Morgunblaðið - 24.11.1983, Page 20

Morgunblaðið - 24.11.1983, Page 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983 Jón Þ. Árnason: — Lífríki og iífshættir XCIV. Spurningin er: Hvers vegna draga spekingarnir með alvizkuna von úr viti að sgna töframátt kenninga sinna í verki? Hin spaugilega gráglettni, er eignuð hefur verið franska skáldinu Paul Valéry (1871—1945), að framtíðin sé ekki lengur lík því sem hún áður var, hefir næstum alveg glatað hinni tvíræðu merkingu sinni á aðeins fáum næstliðnum árum. Merking hennar er orðin skila- boð, bæði eindregin og ægileg, sem naumast verða misskilin. Meginástæða þess að boðin ættu að komast til skila, er án nokkurs efa sú, að framtíðin er sannarlega allt öðruvísi en þegar hún var endalaus straumköst og farvegur framfara, sem ætlað var að slíta fjötra fortíðarinnar af nútíðinni, græða sár liðinna alda og stýra öllu inn á betri brautir. Framtíðin er, þvert á móti, orðin aurflaumur öryggis- leysis, sem beljar fram að feigð- arósum, eða eins konar vítisvél, er sífellt nær sterkari og víðtæk- ari völdum yfir aðgerðum og að- gerðarleysi fólks og forystu. För án fyrirheits Framtíðin ber varla fyrirheit í skauti sér lengur, heldur stöðugt höstugri hótanir. Hún er ekki heldur einungis þar, sem hún hefir ávallt átt sinn stað, nefni- lega handan buskans. Hún á sér líka stað í nútíðinni, hún er þeg- ar orðin hluti af henni og líklega viðkvæmasti blettur. Af úlfaldalestum á leið um eyðimerkur fara margar sorg- arsögur, þegar þær hafa látið leiðast af hillingum eða loft- speglunum, svonefndum Fata Morgana. Örlög þeirra hafa sjaldan orðið nema á einn veg. Þjóðfélagsmálastefnur, sem reistar eru á hugarburði og draumsýnum, leiða aldrei til annars en ófarnaðar. Þegar al- systurnar, lygin og hræsnin, eru afl- og orkugjafar, verða leið og leiðarlok auk þess smán og sví- virða. Þegar bjálfabjartsýnin hefir öskrað raunsýni niður í grafarþögn getur árangurinn aldrei orðið annað en úrræða- leysi og síðan uppgjöf, sem oftast jafngildir tortímingu. Flestu vitibornu fólki ber nú orðið saman um, að einmitt tor- tímingin, skelfilegri en nokkurn gat órað fyrir, bíði manns og heims á næsta leiti. Ekki sízt sökum þess, að enn sem áður mun sannast, að þeir, sem missa vitið, þegar vel vegnar, missa og kjarkinn, er syrtir í álinn. Engar ýkjur þurfa því að fel- ast í þeirri staðhæfingu, að framtíðin sé nú allt öðruvísi en hún áður var. Ekki heldur í því, að hún sé þegar gengin í garð — alltof snemma, og sæki fast að öllum vanbúnum. Vanbúnum vegna þess, að marxhismi og markaðstrú, í einu orði mamm- onismi, hafa — eðli málsins samkvæmt — reynzt auðmeltara atkvæðafóður en djúphygli og framsýni Nietzsches og Spengl- ers, eða niðurstöður rannsókna „The Club of Rome“ og höfunda „Global 2000. Report to the President". Erfitt úrlausnarefni Ég hefi aldrei ætlað mér þá dul að reyna að brjóta til mergj- ar, hvaða bábilja sósíalismans væri fáránlegust. Til þess er úr alltof risavöxnum feiknum að velja. Hins vegar hefi ég gizkað á, að þessi alkunna skruggu- þvæla Marx sjálfs hlyti að kom- ast í úrslit: „Þess vegna ræðst mannkynið alltaf í þau verkefni aðeins, sem það getur leyst.“ í alveg sama streng tekur frjálshyggjumaðurinn Werner Lychy í forystugrein sinni í „Die Welt“ daginn eftir að vísinda- menn Hitlers höfðu komið Bandaríkjamönnum — ekki þó öllum — til tunglsins hinn 21. júlí 1969, er hann segir: „Maður- inn getur allt, sem hann bara vill.“ íslenzkir efnishyggjumenn heimspekingur hans, svo og að hann skuli hafa látið rit- og ræðusnillinginn dr. Goebbels semja bók á einhvers konar skollaflæmsku.) Allt kunna þeir, allt geta þeir Síðan hin sovézk/bandaríska samfylking bar sigurorð af synd- inni og þar með hinu „illa i heiminum" og tók til við að tryggja mannkyninu öllu „frelsi til tjáningar, frelsi til trúariðk- ana, frelsi frá skorti, frelsi frá ótta“ eins og hátíðleg heit stóðu til, hefir sízt skort á að urmull pólitískra gullgerðarmanna, sem kalla sig hugmyndafræðinga, hafi verið örlátur á úrræði gegn sérhverjum vanda. Á pappírn- um, en pappír tekur við öllu og er afar umburðarlyndur. nú alveg nýverið, að fjöldinn tók að óttast allt, jafnvel efast um eigin dómgreind, öðlast m.ö.o. skynsemisvott, hafa um víða veröld geisað margvíslegar, en þó í innsta eðli sínu ákaflega samansaumaðar draumsýnir undir firmaheitinu „framfarir". Óvíst er að nokkurt tályrði, nema ef vera skyldi Jöfnuður", hafi haft illkynjaðri sálarbækl- un í för með sér, enda hafa nán- ast allar breytingar, hversu van- hugsaðar sem völ hefur gefizt á, talizt framfarir. Þannig hafa óteljandi, þrautreynd lífernisboð verið dæmd úrelt, gerð útlæg og fallið í gleymsku. Avallt hefir verið hygginna manna háttur að bera saman orð og athafnir, loforð og efndir þeirra, sem hiut áttu að máli, áður en þeir mynduðu sér skoð- f/ íé - ' ■ <. ' . ■. Á þaki heimsins Einnig þar festir „velferðin" rætur. Hugmyndafræði yillu og svima + Heitið var að draga úr vígbún- aði, leysa deilur með samning- um og sáttum, og tryggja mannkyninu ævarandi frið — — efndir hafa orðið æðislegur vígbúnaður, sífelldar styrjald- ir og síðasta stríðið vofir yfir. + Heitið var að varðveita og efla persónufrelsi og mannréttindi — efndir hafa orðið linnulaus- ar borgarastyrjaldir, þjóða- morð á fárra ára fresti, mannrán eru sums staðar orð- in sjálfstæð atvinnugrein, af- tökur án dóms og laga daglegt brauð, og löghlýðnir, heiðvirð- ir borgarar geta ekki farið óhultir ferða sinna og þurfa víða að vígbúa heimili sín. + Heitið var að tryggja verald- lega velferð alþýðu frá vöggu til grafar — — efndir hafa orðið skrifræði og spilling „velferðarríkisins", hrottaskapur verkalýðsrek- enda, svimandi verðbólga, at- vinnuleysi milljónatuga. + Heitið var aukinni og bættri menntun og blómstrandi menningarlífi — — efndir hafa orðið dekur við meðalheimskuna, óbeit á nem- endum, er skara framúr, „sjálfsþroskanám" vegna leti og kæruleysis kennara, fjöldi háskóla brautskráir auðnu- leysingja. + Heitið var lífvænlegu og mannbætandi umhverfi — — efndir hafa orðið viðstöðu- laus náttúruspjöll, sökkvandi borgir í skarni, sorpi og skolpi. + Heitið var að útrýma fátækt, skorti og örbirgð, að tryggja öllum áhyggjulausa framtíð — — efndir hafa orðið fjallgarð- ar óleystra (óleysanlegra?) framtíðarvandamála. + Heitið var bjartsýnu þjóðfé- lagi frjálsra þegna, sem njóta skyldu réttaröryggis í hví- vetna — — efndir hafa orðið þjóðfélag þrúgandi bölmóðs og réttar- ríki, sem orðið er hriktandi hjallur. Mount Everest líka „Framfara“-buslið og hag- vaxtartrúin hófu fána Fata Morgana hátt á loft. Undir hon- um átti mannkynið að stika hröðum skrefum inn á lendur gulls og grænna skóga. Framtíð- arland hugmyndafræðinga allra vinstrivíta breiðir nú út faðminn og býður alla „velferðar“-sjúka hjartanlega velkomna. En götur þess og torg eru hvorki gulli stráð né skreytt. Á valdi Fata Trúin á almætti Flatneskja Morgana mannsins framtíðar landsins hafa ekki heldur dregið af sér í manndýrkun og draumaiðnaði. Á meðal þess, sem þeir hafa miðlað, glitra perlur eins og þessar: „Náttúrugæðin eru óþrjótandi, því að mannlegt hugvit er óþrjótanai," og „Verðið ræður magni.“ Ef síðari fullyrð- ingin væri rétt, hlyti að mega hressa fiskistofna við með því einu, að einhver ríkisnefnd ákvæði óskaverð. Af þessu má m.a. skilja, að Ólafur Björnsson óð ekki reyk í hinni gagnlegu eftirmælabók sinni um frjálsa samkeppni („Frjálshyggja og alræðis- hyggja“, Reykjavík 1978), þegar hann veltir því fyrir sér í all- löngu máli, en miður sannfær- andi, að hversu miklu leyti Marx hafi í rauninni verið frjáls- hyggjumaður. (Annars er það dálítill galli á góðum grip, að höfundurinn skuli ekki hafa vit- að, hvað ægilegasti fjendaflokk- ur sinn hét né heldur þekktasti Ekki er kunnugt um neitt mannlegt mein eða vandamál, sem marxistar og markaðsmenn hafa ekki leyst með bleki, blaðri eða bjartsýni. Hitt er bersýni- legt, að blekiðja og orðabálviðri hefir reynzt ákaflega árangurs- lítið í baráttunni við staðreyndir náttúruríkisins. „Réttar" hug- myndir, stefnur og ismar alls konar hefir hvergi vantað. Miklu fremur hefir verið offramboð af ágætinu. Á hinn bóginn hefir ekki orðið vart við neitt offram- boð af mönnum, sem hafa horfzt í augu við líf og dauða eins og hvort tveggja er og hafa því ekki talið skynsamlegt að bregðast við raunveruleikanum eins og tíðarandinn helzt óskar að hann ætti að vera. Allt frá því að Atlantshafs- sáttmáli þeirra Roosevelts og Churchills var gerður utan um „frelsin fjögur" og reigði ásjónur manna til himins og þangað til anir. Ef þessari gullvægu reglu væri beitt á „framfaraöfl" síðari hluta líðandi aldar, þau litin opnum og gagnrýnum augum, og þess vegna án tillits til snögg- soðinna, fjöldaframleiddra vinstrifordóma, hlyti að verða degi ljósara, að öll hugmynda- fræði, allar töfraformúlur, allar hamingjuhallir lýðræðis og sósí- alisma væru rjúkandi rústir þar sem ekki stendur steinn yfir steini og hvergi grillti í gegnum bræluna. „Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá“ var hollráð, gefið endur fyrir löngu, sem alltaf hefir reynzt ómetanlegt, en aldr- ei þó fremur en nú, þar sem ávextir vinstrimennsku ógna öllu er lifir og lífsvon ætti að eiga. Verkin tala, eða réttara sagt, þau hrópa — og fyrir því hefir aldrei verið brýnna en nú, máski á síðustu stundu, að bera saman orð og athafnir, loforð og efndir: Grænu skógarnir eru líka að verða æ sjaldséðari og sífellt nöturlegri. Fátt bendir því til að gull og grænir skógar muni verða höf- uðprýði framtíðarlandsins. Flest rök hníga til þess nú, að þegnar þess muni verða að sætta sig við sand og ösku. Eða annað ekki geðslegra. Fyrir nokkrum árum hófu „velferðar“-afurðirnar landnám í hlíðum Himalajafjalla og á tindum Alpanna. Fyrir 30 árum sté Sir Edmund Hillary fyrstur manna fæti á hæsta fjall jarðar, fjallið Mount Everest, 8.848 m að hæð miðað við sjávarmál. Hann stóð bók- staflega á þaki heimsins. I vor lét hann hafa eftir sér í blaða- viðtali: „Mount Everest er nú útatað í rusli og sorpi frá rótum og upp á tind.“ Þó mun það smáræði í sam- anburði við Alpafjöllin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.