendis frá.
Fella verður brott hömlur og
höft af gjaldeyrisviðskiptum og
leyfa ferskum vindum að blása á
því sviði. Með því yrði stigið til
fulls skref það sem Viðreisnar-
stjórnin bar ekki gæfu til að taka.
Setja þarf ný lög gegn einokun
og hringamyndun og beita tiltæk-
um ráðstöfunum til að fella á
brott samkeppnishömlur hvar sem
þær er að finna í efnahagslífinu.
Útflutningsverslunina þarf að
gefa frjálsa á sama hátt og losað
var um innflutningsverslunina á
sínum tíma.
Framtak einstaklinga verði
virkjað til að leita hagstæðra
samninga um olíuinnkaup til
landsins og horfið frá því stein-
runna ríkisinnkaupakerfi sem nú
hefur tíðkast of lengi.
Kannað verði gaumgæfilega
hvort hagkvæmt er fyrir íslend-
inga að heimila erlendum banka-
stofnunum að opna hér skrifstofur
eða hefja aðra bankastarfsemi.
Ríkisbankar verði gerðir að hluta-
félögum.
Eindregið er varað við hvers
konar einokun í sölu matvæla, t.d.
á sviði eggjasölu. Verslun og dreif-
ing grænmetis og mjólkurafurða
verði gefin frjáls. Opnunartími
verslana verði gefinn frjáls.
Verktakastarfsemi á Keflavík-
urflugvelli verði gefin frjáls og
horfið frá ríkisverndaðri einokun
þar syðra.
Ungir sjálfstæðismenn leggja
megináherslu á að stjórn efna-
hags- og viðskiptamála miðist við
að auka svigrúm og athafnafrelsi
einstaklinganna. Leyfa verður
hugkvæmni þeirra og framtaki að
njóta sín, enda beri aðilar ábyrgð
á athöfnum sínum og ákvörðun-
um. Ríkið hefur því hlutverki að
gegna að skapa umgjörð um at-
vinnulífið, sem gerir því kleift að
starfa með heilbrigðum hætti, en
það er ekki hlutverk ríkisins að
hafa með höndum forsjá eða íhlut-
un á þessu sviði. Stefna einka-
framtaks og atvinnufrelsins, þar
sem saman fara frelsi og ábyrgð,
tryggir best batnandi lífskjör og
hagsæld almennings.
ar, fá honum verkefni við hæfi á
hverju stigi skólagöngunnar. Á síð-
ustu árum hefur tilraunastarfsemi
á sumum stigum skólakerfisins ekki
verið nægilega markviss, sem hefur
leitt til þess að á sumum sviðum
gerir nám ekki nægilegar kröfur til
nemenda. Þetta er háskaleg þróun
sem ber að vara mjög eindregið við.
Nemendur eru mjög ólíkir og sér-
kenni þeirra ber að virða eftir þvf
sem unnt er. Drýgsti þáttur mennt-
unar er að kunna að tileinka sér
fræðslu. Fræðsla gerir kröfur um
öguð og vönduð vinnubrögð. Skólum
ber að stuðla að því að nemendur
vandi vinnu sína og agi hugsun sfna.
Þannig þroskast þeir. Sé þetta f
heiðri haft er skólakerfi réttnefnt
menntakerfi.
SUS-þing fagnar þvf að mennta-
málaráðuneytið hefur nú eftir
þriggja áratuga hlé komið f hlut
Sjálfstæðisflokksins. Þingið væntir
þess að menntamálaráðherra muni
eindregið beita sér gegn meðal-
mennsku sem sést hefur á sumum
sviðum skólakerfisins sl. átatugi.
Nauðsyn ber til að auka sjálfstæði
skólastofnana og stuðla þannig að
valddreifingu. Brýnt er að efla áhrif
foreldra og aðstandenda nemenda á
skólakerfið og gegna foreldrafélög
þar stóru hlutverki. Nauðsynlegt er
að samráð sé haft við hagsmuna-
samtök nemenda. Þingið lýsir án-
ægju sinni með skipun nefndar um
þetta efni. Margar leiðir eru til að
þessu marki, t.d. að auka valdsvið
skólastjórna og gefa nemendum
aukinn kost á að velja á milli skóla-
stofnana.
Þar má benda á svokallað ávís-
anakerfi, sem felst f því að hverjum
nemanda í skólakerfinu er úthlutað
föstu fjárframlagi frá hinu opin-
bera, sem hann sfðan getur notað til
greiðslu þeirrar menntunar sem
hann kýs. Þrennt vinnst. Valfrelsi
nemenda er tryggt, samkeppni á
milli skóla vex og gæði kennslu og
menntunar aukast.
Örtölvubyltingin kallar á það að
skólakerfið bregðist fljótt og vel við.
Atvinnulífið krefst þess og hags-
munir nemenda gera það líka. Brýnt
er að námsmönnum í rafmagns-
tæknifræði verði gert kleift að ljúka
námi sínu hérlendis. Skólar hljóta
að taka eðlilegt tillit til atvinnulífs,
sérstaklega í öllu tækninámi. Það er
vel að nefnd hefur fengið það verk-
efni að kanna þessi tengsl.
Einnig er nauðsynlegt að marka
almenna menntastefnu. Brýnt er að
lög verði sett um framhaldsskó'a og
menntun á háskólastigi verði tekin
til endurskoðunar.
Með auknu valfrelsi hefur aukist
nauðsyn á þvf að nemendur fái
glöggar upplýsingar um möguleika
á framhaldsnámi. Auka ber upplýs-
ingastreymi á milli skólastiga svo
að hver einstaklingur geti stundað
nám á sem markvissastan hátt.
SUS-þing skorar á menntamála-
ráðherra að láta gera mannaflaspá
svo að sem gleggstar upplýsingar
liggi fyrir á hverjum tfma um at-
vinnumöguleika að loknu námi.
Frá þinginu.