Morgunblaðið - 05.11.1983, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.11.1983, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 25 IHwgmifrlfifrifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, slmi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið. Landsfundur — kapítuli í íslandssögu Við erum öll, bæði sem þjóð og einstaklingar, að skrifa íslandssögu, frá degi til dags. Við ráðum þó ekki ein sögu- þræðinum. Atburðarás í umheiminum og í lífríki sjávar, svo dæmi séu nefnd, hafa þar afgerandi áhrif. Við leggjum að vísu okkar lóð á vogarskálar í samskiptum þjóða — og í verndun fiski- stofna. En við sitjum ekki einir við stjórnvöl, sízt í fyrr talda dæminu, þó við höfum þar skyld- um og hlutverki að gegna. Þrátt fyrir framansagt gildir hið fornkveðna, að hver er sinn- ar gæfu smiður, þjóðir og ein- staklingar. Þar undir fellur frumskylda hverrar sjálfstæðrar þjóðar, að IryKgja fullveldi sitt og öryggi í viðsjálum heimi. Veigamikill hluti þeirrar skyldu er að standa vörð um þjóðskipulag þingræðis, lýðræðis og þegnréttinda; þar sem þunga- miðjan er, eða á að vera, frelsi einstaklingsins, velferð hans og hamingja. Það var því að vonum að Geir Hallgrimsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, komst svo að orði, þegar hann horfði um öxl | og fram á veg í setningarræðu : 25. Iandsfundar Sjálfstæðis- flokksins: „Fyrst vil ég leggja áherslu á, að Sjálfstæðisflokknum hefur tekist að standa vörð um sjálf- stæði og öryggi þjóðarinnar á þe3su tímabili (þ.e. á formanns- árum hans), þrátt fyrir hat- rammar tilraunir til að brjóta niður þá utanríkisstefnu, sem Sjálfstæðisflokkurinn markaði fyrir 35 árum og haldið hefur gildi sínu siðan. Veturinn 1974 komust andstæðingar Sjálfstæð- isflokksins nær því marki en nokkru sinni fyrr að kippa stoð- unum undan þessari utanríkis- stefnu. Það mistókst sem betur fer. Eitt fyrsta verk þeirrar rík- isstjórnar, sem ég veitti forstöðu 1974—1978, var að endurnýja vamarsamninginn við Bandarík- in og staðfesta aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu... Ég 3egi það nú, góðir landsfundar- fulltrúar, að ekkert skiptir meira máli í starfi Sjálfstæðis- flokksins á næstu árum, en að hann standi trúan og traustan vörð um þessa grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins í utanríkis- og öryggismálum." Geir Hallgrímsson vék og að þeirri eldraun, sem Sjálfstæðis- flokkurinn, kjölfestan í íslenzk- um stjórnmálum, og hann sem flokksformaður, hefðu gengið í gegn um: „Mig hefur ekki skort aðhald, andstæðingar okkar sjálfstæð- ismanna hafa sýnt mér þann heiður að beina skeytum sínum að mér, sem formanni flokksins, og ráðlegt sjálfstæðismönnum að skipta um formann ... Ég hef aldrei tekið nærri mér árásir andstæðinganna, en mér hefur sárnað, þegar sjálfstæðismenn hafa gengið í gildrur andstæð- inganna og grafið undan eigin formanni... “ „Mér var það ofarlega í huga fyrir réttu ári, að afloknu prófkjöri í Reykjavík, að efna þá þegar til landsfundar og segja af mér formennsku. En ég tók þann kost að taka úrslitum prófkjörs eins og lýðræðissinna ber — og efna ekki til landsfundar í ótíma fyrir kosningar, áður en flokkur- inn væri sameinaður. Ég taldi aftur á móti skyldu mína að leiða sjálfstæðismenn samein- aða til sigurs." Það tókst að samstilla krafta flokksins á ný, sagði flokksfor- maðurinn efnislega, þann veg, að hann er í dag það virka og sterka þjóðmálaafl, sem hann fyrrum var og á að vera. „Nú þegar meirihlutinn í borgarstjórn hef- ur unnist á ný, úrslit alþingis- kosninga orðið Sjálfstæðis- flokknum hagstæð og mál hafa skipast svo á Alþingi, að Sjálf- stæðisflokkurinn er sameinaður við stjórnvöl þjóðarbúsins, þá ættu þeir innri erfiðleikar, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt við að stríða, að vera endanlega að baki ... Élg tel því að ég hafi sem formaður gengt skyldum mínum við Sjálfstæðisflokkinn, sjálfstæðisstefnuna og þær tug- þúsundir íslendinga, sem fylkt hafa sér undir merki fiokksins, og geti nú látið af starfi for- manns með góðri samvisku." „Það er verkefni þessa lands- fundar að skipa fiokknum nýja forystu," sagði Geir Hallgríms- son. „Því valdi sem landsfundar- fulltrúar hafa í því efni fylgir mikil ábyrgð.“ — „En umfram allt verða þó allir að vera á einu máli um það, að þegar talningu atkvæða í formannskjöri og eftir atvikum varaformannskjöri lýk- ur, þá er kosningabaráttunni um þessi embætti lokið, þá er fengin endanleg niðurstaða, sem allir undantekningarlaust eiga og verða að virða." Tuttugasti og fimmti lands- fundur Sjálfstæðisfiokksins er kapítuli í íslandssögunni. Mikil- vægur kapítuli. Þeir rúmlega þúsund landsfundarfulltrúar, hvaðanæva af landinu, sem hann skrá, hafi kjörorð fundarins í huga: „Fyrir framtíðina". Rætt vid fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisflokksins _ y 4»— Ragnheiður Þórðardóttir „Allir stað- ráðnir fylgja af al- hug þeim sem kosinn verður“ — Ragnheiður Þórð- ardóttir, fulltrúi frá Akranesi „Það má segja að ég hafi verið við- loðandi landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins síðastliðin 20 ár, en þó ekki alltaf sem kjörinn fulltrúi,” sagði Ragnheið- ur Þórðardóttir, landsfundarfulltrúi frá Akranesi. „Það bafa auðvitað átt sér stað á þessum tíma ýmsar breyt- ingar á landsfundunum, sem mér finnst hafa gerst í samræmi við aðrar breytingar í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Jú, fiokksstarfið á Akranesi er nokkuð öfiugt,“ sagði Ragnheiður aðspurð, „þar starfa sjálfstæðisfé- lögin og halda með sér fundi og full- trúar fiokksins í bæjarstjórn hafa haft þann háttinn á að halda opna fundi með bæjarbúum. Þeir eru haldnir á hverjum sunnudags- morgni og geta Akurnesingar komið og kynnt sér hvað er að gerast í bæjarmálum. A þessum landsfundi ber auðvitað mikið á formannskjörinu. Það sem mér finnst ánægjulegt er, að þó margir hafi þegar gert upp hug sinn varðandi frambjóðendur þá er slík- ur samhugur í fólki nú að allir virð- ast staðráðnir í að fylgja af alhug þeim sem kosinn verður.“ „Dýrmætt tækifæri fyrir fulltrúa utan af landi“ — Erna Nielsen, full- trúi frá Eskifirði styrki ríkisstjórnina til að starfa og breyta ástandi i landinu til betrí vegar“ Karl Sigurgeirsson „Mikilvægt að kynnast sjálfstæðis- mönnum af landinu öllu“ — Karl Sigurgeirsson, fulltrúi frá Hvammstanga Utan af landi er landsfundurinnn dýrmætt tækifæri til að hitta menn úr flokksforystunni og koma málum á framfæri,“ sagði Erna Nielsen, einn fjögurra fulltrúa frá Eskifirói á lands- fundinum. „Flokksstarfið á Eskifirði hefur nú verið fremur dauft undanfarið. Það fer þó vaxandi og við erum að reyna að fá sjálfstæðisfólk þar til að taka virkari þátt í starfinu. Ég tel að almennt og gangvart öllum flokkum sé ríkjandi hræðsla fólks við að standa opinbertega með þeim fiokki sem það kýs. Ástæðuna veit ég ekki, en mér finnst þetta nokkuð algengt meðal manna, burtséð frá stöðu þeirra í síjóramálum. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sit landsfund Sjálfstæðisfiokksins og það er von mín varðandi fundinn að fiokkurinn komi svo sterkur að það „Þetta er annar landsfundurinn sem ég sit og hann er töhivert frá- brugðinn þeim síðasta, sem einkennd- ist nokkuð af átökum innan flokksins. Nú finnst mér bera hæst viðhorfin gagnvart ríkisstjórninni og svo auðvit- að formannskosningin,** sagði Karl Sígurgeirsson, landsfundarfulltrúi frá Hvammstanga. „Auk þess að hér sé tekin afstaða til tiltekinna mála þá er ekki síður mikilvæg sú kynning sem verður á fundinum meðal sjálfstæðismanna um land allt. Og þetta er vettvangur okkar sem erum utan af landi til að benda forystu flokksins á hvar bet- ur mætti gæta hagsmuna sjálfstæð- ismanna á landsbyggðinni. Það má til dæmis senda meira af mönnum úr forystu fiokksins í heimsóknir til okkar. Við erum sjö fulitrúar úr sýsl- unni. Flokksstarfið þar er að mestu fólgið í sýslufélagi sem hittist og heldur með sér fundi. Þeir mættu vera fleiri en raun ber vitni, en það er alltaf erfiðara að halda uppi öfl- ugu starfi þar sem menn þurfa að fara miklar vegalengdir til að koma saman, en þar sem stutt er á milli." Júlíus Rafnsson „Einna merkilegust kynslóða- breytingin“ — Júlíus Rafnsson, fulltrúi frá Njarðvík „EINNA merkilegast við þennan fund finnst mér vera sú kynslóðarbreyting sem verður innan flokksins, burtséð frá því hver frambjóðenda nær kjörí í formannskosningunni," sagði Júlíus Rafnsson, einn tólf fulltrúa Njarðvík- ur á landsfundinum. „Ég hef setið landsfundi frá því ’67 og þó að heildarsvipurinn hafi lítið breyst þá hefur hver fundur sinn sjarma, ef svo má að orði kom- ast. Þau persónulegu kynni sem hér myndast á meðal sjálfstæðismanna vítt og breitt af landinu finnst mér ekki síður skipta máli en málefnin sem á dagskrá eru. Á þessum landsfundi ríkir mikill samhugur og það er von mín að eftir fundinn og formannskjörið standi sjálfstæðismenn enn sterkari og sameinaðri en nokkur sinni áður.“ „Stefiium að útgáfu greiðslu- korta innanlands í desember“ segir Einar S. Einarsson, forstöðumaður VISA-Íslands „Við hjá VISA-íslaadi stefnum að því að befja útgáfu greiðslukorta til notkun- ar hér innanlands í byrjun desember," sagði Einar S. Kinarsson, forstöðumaður fyrirtækisins, er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Jafnframt munu þau kort, sem þeg- ar hafa verið gefin út til notkunar erlendis verða gild í innlendum við- skiptum. Þá eru vonir við það bundn- ar, að gjaldeyrisreglur Seðlabankans verði rýmkaðar innan tíðar, þannig að eitt kort geti gilt fyrir alla allsstaðar, þ.e. bæði hér heima og erlendis. Hin nýju VlSA-kort munu verða búin fjöl- þættum eiginleikum, sem nánar verð- ur greint frá síðar. Að sogn Einars hefur undirbúning- ur vegna þessara greiðslukorta fyrir- tækisins til innaniandsnotkunar stað- ið yfir frá því í haust, en fyrirtækið tók fyrst formlega til starfa þann 8. ágúst sl. í nokkra mánuði. Sagði hann, að þessi mál hefði öll þurft að undir- búa vandlega og jafnframt hefði tekið tíma að hanna tölvukerfi í tengslum við starfsemina. Þegar á allt væri litið væri vart hægt að segja annað en málið hefði gengið hratt fyrir sig frá því hafist var handa. Einar sagði hin nýju greiðslukort VISA-íslands vera gefin út á nafni hvers aðildarbanka eða sparisjóðs og á ábyrgð þeirra. Bankarnir eru fimm talsins, þ.e. Landsbankinn, Sam- vinnubankinn, Iðnaðarbankinn, Bún- aðarbankinn og Alþýðubankinn, auk 13 sparisjóða, sem hafa sameiginlegt kort til að byrja með, en verða síðar einnig með sérheiti. Samtals mynda hlutaðeigandi bankar og sparisjóðir 81% bankakerfisins, að sögn Einars. „Hér á landi eru gefnar út u.þ.b. 100.000 ávisanir dag hvern. Við gerum okkur hugmyndir um að fljótlega muni kortaviðskiptin nema tíunda hluta þeirra. Það er ríkt í íslending- um að nota sér það geti þeir fengið lánað. I ljósi þess tel ég ekki óeðlilegt að ætla að þróun greiðslukorta hér- lendis eigi eftir að verða mjög ör. Greiðslukort eru orðin mjög ráðandi víða erlendis og í sumum tilvikum er hreinlega erfitt að komast leiðar sinn- ar hafi menn ekki traust greiðslukort. Að hafa slíkt kort í fórum sínum und- irstrikar jafnframt, að viðkomandi njóti trausts banka síns eða spari- sjóðs og sé öruggur viðskiptavinur," sagði Einar. Þá lét Einar þess getið, að þeir sem hefðu hug á að fá sér VISA-greiðsluk- ort ættu að snúa sér beint til VISA- bankanna eða sparisjóðanna. Sömu- leiðis þeir verslunarstjórar og þjón- ustuaðilar, sem hyggja á að bjóða viðskiptamönnum sínum VISA- greiðslukortaþjónustu. Þóknun af öll- um viðskiptum yrði haldið í lágmarki. Einar sagði í lokin, að hvað sem segja mætti um greiðslukort, væri Ijóst, að þau væru ákafiega þægilegur greiðslumáti. I ljósi hinnar öru tölvu- þróunar myndu lestæki í verslunum gera þau enn hagkvæmari og jafn- framt öruggari í notkun í framtíðinni. Fyrsta húsið í Reykjavik með límtrésstoðir Byggingarvönivershinar Tómasar Björnssonar, Akureyri. Ljóamynd MbiVKee. Límtrésframleiðsla hafin á Akureyri Árni Árnason. „Það er bjartsýni að hefja framleiðslu á límtré fyrir norð- an þegar markaðurinn liggur í Reykjavík, en það færi þó líklega illa ef allir flyttu á mölina" Ljósmynd Mbl./Kee. Byggingavöruverslun Tómasar Björnssonar (BTB) á Akureyri bóf fyrir skömmu framleiðslu i límtré til byggingar, og nú er risið í Reykjavík fyrsta húsið með stoðum úr límtré eingöngu frá BTB. Morgunblaðið átti í tilefni þessa stutt viðtal við Árna Árnason, for- stjóra fyrirtækisins, um þessa nýju starfsemi. „Iðnaðurinn og vinnslan sem við höfum hafið er hliðarstarfsemi, þróun svipuð og orðið hefur hjá mörgum öðrum byggingavöru- verslunum,“ sagði Árai. „BTB er langstærsta timburverslun utan Reykjavíkur, okkar sérsvið er inn- fiutningur á byggingartimbri sem við mestmegnis höfum selt á Norður- og Austurland. Fyrir tveimur árum hófum við timbur- iðnað, fyrst með því að setja sam- an planka með fingrun og nú í sumar hófum við að fúaverja timbur og framleiða panel og límtré. Þetta hefur hingað til ver- ið fiutt inn erlendis frá í stórum stíl, en við vonumst til að þessi Kyndingin sem á að hita verksmiðjuhúsið og þurrka timbrið, hún gengur fyrirsagi framleiðsla okkar verði til þess að innfiutningurinn minnki. Því þessi iðnaður skapar ekki aðeins atvinnu heldur sparar einnig A.í’=gs'D’;tí<ES>ai)íMr:yRjos (j * v<Gxnxn> Teikning af framtíðarhúsnæði BTB. Annað húsið er risið, en frágangi ekki lokið. gjaldeyri. Það er skammt síðan við byrj- uðum en okkur virðist sem mark- aðurinn fyrir þessar vörur okkar ætli að verða mestur í Reykjavík. Það er dýrt fyrir okkur vegna fiutninganna að sækja á markað hér og að því leyti til viss bjart- sýni að reisa þessa verksmiðju fyrir norðan. Én það hefur þó aldrei hvarfiað að okkur að reisa hana í Reykjavík. Verslunin er gamalgróin á Akureyri og líklega færi illa ef allir fiyttu á mölina. Við hófumst handa fyrir rúmu ári við að reisa iðnaðarhús, það er 2500 fermetrar að stærð og stend- ur í Glæsibæjarhreppi rétt utan við bæjarmörk Akureyrar. Fyrir- hugað er að húsin verði tvð, annað fyrir byggingavöruverslunina sem á að vera með nýtisku sniði og hitt fyrir límtrésverksmiðju eingöngu. Én nú er útlit fyrir að bið verði á að við getum lokið byggingu þess fyrra. Það hús höfum við aðeins getað tekið í notkun að litlu leyti. Og á meðan er límtrésverksmiðjan í mjög ófullkominni aðstöðu. Það stendur á að selja húseignir okkar í miðbænum. Akureyri má segja að sé í öldudal og það gengur illa að selja fasteignir, en vonandi er að breyting verði á því. Við eigum allar vélar og einnig nýstárlega kyndingu sem mun þurrka timbrið og hita upp húsið með trjákurli og sagi því sem myndast við fram- leiðsluna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.