Morgunblaðið - 16.12.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Könnun á söluhæstu bókunum:
„Skrifað í skýin
er í fyrsta sæti
u
FÉLAG íslenzkra bókaútgofanda
gerir nú könnun á bóksölunni frá
nóvemberbyrjun fram til jóla. Könn-
unin byggist á talningu bóka í 15
búðum víðs vegar um land. Talning
fór fram 12. desember sl. og fer síð-
an aftur fram 19. desember.
1. Skrifað í skýin, 2. bindi minn-
inga Jóhannesar Snorrasonar
(Snæljós).
2. Skæruliðarnir eftir Alistair
Maclean (Iðunn).
3. Eysteinn í eldlínu stjórnmál-
anna, fyrra bindi. Vilhjálmur
Hjálmarsson skráði (Vaka).
Ljóð Ein-
ars Braga
IÐUNN hefur nú gefið út Ijóð Einars
Braga í heildarútgáfu.
1 fréttatilkynningu frá bókaút-
gáfunni Iðunni segir m.a. að hér sé
um að ræða safn frumortra og
þýddra ljóða frá meira en þrjátíu
ára skáldaferli og að myndir í bók-
ina hafi Ragnheiður Jónsdóttir
gert.
4. Jakobsglíman, uppvaxtarsaga
eftir Sigurð A. Magnússon
(Mál og Menning).
5. Landið þitt, Island, eftir
Þorstein Jósepsson og Stein-
dór Steindórsson, 4. bindi (Örn
og Örlygur).
6. Bjarni Benediktsson í augum
samtíðarmanna. ólafur Eg-
ilsson annaðiast útgáfuna (Al-
menna bókafélagið).
7. Aldnir hafa orðið, 12. bindi.
Erlingur Davíðsson skráði
(Skjaldborg).
8. Borgfirzk blanda, 7. bindi.
Bragi Þórðarson skráði
(Hörpuútgáfan).
9. Saga Hafnarfjarðar
1908—1983 eftir Ásgeir Guð-
mundsson, 1. og 2. bindi
(Skuggsjá).
10. Öldin okkar, minnisverð tíð-
indi 1971-1975. Gils Guð-
mundsson tók saman (Iðunn).
Frá fundi utanríkismálanefndar I gær. Á myndinni eru fri vinstrí: Stefán Benediktsson, Guðrún Agnarsdóttir,
Birgir ísl. Gunnarsson, Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra, Eyjólfur Konrið Jónsson, varaformaður nefndar-
innar, en hann gegnir formennsku í fjarveru Ólafs Jóhannessonar. Næstur Eyjólfi Konráð situr Svavar
Gestsson, þá Ólafur G. Einarsson og næstur i myndinni er Kjartan Jóhannsson.
Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda:
Mótmælir harðlega framkomn-
um hugmyndum um aflamark
Einar Bragi
í kynningu forlagsins á ljóða-
safninu segir svo: Einar Bragi er
ef til vill sá í hópi hinna svonefndu
atmómskálda, frömuða nýs ljóða-
stíls á íslandi um miðja öldina,
sem gætt hefur ljóð sín mestum
lýrískum þokka. Hann er í senn
handgenginn rómantísku skálda-
máli sem hann beitir með per-
sónulegum hætti og kunnáttusam-
ur í meðferð óbundins ljóðforms.
Hann hefur til að mynda flestum
betra vald á hinni vandasömu list
prósaljóðsins ... “
Bókin er 185 blaðsíður. Ragn-
heiður Jónsdóttir gerði kápu, en
Prentsmiðjan Oddi prentaði bók-
FÉLAG íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda mótmælti harðlega fram-
komnum hugmyndum um aflamark
á fiskveiðar á næsta ári á fundi sín-
um hinn 14. þessa mánaðar. f álykt-
un, sem samþykkt var á fundinum,
Smygl í 3 skip-
um fyrir austan
TOLLVERÐIR frá Reykjavík fundu
í vikunni smygl um borð í þremur
skipum, sem voru að koma úr sigl-
ingu. í Höfn í Hornafirði fannst
smygl um borð í vélbátnum Vísi,
sem var að koma úr söluferð. í svo-
kölluðum aftur-pikki, sem er tankur,
og víðs vegar um borð í bátnum
fundust 49 kassar af bjór, 7 flöskur
af áfengi, 14 karton af vindlingum
og 3 myndbandstæki,
Stuðlafoss kom til Eskifjarðar á
miðvikudag og um borð fundust 49
flöskur af áfengi í tanki við ljósa-
vél og 20 kassar af bjór fundust í
vantstanki í vélarrúmi. Þá fannst
einn simi. Loks tóku tollverðir á
mótl Krossanesinu frá Stöðvar-
firði og um borð fundust 12 kassar
af bjór.
eru talin upp 6 atriði, sem talin eru
aflamarkinu til foráttu. Segir þar
meðal annars, að með tilliti til þeirra
sé rétt að fresta ákvörðun um afla-
mark og veiðum næsta árs stjórnað
með auknum veiðitakmörkunum.
Morgunblaðinu er ennfremur kunn-
ugt um að þessi mál hafa verið rædd
í fleiri félögum sjómanna og
útgerðarmanna.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið, að vissulega væru
annmarkar á aflamarkinu, en að-
alatriðið væri það, að allir væru
sammála um, að skrapdagakerfið
væri gengið sér til húðar. Því yrði
að gera eitthvað til að auka gæði
aflans og minnka útgerðar-
kostnað. Það þýddi lítið að gera
ekki annað en benda á annmark-
ana, ef engar hugmyndir væru um
það hvað gera mætti í staðinn.
Nýr stjórnarformaður SVR
SIGURJÓN Fjeldsted, borgar-
fulltrúi, var kjörinn formaður
stjórnar Strætisvagna Reykja-
víkur, á fundi Borgarstjórnar
Reykjavíkur í gærkvöldi í stað
Sveins Björnssonar, sem ráðinn
hefur verið forstjóri fyrirtækis-
íns.
Stjórnarliðar vilja breyta skattalagafrumvarpinu:
Skattaálögur lækki um 3%
eða sem nemur 70 millj. kr.
MEIRIHLUTI fjárhags- og við-
skiptanefndar neðri deildar Alþingis
mun væntanlega leggja fram á Al-
þingi í dag breytingartillögur við
stjórnarfrumvarpið um breytingar á
lögum um tekju- og eignaskatt. Fel-
ur það í sér samkvæmt heimildum
Mbl. um 3% lækkun frá frumvarp-
inu á álögðum sköttum ríkissjóðs á
árinu 1984, eða sem nemur u.þ.b. 70
millj. kr. Breytingarnar munu felast
í lækkun skattstiga frá tillögum þar
um í stjórnarfrumvarpinu.
Ákvörðun um þessar breytingar
Þingmaður krefst opinberrar rannsóknar á meintu kjötsmygll:
Grunsemdir beinast
einkum að Hótel Sögu
sagði Ólafur Ragnar Grfmsson, alþingismaður
Steingrímur Sigfússon (Abl.)
krafðist þess á Alþingi í gær að
ráðherra dóms- og landbúnaðar-
mála hefði frumkvæði um tafar-
lausa, opinbera rannsókn á meint-
um ólöglegum innflutningi á kjöt-
vörum, jafnvel í stórum stfl. Slík
starfsemi bryti í bága við fimm lög
(um sóttvarnir, um hollustuhætti,
um tollheimtu, um varnir gegn gin-
og klaufaveiki og um framleiðslu-
ráð landbúnaðarins).
Jón Helgason ráðherra, sem
fer bæði með landbúnaðar- og
dómsmál, kvað forvera sinn,
Pálma Jónsson, hafa skrifað
rannsóknarlögreglustjóra bréf
fyrir 18 mánuðum og æskt rann-
sóknar á meintu kjötsmygli til
verzlana og veitingahúsa. Þessi
beiðni hafi síðan verið ítrekuð en
ekkert komið ennþá fram á þeim
vettvangi varðandi málið. Hann
las og bréf frá tollgæzlustjóra,
hvar lýst var samtímis skyndi-
rannsókn á staði sem seldu kjöt,
en hafi ekki leitt í ljós misferli.
ólafur Ragnar Grímsson vitn-
aði til bréfs Framleiðsluráðs
landbúnaðarins til rannsóknar-
lögreglustjóra, hvar fram kæmi,
að bréfritarar hefðu vitneskju
um að á tímabilinu 1976—1980
hefði farið fram stórfellt mis-
ferli á hóteli í Reykjavík á þessu
sviði. Áður hafði þingmaðurinn
látið að því liggja að grunsemdir
beindust einkum að Hótel Sögu.
Aðspurður af ráðherra, hvers-
vegna þingmaðurinn nafn-
greindi það hótel sérstaklega,
vitnaði hann til þessa bréfs
Framleiðsluráðs.
Landbúnaðarráðherra kvaðst
ætla að fylgja því eftir við rann-
sóknaraðila, að ofan í þetta mál
yrði farið, svo leiða mætti hið
sanna í ljós, en tók ekki ótvírætt
undir kröfuna um tafarlausa
opinbera rannsókn á meintu
kjötsmygli.
er tekin í kjölfar ákvörðunarinnar
um að breyta forsendum fjár-
lagafrumvarpsins frá því að
reikna með 6% launahækkunum á
árinu 1984 í það að launahækkanir
verði 4%. Þetta mun þýða að
heildartekjuhækkanir á milli ára
eru nú áætlaðar 17,5%, eða 16,5%
á mann í stað 20% á mann eins og
áætlað var í fjárlagafrumvarpinu
eins og það var lagt fram í haust.
Ef ekki koma til umræddar breyt-
ingar á skattalagafrumvarpinu
myndu breyttar forsendur fjár-
lagafrumvarpsins þýða þyngri
skattbyrði.
Breytingartillögur þær sem
meirihluti nefndarinnar hefur
verið með í vinnslu hafa gengið út
á að skattstiga frumvarpsins verði
breytt á þann veg, að á fyrstu 170
þúsund kr. tekjur verði greidd
11,75% í staðinn fyrir 23% eins og
frumvarpið gerir ráð fyrir. Á tekj-
um frá 170—340 þúsund kr. greið-
ist 31,5% í stað 32% og á tekjur
yfir 340 þúsund kr. lækki pró-
sentutala álagningar úr 45% f
44%.
Ganga átti endanlega frá tillög-
um meirihluta fjárhags- og við-
skiptanefndar á fundi í gærkvöld
og stefnt var að því að leggja þaer
fram á Alþingi í dag. Stjórnarlið-
ar hafa náð samkomulagi um að
ná tekju- og eignaskattsfrumvarp-
inu með umræddum breytingum í
gegnum Alþingi fyrir jól. Þá mun
og að vænta frumvarps á Alþingi í
dag um breytingar á skattaálög-
um fvrirtækja.