Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1983 39 félk í fréttum + Antonio beitir Ijósmyndafyrir- sieta nokkur í New York, sem er svo eftirsótt, að hún tekur ekki minna en 27.000 ísl. kr. fyrir klukkutímann. Antonio hefur þá sérstöðu, að hann er api, tveggja ára gamall órangútan, og á þessari mynd er hann að auglýsa íþrótta- fatnað fyrir ísraelskt fyrirtieki. puir + Barbara Carrera heitir þessi faliega stúlka, 33 ára gömul og fædd og uppalin í Nicaragua. l»að leynir sér ekki á andlitsfall- inu, að hún hefur sitthvað af Indíánablóði f æðum, en annars hefur hún vakið mesta athygli á sér í James Bond-myndinni „Never Say Never Again“ með Sean Connery. í vor er leið var Barböru gert það góða boð að verða milljóna- eða milljarða- mæringur en hún sagði bara nei takk, ómögulega, og sendi gríska auðkýfinginn Nicholas Navroleon frá sér með „brotinn hrygg“. Connery vill segja ævisögu sína sjálfur + Sean Connery, James Bond öðru nafni, lætur sig miklu skipta hvað um hann er sagt og skrifað. Þegar hann komst að því fyrir nokkru, að til stæði að gefa út ævisögu hans að honum forspurðum, þá setti hann allt á annan endann þar til hann komst yfir eintak af bók- inni. Hann þurfti ekki að lesa í henni lengi til að ganga af göflunum í ann- að sinn. „Annað eins bull og slúður hef ég aldrei séð fyrr og ég var ekki seinn á mér að setja lögfræð- ing minn í málið. Nú er líka búið að stöðva út- gáfuna og dæma mér bætur að auki,“ segir Connery. Connery tókst hins vegar ekki að setja al- gerlega fyrir lekann því Sá sem leikið hefur James Bond lætur ekki bjóða sér hvað sem er. að nokkrir kaflar úr bókinni birtust í ensku sunnudagsblaði, sem varð svo að gera hvort tveggja, að biðja Conn- ery afsökunar og borga honum skaðabætur. „í bókinni er mér lýst sem algjöru fífli, sem gerði ekkert nema þvæl- ast fyrir við upptökurn- ar á fyrstu James Bond-myndunum. Það var þó ekki það versta, heldur það sem sagt var um skilnað minn við Di- ane Cilento. Við skildum í mesta bróðerni en í bókinni segir, að við höfum slegist á morgn- ana, á kvöldin og um miðjan dag. Auk þess að ég hafi haft af henni stórfé," segir Connery, sem hefur ákveðið að gefa skaðabæturnar ein- hverju góðgerðarfélagi. E VIÐ HÖFUM TILSKILIN LEYFI SKRIFSTOFA BORGARSTJÓRA Vðrumarkaður1nn, Armúla 1 A, Reykjavlk. OG HÖFUM OPIÐ í DAG TIL KLUKKAN 4 — báðar búðirnar — . n \(Ka — °9 S'n"nð sem á enga" "ZaSP. ta, oS"v ' aðPost9*v :„\KqVae^J_—•— .. n*bakaöa' ','ð 1 tióma a \ð' Ka"'- Svo er það að sjálfsögðu það sem mestu máli skiptir: YÖRUMARKAÐSYERÐIÐ og VÖRUMARKAÐSVÖRUVALIÐ i báðum búðunum. Vörumarkaðurinnhf. — Ávallt feti framar — ÁRMÚLA 1a EIÐISTÖRGI 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.