Morgunblaðið - 05.11.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
5
Athugasemd frá Lista
hátíð í Reykjavík
Konurnar í Hringnum undirbúa basarinn.
Basar Hringsins er í dag
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá Lista-
hátíð í Reykjavík: „í Morgunblaðinu
í dag er frétt um starf framkvæmda-
stjóra Listahátíðar. Vegna þessarar
fréttar telur framkvæmdastjórn
Listahátíðar óhjákvæmilegt að taka
Bjarni Ólafsson
fram, til að forðast misskilning, sem
af fréttinni gæti leitt, að hér er um
persónulegt mál að ræða sem valdið
getur bæði óþægindum og særindum
fyrir viðkomandi aðila.
Venja er að fréttir frá hátíðinni
berist beint frá framkvæmda-
Skýrsla viðskipta-
ráðuneytis:
Skreiðar- og
þorskhausa-
birgðir mun
minni en í fyrra
SKREIÐARBIRGÐIR voru 30. sept-
ember sl. alls 8.330 tonn, en voru á
sama tíma í fyrra 10.900 tonn sam-
kvæmt birgðaskýrslu Fiskifélagsins.
horskhausabirgðir voru 30. sept-
ember sl. alls 1.300 tonn en voru
10.900 tonn á sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram i nýrri
skýrslu viðskiptaráðuneytis.
Skreiðarbirgðir voru því 2.570
tonnum minni í lok september sl.
en á sama tíma í fyrra og þorsk-
hausabirgðir 9.600 tonnum minni
30. september sl. en í fyrra.
Segir einnig í skýrslunni að gert
sé ráð fyrir að nú séu til í landinu
u.þ.b. 160.000 pakkar af hausum.
Einnig segir að í Noregi sé gert
ráð fyrir að til séu u.þ.b. 450.000
pakkar af skreið og 100.000 pakkar
af hausum.
stjórn og þá fyrir tilstilli fram-
kvæmdastjóra eða í útsendum
fundargerðum hátíðarinnar. Þessi
frétt er ekki komin frá hátíðinni
sjálfri, né framkvæmdastjórn.
Rétt er því að vekja athygli á að
vegna þessa máls var eftirfarandi
bókun gerð á fundi 27. október sl.
og verður sú fundargerð send út í
dag.
Bókunin er svohljóðandi:
„Ákveðið að veita Bjarna ólafs-
syni veikindafrí til óákveðins
tíma, en Guðbrandur Gíslason
mun taka við starfi hans á meðan.
Bjarni mun fara erlendis til að
gangast undir læknisaðgerð."
Frá framkvæmdastjórn Lista-
hátíðar í Reykjavík 1984.“
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn heldur
sinn árlega handavinnu- og köku-
basar laugardaginn 5. nóv. nk. kl. 14
í Vörðuskóla á Skólavörðuholti (inn-
gangur frá Barónsstíg).
Síðustu árin hefur félagið safn-
að fé til tækjakaupa fyrir allar
deildir Barnaspítala Hringsins
svo og til fleiri líknarmála.
Meðal annars gaf félagið á síð-
astliðnu ári lessjónvarp, ásamt
fjölritara fyrir blind og sjónskert
börn.
Allur ágóði af basarnum rennur
til líknarmála, sem og aðrar fjár-
aflanir Hringsins.
Saltfiskbirgð-
ir 11.000 tonn
BIRGÐIR saltfisks voru í lok októ-
bermánaðar um 11.000 tonn að verð-
mæti um 550 milljónir króna, en
ógreitt andvirði útflutts fisks er um
500 milljónir kr. Samkvæmt birgða-
skýrslu Fiskifélags íslands voru
saltfiskbirgðir 30. september 1982
aftur á móti 19.000 tonn. Þetta kem-
ur fram í nýrri skýrslu viðskipta-
ráðuneytisins.
Saltfiskbirgðirnar nú í lok
október skiptast þannig: Saltufsi
2.000 tonn, saltflök 1.000 tonn,
blautverkaður þorskur 7.000 tonn
og þurrfiskur 1.000 tonn. Segir í
skýrslu viðskiptaráðuneytis að
vegna samdráttar í skreiðarfram'-
leiðslu hafi mikið verið saltað af
ufsa á síðustu vetrarvertíð, en
treglega hafi gengið að selja ufs-
ann fyrir viðunandi verð.
Samvinnuferðir-Landsýn efnir til samkeppni.
um nafn á „sumar“húsin í Hollandi
Attþjío
yfir þetta allt saman ?
í kjölfar mikilla vinsælda og vel heppnaðra ferða í „sumar“húsin í Hollandi sl. en þangað verður einnig flogið I hverri viku. I krafti mun stærri samnings en fyrr,
sumar.hefur Samvinnuferðir-Landsýn nú gert nýjan og einstaklega hagstæðan er Samvinnuferðum-Landsýn unnt að bjóða ferðirnar til Hollands 1984 á
samning um Hollandsferðir sumarið 1984. Áfram verður boðið upp á vikulegar óbreyttu verði frá sl. sumri, og er salan nú þegar komin I fullan gang
ferðir til Eemhof og nú bætist hinn stórglæsilegi gististaður Kempervennen við.
ar-
a
Frábær afþreying
og íþróttaaöstaðc
★ Tennis og minigolf.
★ Bowling.
★ Reiðhjólaleiga,
hjólreiðabrautir.
★ Sjóskiði, sjóbretti o.fl. þ.h.
★ Diskótek.
★ Göngusvæð'.
★ Iþróttavellir
- opin útivistarsvæði.
★ Leiktækjasalur.
* Veðursæld og
fallegt umhverfi
* Einstök veðurbliða (yfir 2C
stiga hiti og sól upp á nær
hvern dag allt sl. sumar).
* Fjölskrúðugt dýralíf.
* Kyrrlátt umhverfi.
* Fjölbreyttur gróður.
* Viðáttumikil sólbaðsaðstaða
★ Gisting í algjörum
sérflokki
★ Yfir 70 m2 smáhýsi og 30 m:
ibúðir með glæsilegum
innréttingum.
★ Arinn í vistlegri stofu, vel
búinni öllum húsgögnúm.
★ Litasjónvarp með fjölda sjón-
varpsstöðva auk eigin videó-
kerfa Eemhof- og Kemper-
vennensvæðanna.
★ Rúmgott eldhús með öllum
nauðsynlegum eldunaráhöld-
um og borðbúnaði.
★ 3 svefnherbergi í öllum
húsum.
Samkeppni
Og nú efnum við til samkeppni um verðugt nafn á „sumar' húsin i Hollandi, -
eitt orð, sem ekki einungis nær yfir glæsileg hús og góða gistingu, heldur einnig
alla þá fjölbreyttu þjónustu og aðstöðu, sem boðið er upp á i miðbæ
„sumar“húsaþorpanna.
Sú staðreynd, að þessi fjölskylduparadis er I fullri notkun allt árið um kring gerir
„sumar"húsanafnið siðan enn frekar ófullnægjandi Þess vegna fá nú allir
tækifærí til þess að finna „rétta" orðið og freista þess að vinna til veglegra
fjölskylduverðlauna næsta sumar.
★ Fullkomin þjónusta
★ Gestamóttaka og upplýsinga-
miðstöð opin frá morgni til
kvölds.
★ Fjöldi veitingastaða
og verslana.
★ Pósthús, banki og önnur
þjónusta
★ Barnagæsla og leikskóli.
★ Aðstoð og fyrirgreiðsla
(slenskra fararstjóra, hvenær
sem a þarf að halda.
★ Fjölbreyttar skoðunar- og
skemmtiferðir með íslenskri
fararstjórn.
* „Hitabeltis“- sundlaug
með öllu tilheyrandi
★ Inni- og útisundlaug.
* Rennibrautir í innilauginni.
* öldugangur og fjör á hálftíma
fresti.
★ Sauna og tyrkneskt bað.
★ Háfjallasól, Ijós og
„sólarfallbyssa".
★ Heitir pottar, nuddpottar.
* Barnasundlaug.
* Sundlaugarbar.
★ Hvildaraðstaða.
Skilafrestur
1 Tillögum þarf að skila fyrir 10. janúar 1984 og má hver þátttakandi senda allt
að 5 tillögur. Þeim skal skilað i umslagi merktu „Orð" til Samvinnuferða-
Landsýnar, Austurstræti 12, 101 Reykjavík ásamt nafni, heimilisfangi og
símanúmeri sendanda.
2. Dómnefnd skipuð þeim Eysteini Helgasyni, frkvstj. Samvinnuferða-Landsýnar,
Gunnari Steini Pálssyni, frkvstj. Auglýsingaþjónustunnar, og Guðna Kolbeinssyni.
íslenskufræðingi.mun fjalla um tillögurnar sem berast.
3 Berist fleiri en ein tillaga um það nafn, sem verðlaunin hlýtur, verður dregið
um verðlaunahafann. Dómnefnd áskilur sér einnig rétt til að hafna öllum
tillögunum.
4. Urslit samkeppninnar verða kynnt I lok janúar.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899