Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 Til sölu Skanía Vabis frambyggður 140 árg. ’75, tveggja drifa, Volvo F 1225 árg. ’79, Volvo 6 hjóla meö fram- drifi árg. ’63, Man 26321 '81, Chevrolet Superban Custon 10 Deluxe með diesel, árg. ’75. Uppl. í síma 99—1133. Nissan/Datsun Cherry 1,5 GL árg. 1983 Einstaklega vei meö farinn bfll, hlaöinn aukahlutum. Eklnn 13.000 km. Til sýnis og sölu hjá Ingvari Helgasyni hf., alla daga, einnig laugardag og sunnudag kl. 2—5. Sími 33560. Jörð í Rangár- vallasýslu Til sölu er jörðin Heiöarbrún, Holtahreppi, Rangár- vallasýslu, ásamt útihúsum, íbúðarhúsi, vélum og verkfærum. Einnig Land Rover árg. 1971. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fann- bergs sf., Hellu. Þrúóvangi 18, 850 Heliu. Simi 5028 — Pósthólf 30 Opið r 1 dag til kl. 4. Hagsýnn velurþað besta HUSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÓFDA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410 ■ Gleð eyra þitt og brjóst — eftir sr. Sigurð Hauk Guðjónsson Hafir þú ánægju af góðum kórsöng þá eiga þessar línur er- indi við þig, því að með þeim er ég að vekja athygli þína á að enn einu sinni eiga slíkir góða stund í vændum. I dag, laugardaginn 5. nóv., klukkan 5 efnir Kór Lang- holtskirkju til söngskemmtunar í Bústaóakirkju. Það eru 30 ár síðan kórinn steig fyrstu skrefin á þeirri listabraut sem hann síðan hefir verið á. Og nú koma þau saman og minnast þessa. Lofsöngvar munu hljóma, lagperlur utan úr henrii veröld og einnig úr ís- lenzkri þjóðarsál. Þau munu syngja eins og kórinn er skipað- ur nú, — þau munu bjóða eldri félögum að taka lagið með sér, — karla- og kvennakórar munu koma fram. Já, þau hafa lagt að sér við gerð þessarar hátíðar, og við, sem höfum fengið að kynn- ast undirbúningnum vitum, að enn einu sinni mun tónsprota Jóns Stefánssonar sveiflað og barkar kórfélaga þandir þannig, að hrifnæm brjóst munu fyllast gleði. Svík ekki eyra þitt um þessa stund, og eigir þú vin, sem þú vilt gleðja, hnipptu þá í hann, bjóð honum með þér. Sig. Haukur Malcolm Rutherford á fundi SVS og Varðbergs: Friðarhreyfingin farin að dragast „ÉG TEL að friðarhreyfingin sé tek- in að dragast saman," sagði Maic- olm Rutherford, stjórnmálaritstjóri Financial Times í Lundúnum, á fundi hjá Samtökum um vestræna samvinnu og Varðbergi laugardag- inn 29. október. „Líklega gerist það sama nú og fyrir rúmum tuttugu ár- um þegar friðarhreyfing lét síðast til sín taka í Evrópu, ekki síst í Bret- landi, að starfsemi hreyfingarinnar hvetur stjórnvöld til að hafa hugann við stjórnun vígbúnaðar og afvopn- unarmál en kemur ekki í veg fyrir endurnýjun vopnabúnaðar. Að mínu áliti er óhjákvæmilegt að kjarnorku- vopn verði áfram til staðar í veröld- inni og menn hljóta að velta þessari spurningu fyrir sér: Stuðla kjarn- orkuvopn ekki að friði eins og mál- um er háttað?“ Yfirskrift fundarins var: Stefna Breta í varnarmálum og öryggis- mál Evrópu, en í upphafi hans gat Björn Bjarnason, formaður Sam- saman í taka um vestræna samvinnu og fundarstjóri, þess, að Malcolm Rutherford hefði frjálsar hendur til að fjalla um það sem nú væri efst á baugi í alþjóðamálum. Gerði ræðumaður það í máli sínu og ræddi einkum innrásina á Grena- da og áhrif hennar á samstarfið innan Atlansthafsbandalagsins. Taldi hann ekki síður nauðsynlegt að skapa jafnvægi í samskiptum „vesturs og vesturs" það er Vest- ur-Evrópu og Bandaríkjanna en austurs og vesturs. Innrásin á Grenada kynni að koma róti á vestur-vestur sambandið á við- kvæmum tíma þegar innan skamms yrði hafist handa við að koma bandarískum kjarnorkueld- flaugum fyrir í Vestur-Evrópu. Malcolm Rutherford taldi ekki óeðlilegt að áherslu- og jafnvel stefnumunur væri í viðhorfum Vestur-Evrópubúa annars vegar og Bandaríkjamanna hins vegar Evrópu til Sovétríkjanna. Vegna nábýlis- ins í Evrópu og aldagamalla sögu- legra tengsla við Rússland væru Evrópubúar tregari til að höggva á tengslin við Sovétríkin en Bandaríkjamenn. Til langframa væri affarasælast að skapa spennulaust samband við Sovét- ríkin, þótt þau sæki ekki styrk sinn til annars en hernaðaraflsins — hafi ekkert að bjóða í hug- myndafræðilegum og menning- arlegum efnum. Þrátt fyrir hugmyndafræðilegan ágreining við Sovétmenn ætti ekki að heyja krossferðarstríð gegn þeim. Að lokinni ræðu svaraði Malc- olm Rutherford fjölmörgum fyrir- spurnum fundarmanna. Kom oft- ar en einu sinni fram að miðað við stöðuna í öryggis- og alþjóða- málum væri staða íslands ákaf- lega mikilvæg fyrir varnir Vestur- landa. Kjörbúð SS Glæsibæ hefur opið til kl. 4 í dag og er þaö gert meö leyfi samstarfsnefndar um opnunartímc. sölubúöa. Malcolm Rutherford, stjórnmálaritstjóri Financial Times, flytur ræðu á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs. (Ljósm. Mbl./Friðþjófur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.