Morgunblaðið - 08.12.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.12.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983 27 liti á sig sem píslarvott af nokkru tagi. Að jafnaði var hún létt í lund, og enginn kunni betur að gleðjast á góðri stund. Það var til dæmis mikið hlegið við spilaborð, þar sem Þóra var í hópi spila- manna. Kynslóðabil þekktist ekki í návist Þóru. Eftir að „börnin hennar", þau Steinunn, Ásta, Bjarni og Þóra, höfðu stofnað heimili, var Þóra sjálfsögð á gleði- stundum og miðdepill í hverju barnaafmæli. Næsta kynslóð vildi vera hjá „Dollu sinni" eins og hún kenndi börnum að nefna sig. Nú, þegar Þóra Guðnadóttir er látin, er mér efst í huga þakklæti til hennar fyrir allt það sem hún gaf mér og öðrum i minni fjöl- skyldu. Um hana má segja, frekar en flesta aðra, að hún safnaði þeim fjársjóðum sem hvorki möl- ur né ryð fá grandað. Steinunn Einarsdóttir Þann 1. desember sl. lést að elli- heimilinu Grund Þóra Guðnadótt- ir. Hún var fædd að Sigluvík á Svalbarðsströnd þ. 24. september 1899. Hún var næstelst sex systkina. Foreldrar hennar voru Guðni Bjarnason sjómaður og Indiana Kristjánsdóttir. Nálægt tvítugsaldri réðst hún til Bjarna Sæmundssonar nátt- úrufræðings, til hjúkrunarstarfa á heimili hans að Þingholtsstræti 14, vegna veikinda Steinunnar konu hans. Þessi ráðning átti eftir að hafa áhrif á alla hennar framtíð, þar sem hún varð heimilisföst að Þingholtsstræti 14 upp frá því, fyrst í vist hjá Bjarna, síðan fóstra barna Kristínar, dóttur Bjarna, og manns hennar, Mart- eins Guðmundssonar myndhöggv- ara, sem lést á miðjum aldri frá fjórum ungum börnum þeirra hjóna, en þau eru Steinunn, leir- kerasmiður, Ásta, bankastarfs- maður, Bjarni, arkitekt, og Þóra, starfsmaður ríkisútvarpsins. Eftir lát Marteins fóru í hönd erfiðir timar fyrir Kristínu, að halda uppi uppi þungu hemili með vinnu utan heimilis. Þá var hlutur Þóru i uppeldi þeirra barna stærri en nokkru sinni fyrr, og var hann þó stór fyrir. Ég átti því láni að fagna að kynnast þessari einstöku, ljúfu og blíðu konu, sem var konu minni sem og hinum systkinunum sem móðir frá fyrstu tíð. Hún helgaði þessarri fjölskyldu starfskrafta sína alla meðan heils- an leyfði. Umhyggjan fyrir velgengni þeirra og heilsu var hennar markmið í lífinu. Þolinmæði, ein- lægni, hollusta og tryggð voru eig- inleikar sem hún hafði í ríkulegri mæli en ég hef áður kynnst. Hafi hún þurft að bera þjáningar sem ekki er ofætlað, þá kunni hún að láta ekki á því bera. Alltaf var hún létt í lund og kunni manna best að ■slá smávægilegum vandamálum upp í grín. Fjölskylda mín minnist með þakklæti allra áranna sem við átt- um með Þóru. Þórður Hafliðason Haustið 1919 sigldi ég til að leggja stund á enskunám við Lundúnaháskóla. Þegar ég fór heiman að, var yngri systir min, Sigríður, hugljúft 8 ára barn, veik. Hún hafði bólgna kirtla bak við lungun, eftirköst eftir spönsku veikina, sem hún fékk haustið áð- ur. Ekki grunaði mig að sjúkdóm- urinn væri banvænn, en skamman tíma hafði ég verið í London, þeg- ar ég frétti lát hennar, svo og al- varleg veikindi móður minnar. Hún hafði ekki getað afborið dótt- urmissinn og þjáðist nú af ókenni- legum sjúkdómi, líklega parkin- sonsveiki. Skömmu síðar frétti ég, að tvítug stúlka norðan frá Sval- barðseyri, Þóra Guðnadóttir, hefði verið ráðin til að hjúkra móður minni. Þau fjögur ár, sem ég var við nám í Englandi, kom ég aðeins einu sinni heim í sumarfrí. Þá hitti ég Þóru, og urðum við fljótt góðar vinkonur. Engan hef ég þekkt, sem betra gat verið að hafa sem trúnaðarvin en hana, svo var samúðarskilningurinn mikill og þagmælskan algjör. Þóra hjúkraði mömmu með hinni mestu nærfærni, og var þó starf hennar erfitt. Einu sinni í viku þurfti hún að aka henni í hjólastól í baðhús Reykjavíkur, svo að hún gæti legið þar í heitu baði. Þá var ekkert baðherbergi í Þingholtsstræti 14, sem var gam- alt hús. Það hlýtur að hafa verið erfitt að koma mömmu upp í bað- kerið og upp úr því, því að hún var mjög ósjálfbjarga, en aldrei kvart- aði Þóra. Árið 1928 dó mamma. Eftir það varð Þóra ráðskona pabba. Við vorum eins og þrjár systur, Krist- ín, Þóra og ég. Aldrei gerði pabbi upp á milli okkar. Ef um einhverj- ar skemmtanir var að ræða, svo sem leikhús eða dansskemmtun, var sjálfsagt að taka okkur allar með. Árið 1933 giftist ég og flutti upp í Reykholt. Þá varð vík milli vina, en samgangurinn varð samt mikill á báða bóga. Þóra hvarf ekki aftur heim til Norðurlands, en helgaði allt líf sitt þjónustu þeirrar fjöl- skyldu, sem hún hafði ung gengið á hönd. Með henni þoldi hún góða og erfiða daga, gleði og sorg. Henni vígði hún alla krafta sína meðan heilsan entist. Anna Bjarnadóttir Þóra Guðnadóttir lést á sjúkra- deild elliheimilisins Grundar að morgni 1. des. Er þar með lokið langri æfi góðrar konu sem óeig- ingjarnt fórnaði allri sinni starfs- æfi fyrir aðra, konu sem aldrei kvartaði og létti öðrum lífið með einsdæma glaðværð og umhyggju. Jafnvel eftir að starfskraftur hennar þraut síðustu árin og elli- hrumleiki og minnisleysi sótti á, hraut aldrei af vörum þessarar einstöku konu kvörtunartónn né eigingjarnt orð og allt fram til hinstu stundar skein glaðværð úr augunum sem nú eru brostin. Þóra Septína Guðnadóttir fædd- ist á Sigluvík, Svalbarðsströnd 24. sept. 1899, dóttir hjónanna Guðna Bjarnasonar og Indíönu Krist- jánsdóttur. Var þeim hjónum 6 barna auðið. Systkini Þóru eru enn á lífi, þau Sigriður, Birna og Okto en Garðar og Einar eru látn- ir. Þóra fór ung að vinna fyrir sér, eins og venja var í þá daga. 1 síld á sumrin og vinnumennsku á vet- urna, einnig var hún driffjöður í æskulýðsstarfi á Svalbarðseyri. Um tvítugt eru örlög Þóru ráðin því þá ræðst hún í vinnumennsku til Reykjavíkur á heimili afa míns og ömmu, Bjarna Sæmundssonar náttúrufræðings og konu hans Steinunnar Sveinsdóttur, sem þá var orðin sjúklingur. Sigríður systir Steinunnar hafði kynnst Þóru á Svalbarðseyri og litist vel á stúlkuna. Hlutverk Þóru fyrstu 4 árin í Þingholtsstræti 14 var að annast Steinunni og eftir lát hennar starfaði hún áfram við hússtjórnarstörf á heimilinu, enda fékk Bjarni fljótlega miklar mæt- ur á þessari glaðlegu norðlensku stúlku. Börn Bjarna og Steinunnar voru Anna, seinna prestsfrú og kennari í Reykholti, Kristín og Sigríður, sem lést ung. Kristín giftist 1935 Marteini Guðmundssyni mynd- höggvara og stofnuðu foreldrar mínir heimili sitt í Þingholts- stræti 14. Átti Bjarni þá eftir um 4 ár ólifað. Á þessu heimili hélt Þóra áfram að starfa og hafði nú lifað og unn- ið í þessu húsi í ca. 15 ár. Það er óhætt að segja að það var mikil gæfa fyrir þessa fjölskyldu að Þóru skyldi njóta við er Marteinn faðir minn féll frá fyrir aldur fram frá 4 ungum börnum, því það kom ! ljós að ekkjan stóð eigi ein í erfiðri lífsbaráttu, þar sem Þóru naut við. Kristín fékk vinnu við bókavörslu og kenndi á píanó, Þóra sá um heimilið og börnin. Samvinna þessara tveggja kvenna varð löng og giftusamleg, eða allt til dauða móður minnar 1975 og Þóra komin hátt á áttræðisaldur. Þegar við börn Kristínar og Marteins lítum nú til baka á æfi- starf Þóru skiljum við fyrst hve óendanlega við eigum henni að þakka, hennar líf var okkar líf og okkar líf var hennar, hún veitti okkur alla sina ást, umhyggju og alúð, lífgaði hversdagsleikann með léttu lunderni og jákvæðu hugar- fari og krafðist einskis. Hún vann ekki aðeins hin daglegu störf heimilisins heldur lagði allt af mörkum. Vann með okkur systk- inunum í fjölmörg sumur við garðrækt suður í Merkinesi í Höfnum. Afraksturinn af þessari vinnu skipti sköpum á erfiðustu árunum. Eftir lát móður minnar dvaldi Þóra á heimilum okkar systkin- anna til skiptis og blandaði ást- ríku geði sínu við börn okkar eða niðja í þriðja ættlið frá Bjarna og Steinunni sem hún hóf fyrst vist hjá í fjölskyldunni fyrir 64 árum. En ellin lætur ekki að sér hæða og síðustu tvö æfiárin dvaldi Þóra á elliheimilinu Grund við góða að- hlynningu. Þóra er horfin úr þessum heimi en skilur eftir sig anda sem kemur þeim til góða sem henni fengu að kynnast og njóta. Hlédræg, kát og fórnfús gekk hún lífsleiðina, gaf þeim von sem þörfnuðust og trú á mannlega kosti. Veraldlegar eigur urðu nær eng- ar, nokkrir fátæklegir munir sem henni voru gefnir var hennar ver- aldarauður eftir allt sitt strit. Þóra átti efalaust sínar óskir og þrár, von um heimili og eigin börn, því barngóð var hún með eins- dæmum, en allt gaf hún í lítillæti sínu, án biturieika og öfundar, en var þó ríkust allra og fær að njóta handan hafsins. Við systkinin úr Þingholtsstrætinu þökkum guð- legri forsjón að hún kom inn í líf okkar. Blessuð veri ávallt minn- ingin um hana. Steinunn, Ásta, Þóra og Bjarni Marteinsson. t Bróöir okkar, ELESEUS MARÍS SÖLVASON, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. desember kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Svava Sölvadóttir, Páll Sölvason. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi, GUÐFINNUR MAGNÚSSON, Auaturbrún 39, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju sunnudaginn 9. desember kl. 16.30. Jóna Bárðardóttir, Ólöf Guöfinnsdóttir, Brynja Guöfinnsdóttir, Magnús Guöfinnsson Báröur Guðfinnsson, Rut Guöfinnsdóttir, Sverrir Guöfinnsson, Rakel Guöfinnsdóttir, Kristín Erla Jóhannsdóttir. t Hjartkær eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Skipasundi 25, Reykjavík, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 9. desember kl. 10.30. Páll Gíslason, Kristjana S. Pálsdóttir, Guðjóna Pálsdóttir, Steingrímur K. Pálsson, Stefán Pálsson, Páll R. Pálsson, barnabörn og Jóhann V. Guömundsson, Ólöf Ingimundardóttir, Málfríöur Þorvaldsdóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir, barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, EGGERT JÓHANNESSON, póstmaóur, Skálageröi 3, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Bustaðakirkju föstudaginn 9. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minn- ast hans er bent á Öryrkjabandalag íslands. Guölaug Tómasdóttir, Rútur Kjartan Eggertsson, Bergljót Einarsdóttir, Jóhannes Eggertsson, Vilborg Þorsteinsdóttir og barnabörn. Þökkum auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför ÞORFINNS ÍSAKSSONAR, Þórshöfn. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og börn. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og jaröarför SIGURDAR MIKAELSSONAR. Dagbjört Skúlína Pétursdóttir, Jón Valur Sigurösson, Lilja Ólafsdóttir, Anna Mikaelsdóttir, Sigfínnur Mikaelsson, Ólafur Mikaelsson, Valborg Mikaelsdóttir, Anna Guömundsdóttir. Mikael Jónsson, Viðar Elíasson, Aöalheiöur Borgþórsdóttir, Vilborg Borgþórsdóttir, Dagur Bjarnason, t Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSU M. AÐALMUNDARDÓTTUR, Þórsgötu 25. Guórún Aradóttir, Þóra Aradóttir Sickles, Jóhannes Arason, Þorsteinn Arason, Jón Arason, barnabörn Ólafur Björnsson, George W. Sickles, Elísabet Einarsdóttir, Margrét Jónsdóttir, barnabarnabörn. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför sonar míns, stjúp- sonar og bróöur, KRISTJÓNS ARNAR KRISTJÓNSSONAR, framreiöslumanns. Sérstakar þakkir sendum viö Stefáni í Stefánsblómi, stjórn og samstarfsmönnum hans Hótel Sögu og Torfunni. Sólveig Siguröardóttir, Hreinn Ólafsson, Ásta Björgvinsdóttir. t Alúöarþakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát fööur, tengdafööur og afa, SIGFÚSAR GUNNLAUGSSONAR. Bryndis Sigfúsdóttir, Oddgeir Júlíusson, María Sif Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.