Morgunblaðið - 05.11.1983, Síða 34

Morgunblaðið - 05.11.1983, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 Held maður komist ekki langt með þyí að velkjast með tízkustraumum — segir Ása Ólafsdóttir vefari Er íslenzkir myndlistarmenn sem dveljast langdvölum í útlöndum koma heim til að sýna verk sín kemur ekki i óvart þegar myndirnar endurspegla framandi umhverfí og náttúru eða bera þess önnur augljós merki að listamaðurinn hefur orðið fyrir meiri eða minni áhrifum af alþjóðlegum straumum í myndlist. Sú er ekki raunin í I.istmunahúsinu við Lækjargötu þar sem Ása Ólafsdóttir vefari sýnir ofnar myndir og klippimyndir um þessar mundir, en Ása hefur verið búsett í Svíþjóð undanfarin átta ár. Myndir hennar eru hlutlægar, eða „fígúratívar", og myndefnið er rammíslenzkt. í flestum myndanna mætast miklar and- stæður á myndfletinum, — annars vegar sterkir dimmir fletir og hins vegar margbrotnar myndir, í flngerðum litum. Landslag og fornir garpar í litklæðum koma þar fyrir og í einni gefur að líta „Islandsför Sancho Panza“ en einnig hann og múlasninn draga dám af íslenzkum hetjum. Fyrsta spurningin sem ég lagði fyrir Ásu í samtali í vikunni varðar efnið sem hún vinnur úr: — Nei, það er ekki íslenzkt. Það er kannski það eina sem ekki er íslenzkt 1 myndunum. — Ull er það efni sem þú not- ar helzt. Hví notarðu ekki ís- lenzka ull? — Sú ull sem völ er á hér hentar alls ekki í myndverk. Efnið verður að vera gljáandi þannig að það varpi frá sér ljósi, en eins og íslenzka ullin er unnin þá er hún mött og gleypir eigin- lega ljósið er það kastast á flöt- inn. Það vaeri tilvalið að nota ís- lenzka ull ef hún væri betur unn- in, t.d. væri togið alveg kjörið því það er svo gljáandi en það er ófáanlegt hér, hvernig sem á því stendur. Eg hefði mikinn áhuga á að vinna úr íslenzku ullinni og það er sárt að eiga þess ekki kost. Mér er sagt að það borgi sig ekki að taka ofan af, þ.e. að að- skilja þel og tog, en það held ég sé á misskilningi byggt. Þvert á móti held ég að hvort tveggja yrði mjög eftirsótt, bæði hér heima og erlendis. Víða um lönd hefur textíllist og margskonar listiðn fleygt fram hin síðari ár og verulega fínt efni á borð við íslenzka ull er hvarvetna eftir- sótt og selt dýrum dómum. Opinberir aðilar hér á landi ættu að gaumgæfa þessa möguleika vel og vandlega, finnst mér, og það er sorglegt ef íslenzk þjóð týnir niður því að fara með ís- lenzka ull. Hér er verið að bruðla með tvenns konar verðmæti, tímanleg og menningarsöguleg. — Hvers lenzk er þá ullin sem þú notar? — Norsk. Af fé syðst í Noregi. Auk ullarinnar nota ég líka talsvert hör og mohair til að fá mismunandi áferð. — En litirnir? — Þeir eru þýskir. Ég lita allt mitt efni sjálf og nota til þess kemíska liti. Það væri gaman að nota jurtaliti en þeir eru því miður ekki eins varanlegir og kemísku litirnir. Með hinum síð- arnefndu er hægt að ná mjög góðum árangri og fá nánast hvaða litbrigði sem er, jafnvel þau sömu og með jurtalitum svo ekki sést munur á, en þegar myndvefnaður er annars vegar verður að gera þá kröfu að litirn- ir haldi sér. * — Nú er vefnaður einhver seinlegasta aðferð sem beitt er í myndlist. Hvað olli því að þú tókst þessa aðferð framyfir aðr- ar? — Ég býst við að það hafi ver- ið nálægðin við þetta efni sem þar réð mestu. Þó ekki sé nema sjálf snertingin við efnið. Auk þess lætur mér vel að framkalla þær myndir sem mig langar til með þessum náttúrutrefjum, og frá því að ég var smástelpa hef ég alltaf verið að handleika tusk- ur og garn og búa eitthvað til. Ég var byrjuð að sauma á saumavél þegar ég var fimm ára og síðan tók ég að prjóna og hekla, sauma út og stoppa og staga og breyta fötum meira og minna stjórnlaust. Ég var slæm með það langt fram eftir aldri að þrífa eitthvert efni og kasta mér út í verkefni en leggja það síðan frá mér áður en ég lauk við það, líklega af því að þá var ég búin að fá leið á hugmyndinni. Það var svo ekki fyrr en ég settist við vefstól að ég fann að það var einmitt vefnaður sem hentaði mér betur en allt annað. Þarna sat ég fyrir framan ramma sem var afmarkaður og í honum var uppistaðan og ekki um annað að gera en halda sig innan þessa ramma. — Myndefnið, hvaðan færðu það? — Ég held mér sé óhætt að segja að það sé mjög persónu- bundið. Ég hef ekki trú á pólitík í myndlist. Það sem maður vill koma á framfæri verður að koma innan frá. Ég held maður komist ekki langt áleiðis í myndlist með því að taka undir með einhverjum áróðurskór eða velkjast með tízkustraumum. — Hvað um spjótsodda og hernaðarbrag sem víða má sjá í myndum þínum? — Þetta eru tákn um átök innra með mér sjálfri. Þú sérð líka mýkri form, t.d. laufblöð eða spjótsodda sem líkjast laufblöð- um, — nú eða þá laufblöð sem minna á spjót. Mjúku formin endurspegla lundina þegar hún er hvað Ijúfust. Ég er ekki sér- lega blíð í garð umhverfisins öll- um stundum. Maður má til að verja sjálfan sig. — Gagnvart hverju? — Til dæmis þjóðfélaginu. Það þjóðfélag sem ég hef verið í undanfarin ár kallar á varnir einstaklingsins. Sænskt þjóðfé- lag er að verða hálfgert lögreglu- ríki. Einstaklingnum er ekki treyst til að bera ábyrgð á sjálf- um sér og sínum högum. Það er óðfluga stefnt að því að svipta hann sjálfsforræði. Hvarvetna má sjá þess merki. Það er til dæmis verið að leiða það í lög í Svíþjóð að hlera megi síma hvers sem er, leiki grunur á því að sá hinn sami hafi komið ná- lægt fíkniefnum með einhverj- um hætti. Hvar á að draga mörkin? Og hver á að gæta þess að það sé gert? Það er talið mjög óæskilegt að hafa áfengisútsölur í tengslum við venjulegar verzl- anir af ótta við að fólk missi sjálft sig inn um dyrnar um leið og það kaupir í matinn, og svona mætti lengi telja. Svona and- rúmsloft gegnsýrir allt þjóðfé- lagið. Fólk er tortryggið og vart um sig og í slíku þjóðfélagi held ég að fáir uni sér. Að minnsta kosti ekki ég og því hlakka ég óskaplega til að flytjast heim aftur nú eftir áramót. Viðtal: Áslaug Ragnars. Ljósm.: Kristján Einarsson. Eggjadreifíngarstöð — eftir Guðmund Stefánsson Ekki virðast allir á eitt sáttir um að setja á stofn eggjadreif- ingarstöð, en Framleiðsluráð landbúnaðarins samþykkti nýlega að veita 5,3 milljónum króna til stofnunar slíkrar stöðvar. F’lest er eggjadreifingarstöð fundið til for- áttu. Það er rætt um einokun, að troðið sé á hagsmunum neytenda, að verið sé að verja stórfé í óþarfa yfirbyggingu og að allir almenni- legir eggjabændur séu settir hjá og jafnvel að verið sé að reyna að koma þeim á kné. Þannig sé ekki heil brú í stofnun og starfrækslu eggjadreifingarstöðvar. Andstæðingar eggjadreifing- arstöðvar eru vafalaust víða úr þjóðfélaginu, en þeim má þó skipta i 3 meginflokka. Það eru áhugamenn ýmsir um frjálsa sam- keppni, ýmsir eggjabændur, eink- um þó hinir stærstu, og svo loks forsvarsmenn neytendasamtaka. Frjálshyggjumenn Það kemur út af fyrir sig engum á óvart þótt talsmenn frjálsrar samkeppni og hreins markaðsbú- skapar séu á móti skipulagi á eggjamarkaðnum. Hér er líka yf- irleitt um einstaklinga að ræða og þeir eru ekki umbjóðendur ann- arra en sjálfs sín. Við því er auð- vitað ekkert að segja, þótt menn aðhyllist frjálsa samkeppni. Það er hins vegar svo, að í nær öllum stéttum og starfsgreinum þjóðfé- lagsins ríkir eitthvert skipulag. Þannig er t.d. kauptaxti verka- „Andstæðingar eggja- dreifingarstöðvar eru vafalaust víða úr þjóð- félaginu, en þeim má þó skipta í 3 meginflokka. Það eru áhugamenn ýmsir um frjálsa sam- keppni, ýmsir eggja- bændur, einkum þó hin- ir stærstu, og svo loks forsvarsmenn neytenda- samtaka.“ fólks fastákveðinn í samningum samtaka verkafólks og atvinnu- rekenda, öðrum en múrurum er óheimilt að stunda múrverk, leigubílar aka eftir ákveðnum taxta o.s.frv. Þannig hefur sam- keppnin í raun verið heft og haldið innan marka sem flestir telja skynsamleg. Það er því einkenni- legt ef sjálfsagt er talið að eggja- bændur skuli berast á banaspjót og þeim att út í vonlausa „sam- keppni'. Vonlausa vegna þess, að þeir hafa jafnvel verið neyddir út í verðstríð þar sem smásöluverð hefur verið lægra en bara fóður- kostnaður bóndans. Þannig hefur það verð, sem hann fær fyrir af- urðir sínar, engan veginn nægt fyrir breytilegum kostnaði, hvað þá að hann geti greitt sjálfum sér laun eða hafi haft fyrir föstum kostnaði. Slíkt verðhrun er ekki nema að hluta vegna offram- leiðslu en aðallega vegna skipu- lagsleysis. Hvað eftir annað hefur það gerst á eggjamarkaðnum að þúfan hefur velt hlassinu. Vanda- mál eins eða örfárra framleiðenda hafa færst yfir á heildina. Það er því eðlileg krafa eggjabænda að þeir búi við lágmarksskipulag sem tryKgi þeim eftir föngum sann- gjarnt verð og sæmilega örugga lífsafkomu líkt og aðrar stéttir í þjóðfélaginu hafa. Stórframleiöendur En hvers vegna eru þá sumir eggjabændur á móti eggjadreif- ingarstöð? Þeir eggjabændur sem eru á móti eggjadreifingarstöð eru fyrst og fremst þeir stærstu. Þeirra sjónarmið eru líka að ýmsu leyti skiljanleg. Nú er svo komið að 3—4 stærstu eggjaframleiðend- urnir hafa um 30—40% mark- aðshlutdeild. Þessir framleiðend- ur hafa í mörgu aðra aðstöðu en hinir smærri. Vegna stærðar bú- anna og mikillar umsetningar standa þeir betur að vígi þegar um undirboð er að ræða, þ.e. þeir þola betur timabundnar verðlækkanir. Þeir hafa fyllt upp í það rúm sem skapast hefur í hvert sinn sem smærri framleiðendur hafa horfið af markaðnum og þannig aukið markaðshlutdeild sína. Nú þegar hafa þeir mikil áhrif á þróun markaðarins og þau áhrif aukast að sjálfsögðu með aukinni mark- aðshlutdeild án þess að enn sé tímabært að nefna einokun. Því hefur margsinnis verið haldið fram, að það séu einmitt þessir stóru framleiðendur sem fram- leiða ódýrustu eggin og stuðli að lægra vöruverði til neytenda. Þetta kann auðvitað að vera rétt, þótt þess sjái ekki stað enn sem Guðmundur Stefánsson komið er. Egg eru verðlögð af stjórn Sambands eggjaframleið- enda og það vill svo til að flestir stærstu eggjaframleiðendurnir eiga sæti í stjórninni. Þeir standa því að baki þeirri verðlagningu sem er á eggjum og sú verðlagning er neytendum ekkert hagfelldari en verðlagning annarra búvara. Meðan jafnvægi ríkir á eggja- markaðnum taka allir eggjabænd- ur fullt verð hvort sem þeir eru stórir eða smáir. Neytendasamtökin Hlutur stjórnar Neytendasam- takanna í þessu máli er á vissan hátt annars eðlis. Þar er um að ræða fámennan hóp fólks sem tal- ar i umboði miklu meiri fjölda. Að mínu mati hafa Neytendasamtök- in að nokkru leyti tekið skakkan pól í hæðina. Þau hafa nær ein- göngu horft á eggjaverðið og það er auðvitað kappsmál að það sé sem lægst. Hitt er annað, að hagur neytenda er ekki eingöngu fólginn í lágu verði heldur líka og e.t.v. miklu frekur í vörugæðum. Ég held að hag neytenda sé best borg- ið með „sanngjörnu" verði og fyrsta flokks gæðum. Sem betur fer eru gæði eggja hér á landi yfir- leitt með ágætum. Því er þó ekki að leyna að of oft fá neytendur blóðegg, sprungin egg og stundum of gömul egg. Þá er það auðvitað hvimleitt að í sömu pakkningunni, sem inniheldur aðeins 10 egg, skuli finnast allt frá alstærstu og niður í alsmæstu egg og allt þar á milli. Hvað er eggja- dreifingarstöð? Fyrir skömmu skoðaði ég eggja- dreifingarstöðvar í Noregi og þar er nokkuð annað lag á hlutunum en hér landi. I stuttu máli starfar eggjadreifingarstöð þannig, að egg eru sótt til bænda einu sinni i viku. Þegar í stöðina er komið eru öll egg nákvæmlega skoðuð og gegnumlýst og tínast þá úr 5—10% eggjanna. Það er vegna blóðs, sprungna eða annarra galla í skurn, óhreininda eða annarra þeirra ástæðna sem gera eggin óhæf til að fara á almennan mark- að. Þetta er sem sé gæðaeftirlit sem snýst eingöngu um gæði og heilbrigði eggjanna. Þau egg sem standast allar gæða- og heilbrigð- iskröfur eru síðan stærðaflokkuð í 8 stærðarflokka og stærstu og smæstu eggin tekin frá. Öðrum eggjum er síðan pakkað í 6, 10, 15 og 30 eggja pakkingar og pakkarn- ir dagstimplaðir. Neytandinn get- ur síðan keypt smá, meðalstór eða stór, jafnvel mjög stór egg í mis- munandi stórum pökkum. Um- framframleiðsla á eggjum svo og þau egg, sem ekki fara á almennan neytendamarkað, fara til vinnslu i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.