Morgunblaðið - 05.11.1983, Page 45

Morgunblaðið - 05.11.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI w TIL FÖSTUDAGS nr t\y uj-MnFX'a.a'u tf Nú gefst tækifæri til að fá nýtt verkefni fyrir stóru skuttogarana Skúli Ólafsson, Reykjavík, skrif- ar: „Velvakandi. Bandaríkjastjórn hefur ítrekað tilboð sitt til íslands, vegna hval- veiðibannsins, að þeir veiti íslend- ingum heimild til að fiska við strendur Bandaríkjanna. Lands- samband íslenskra útvegsmanna hefur ekki talið, að þetta tilboð skipti máli fyrir okkur, þar sem ekki sé leyft að landa aflanum óunnum í Bandaríkjunum, nema veiðiskipið sé smíðað þar, auk þess sem við eigum enga verksmiðju- togara. Sama dag og þessi frétt kom í útvarpi voru opnuð tilboð í Hafþór og í viðtali við forstjóra slipp- stöðvarinnar á Akureyri kom fram, að slippstöðin hefði lokið breytingu á Guðsteini, systurskipi Hafþórs, og hann væri orðinn verksmiðjutogari og héti Akur- eyri. Þessi frétt er tímanna tákn: Við getum breytt stóru skuttogurun- um í verksmiðjuskip, sem geta hagnýtt sér tilboð Bandaríkja- stjórnar. Þessi skip hafa, vegna fjölda skipverja (þriðjungi fleiri en á minni skipunum), enga mögu- leika á sambærilegum launakjör- um skipverja, og útgerð þeirra hefur verið rekin með stórtapi. Stytting veiðitímans vegna gæða- r „ Við getum breytt stóru skut- togurunum í verksmiðjuskip, sem geta hagnýtt sér tilboð Bandaríkiastiórnar." matsins er e.t.v. hagstæð fyrir minni gerð skuttogara sökum mikils vinnuálags, en mjög óhagstæð fyrir stærri skipin. Allt bendir til þess, að nú gefist tækifæri til að fá nýtt verkefni fyrir stóru skuttogarana sem verksmiðjuskip og SH og Sam- bandið hafa góða aðstöðu í Banda- ríkjunum til að ráðstafa aflanum þar. Á sínum tíma var gert mikið veður út af sölu á úreltum skipum Björgvins Bjarnasonar á Ný- fundnalandi. En endurnýjun flot- ans er aðkallandi og þá er mikils- vert að finna verkefni fyrir gömlu skipin. Það virðist einnig opnast tækifæri til að landa ferskum fiski í Bandaríkjunum, ef skip er keypt þaðan. Þessi afli færi á fersk- fiskmarkað og gæti það létt á freðfiskmarkaðinum, sem núna er ofmettaður að því er virðist. Þessir hringdu . . . Ekki við ökumenn- ina eina að sakast Gísli Jónsson prófessor hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Það hefur mikið verið rætt um umferðarmál að undanförnu, og ekki að ástæðulausu. En það er ekki við ökumennina eina að sakast. Mér gremst það, hvað gatnamálayfirvöldum ætlar seint að lærast og gera gatna- mót, svo að vel fari. Nýlegt dæmi um þetta eru gatnamót tengi- götu frá Öskuhlíðarsvæðinu og Kringlumýrarbrautar, þar sem tengigatan kemur skáhallt út í Kringlumýrarbrautina, í gjánni. Þarna er enn eitt dæmi um teng- ingu inn í mikla umferðargötu án þess að aðdragandi sé hafður með akrein samsíða henni. Þetta hefur í för með sér, að ökumaður sem kemur eftir fyrrnefndri tengigötu og ætlar inn á Kringlumýrarbraut sér ekki um- ferðina þar í baksýnisspeglinum fyrr en leiðir skerast. Hann verður að snúa sér í hálfhring til þess að horfa inn á Kringlumýr- arbrautina og bjóða þar með þeirri hættu heim að aka aftan á næsta bíl á undan, ef hann stansaði nú skyndilega. Þarna er þó nóg pláss til þess að hægt sé að hafa akrein í framhaldi af tengigötunni, samsíða Kringlu- mýrarbraut, helst þannig að hægt sé að ná upp eðlilegum ökuhraða og smella síðan inn í umferðina með því að færa sig á milli akreina. Svona er þetta hvarvetna erlendis og raunar á nokkrum stöðum hér á Reykja- víkursvæðinu. Nefna má mót tengigötu af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut, og nokkur fleiri, en allt of víða er það á hinn veginn: Menn verða næst- um því að snúa sig úr hálsliðnum á vanhugsuðum gatnamótum og eiga á hættu aftanákeyrslu. Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvort þetta geti stafað af því, að þeir sem þarna standa að verki, kunni hreinlega ekki að hanna umferðarmannvirki. Það er allt- af verið að kenna ökumönnum um að þeir einir beri alla ábyrgð á umferðaröngþveitinu, en mér sýnist bara að gatnamálayfir- völd eigi þar nokkurn hlut. * Aður en slys verður Jakob Hólm hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Það er ástæða til að benda á hættu sem skapast hefur með tilkomu nýju tengigötunnar sem liggur í sveig af Öskjuhlíð inn á Kringlumýr- arbraut. Ökumenn sem koma brunandi niður Öskjuhlíðina renna sér hiklaust í beygjuna, jafnvel þvert í veg fyrir bíla, sem koma akandi upp gamla Hafnar- fjarðarveginn, enda er ekkert stöðvunarskyldumerki til að hefta för þeirra. Svo mikil er fartin á þeim sem ofanað koma, að hinir, þ.e. þeir sem eru á leið upp eftir, sjá sitt óvænna og nauðhemla. Ég er hræddur um að þarna eigi eftir að verða árekstrasamt og vildi því koma þessari ábendingu á framfæri, áður en slys verður. Ég er þegar búinn að verða vitni að einu óhappi þarna. BORGARSPÍTALINN Bazar Sölusýning á handavinnu sjúklinga geödeildar veröur haldin laugardag og sunnudag 5. og 6. nóvember kl. 13.00—18.00, báöa dagana í Templarahöllinni vió Eíríksgötu. Margt góöra muna. Vinsamlegast fjölmenniö og styrkiö gott málefni. Geðdeild Borgarspítalans. Bazar Blindrafélagsins er í dag að Hamrahlíð 17 kl. 15. Vöru- úrval að vanda s.s. prjónles, jóla- vörur, fatnaður, kökur o.fl. Okkar vinsælu skyndihappdrætti. * Styrktarfélagar Veitíngahúsið í Kvosinni Opiö í kvöld frá kl. 20.00 og annaö kvöld frá kl. 18.00. Borðapantanir í síma 11340. - Veitingahúsiö LKvoólwiL (Café Rosenberg) Austurlensk Fiesta á Hótel Borg dagana 4.—6. nóvember Matreiöslumeistari Ning de Jesus Matseöill TOFtl NO MIZUDAKE Chicken & leek soup Kjúklinga-blaólauksspupa GINISAGN GULAY Fried Mixed Vegetables with shrimp Steiktur grænmetisréttur með rækjum ESCABETCHENG ISDA Sweet <S Sour Fish Súrsætur tiskréttur TUPA A LA CHINO Szechuan Lamb Leg Lambalæri Szechuan TAMIL KARI Indian Coconust Curried Chicken Karrýkjúklingur aó indverskum hætti meó kókos LUMPIA Springrolls Austurlenskar vorrúllur DESERT Bahag Hari China Rainbow Léttur litrikur og hressandi austurlenskur ábætir Verid velkomin Boröapantanir í síma 11440.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.