Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
15
Sýning Guðbergs heldur áfram
SÝNING Guðbergs Auðunssonar í sýningarsalnum i Þingholtsstræti 23 hefur
verið framlengd til 15. nóvember. Á fjórða hundrað manns hafa séð sýninguna í
hinum nýja sýningarsal sem einnig er vinnustofa Guðbergs. Sýningin er opin
daglega frá kl. 3—6. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 2—6, segir í frétt sem
Morgunblaðinu hefur borist
Rauði krossinn sendir
tjöld og teppi til Tyrklands
Alþjóða Rauði krossinn hefur
sent 6.000 tjöld og 35.000 teppi til
jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins í
Tyrklandi tóku að sér dreifingu
þessara hjálpargagna og að þeirra
sögn er mikil þörf einmitt fyrir
tjöld og teppi því þúsundir manna
hafi hvergi skjól og lítinn fatnað en
á jarðskjálftasvæðunum er nú mjög
kalt.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
jafnan á að skipa þjálfuðu liði
fólks sem er reiðubúið að fara til
starfa með stuttum fyrirvara ef
þörf krefur og skiptast Rauða
kross-félög nokkurra þjóða á að
hafa hóp tilbúinn. Að þessu sinni
var það hlutskipti Rauða krossins
í Noregi að vera á vakt og nokkr-
um klukkustundum eftir jarð-
skjálftann í Erzurum voru fjórir
Norðmenn komnir þangað til þess
að taka þátt í hjálparstarfinu.
Rauði krossinn í Noregi leigði
flugvél, sem flutti fólkið til Ank-
ara.
Eftir jarðskjálftana í Tyrklandi
árið 1976 kom Rauði krossinn þar
í landi upp birgðastöðvum fyrir
neyðarhjálp og var gert ráð fyrir
að ef náttúruhamfarir riðu yfir þá
mætti grípa til þeirra hjálpar-
gagna. Af hálfu félagsins var gerð
sérstök áætlun í þessu sambandi
og var strax gripið til hennar nú
þegar jarðskjálftarnir urðu í Erz-
urum og er talið að það hafi bjarg-
að mörgum mannslífum.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
nú sent út hjálparbeiðni til fjöl-
margra landa því enn vantar fé til
kaupa á hjálpargögnum, sérstak-
lega tjöldum og teppum.
Rauði kross íslands hefur gíró-
númer 90.000-1 og hafa þegar ver-
ið gerðar ráðstafanir af hálfu fé-
lagsins til að verja fé úr Hjálpar-
sjóðnum til bágstaddrra á jarð-
skjálftasvæðunum og annast Al-
þjóðasamband Rauða kross-félaga
í Genf milligöngu í því sambandi.