Morgunblaðið - 05.11.1983, Page 35

Morgunblaðið - 05.11.1983, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 35 Fræðsluþættir frá Geðhjálp: Vetrarstar fið Góðir lesendur! Nú tökum við upp þráðinn aft- ur með fræðsluþætti Geðhjálpar eftir langt og gott sumarfrí. Þó sumarið hafi ekki verið með því besta sem komið hefur, var það engu að síður gott sumar hjá fé- laginu. Við ætlum í vetur að reyna að miðla ykkur fræðslu- efni er varðar geðræna erfið- leika, við munum fá sérfræðinga til að skrifa og einnig fólk sem hefur reynt ýmislegt en stendur upprétt og hefur ekki látið bug- ast. Við fengum á síðastliðnum vetri margar óskir um að fleiri segðu frá reynslu sinni úr lífinu, þær greinar sem birtust um reynslu annarra virðast hafa aukið skilning margra og ýmsir töluðu um að margt sem þar kom fram þekktu þeir af eigin reynslu. Einnig þeir sem höfðu ekkert hugsað um þessi geðrænu vandamál, töldu svona frásagnir auka skilning. Þá er það vel. Þessum þáttum er ekki ætlað að bjarga öilum heimsins vanda- málum heldur að auka skilning og fræða fólk um hvað til ráða er, ef þú sem þetta lest eða ein- hver þér nákominn á í erfiðleik- um, hvernig hægt er að hjálpa sér sjálfur og hvert er hægt að leita. Við gerum okkur ekki oft grein fyrir því hvað við höfum það gott og búum í dásamlegu landi, alstaðar í kringum okkur eru hræðilegir hlutir að gerast, stríð milli þjóða, atvinnuleysi og sveltandi fólk, að ekki sé talað um þau börn sem fæðast aðeins til að lifa við hörmungar í nokk- ur ár og deyja svo. Einhver segir, hvað kemur mér það við. Jú, kæri vinur. Okkur koma allar lifandi mann- eskjur við. Á íslandi í fámenninu eigum við að styðja þá sem í erf- iðleikum lenda til sjálfsbjargar. Þeim eigum við að hlúa vel að sem eru líkamlega og andlega fatlaðir, og geta ekki séð um sig sjálfir. Ég bið ykkur að láta frá ykkur heyra, hvað þið viljið fræðast um, koma með spurn- ingar sem við munum leita svara við. Ekki láta okkur í Geðhjálp mata ykkur með fræðslu. Þessir þættir eru opnir öllum er með mannleg vandamál hafa að gera. f vetur mun félagið gangast fyrir fyrirlestrum um geðheil- brigðismál. Þeir verða haldnir á geðdeild Landspítalans í kennslustofu á 3. hæð. Þeir verða allir á fimmtudögum og hefjast kl. 20.00 og verða í þeirri röð sem hér segir: 1. des. 1983, Anna Valdimars- dóttir sálfræðingur. Kynning á námskeiðum í sjálfsstyrk- ingu. 26. jan. 1984, Oddi Erlingsson sálfræðingur. Um sjálfshjálp- arhópa. 16. febr. 1984, Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir. Um endurhæfingu geðsjúkra. 8. mars 1984, Eiríkur Örn Arn- arson sálfræðingur. Hugræn meðferð á depurð. 5. apríl 1984, Högni óskarsson geðlæknir. Meðferð geðklofa utan stofnana. 3. maí 1984, Guðrún Jónsdóttir geðlæknir. Orsakir, meðferð og fyrirbygging á sjálfsvígum. Ef fleiri fyrirlestrar verða í boði í vetur, verða þeir auglýstir sérstaklega. Heilræði vikunnar er: Verum bjartsýn! Ég kveð að sinni, Andrea eggjavöruverksmiðju. Þannig er leitast við að draga úr sveiflum á markaðnum og halda verðlagi jöfnu eftir því sem tök eru á. í meginatriðum myndi eggja- dreifingarstöð hér á landi starfa eins. Bóndinn gæti einbeitt sér að framleiðslunni og losnaði við þann kostnað sem er samfara dreifingu og sölu eggjanna. Hann gæti því lækkað verðið á eggjunum og lækkunin rynni til eggjadreif- ingarstöðvarinnar. Samkvæmt þeim útreikningum sem gerðir hafa verið ætti tilkoma eggja- dreifingarstöðvar ekki að hækka verð eggjanna, jafnvel er hugsan- legt að það myndi lækka ef stöðin fengi umtalsverða markaðshlut- deild. Neytandinn myndi því fjár- hagslega standa í sömu sporum og kaupa egg á svipuðu verði og áður, en munurinn væri sá, að nú væru eggin flokkuð og gæðaskoðuð og auk þess dagstimpluð. Þannig væri búið að færa umsetningu á eggjum í líkt horft og er á sölu mjólkur, kjöts og annarra mat- væla. Hvað er ekki eggjadreifingarstöð? Því hefur verið haldið fram að til staðar séu eggjadreifingar- stöðvar, þ.e.a.s. hver framleiðandi hafi í raun dreifingarstöð, og því sé óþarfi að stofna nýja. Þetta er alls ekki rétt. Þó menn eigi jafnvel sendiferðabíl þá er það ekki jafn- gildi dreifingarstöðvar. Flokkun og gæðaeftirlit með þeim hætti, sem lýst er hér að framan, eru skilyrði fyrir því að hægt sé að tala um dreifingarstöð og þó svo að einstakir framleiðendur selji „gæðaegg", „þriggjastjörnu egg“ og fleira þess háttar, þá er þar ekki um annað að ræða en venju- leg óflokkuð egg. Sameiginlegir hagsmunir Forsenda stofnunar eggjadreif- ingarstöðvar er auðvitað að hags- munum bæði framleiðenda og neytenda sé betur borgið með henni en án. Bændur eiga rétt á að fá greitt sanngjarnt verð fyrir þá vöru sem þeir framleiða, þannig að þeir hafi sæmilegt lífsviðurværi en þurfi ekki að búa við að eignir þeirra og afkoma sé í stöðugri hættu, einnig þeir neytendur sem framleiða egg. Neytendur eiga rétt á að geta treyst því að sú vara sem þeir kaupa sé á sanngjörnu verði, sé gæðavara, gallalaus, flokkuð og ekki of gömul — einnig þegar þeir kaupa egg. (iudmundur Stcfánsson er búnaA- arhagfræðingur hji Stéttarsam- bandi bænda. Dalvík: Ný stjórn í sjálfstæð- isfélaginu á Dalvík Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Dalvíkur var haldinn sunnudaginn 30. október sl. Á fundinum fór fram, auk venjulegra aðalfundarstarfa, kjör fulltrúa á landsfund flokksins jafnframt stjórnarkjöri og kjöri full- trúa á kjördæmisþing. Formaður félagsins var kosinn Trausti Þorsteinsson og með hon- um í stjórn Friðrik Friðriksson, Hallgrímur Antonsson, Sigriður Rögnvaldsdóttir og Þorgils Gunn- laugsson. — Fréttaritarar. í tilefni 50 ára samstarfs við AVERY verðum við með kynningu á AVERY Commander búðarvog- um dagana 8. og 9. nóvember nk. kl. 10-16 ' í husakynnum okkar, Sundaborg 22. Sérfræðingur á vegum AVERY verður staddur hjá okkur báða dagana og mun hann leiðbeina og gefa góð ráð varðandi notkun voganna. Umsögn Hrafn Bachmann Kjötmiðstöðinni Laugalæk_______ Æðislegar! Ég mundi ekki treysta mér til að reka verslun í dag án AVERY voga. Gefur neytandanum fullar merkingar á miðum. Gísli Halldórsson Kostakaup Hafnarfirði__________ Okkur líkar hún mjög vel. Flýtir fyrir afgreiðslu og prentar út ná- kvæma vörulýsingu. Mjög öruggt tæki. Björn Kristjánsson Hagkaupum Skeifunni____________ Sérstaklega goð ög einföld í notkun. Jóhann Kiesel Vörumarkaðinum Eiðstorgi______ Mjög einföld í notkun. Neytandinn vigtar sjálfur vöruna, t.d. appel- sínur. Aðeins er ýtt á einn takka og prentarinn gefur út miða með öllum upplýsingum um verð, þyngd og vörutegund. Hægt að fylgjast vel með hvað við kaupum og hvað við seljum, þar af leiðandi góð nýting á vörum. Runný Bjarnadóttir Norðurtanganum ísafirði_______ Ákaflega nákvæm. Skammar mig ef ég geri vitleysu. AVERY Commar WEIGHT kg PRICE/kg $ ABCDE AVERY Commonder ~) WEIGHT PRICE/ kgi PRICE kg $ $ ^ 14.815 6.43 95.26 J Áprentaðir miðar frá Vörumerkingu hf. Fulikomin vogaþjónusta og vogaverkstæði að Smiðshöfða 10. Sími 86970. SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 llLÍtrjtjr-lUíiíílÍÍ 5*Sfé<n^O£iOia-W5;^il r*fí XMJltl ilA-kiM***-**. **#* ■**&* c*4j -4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.