Morgunblaðið - 16.12.1983, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Þrír starfsmenn vinna við sjómannablaðið Víking og er þessi mynd af
sUrfsliðinu. Fri vinstri: Elísabet Þorgeirsdóttir ritstjóri, Kristín Einars-
dóttir auglýsingastjóri og G. Margrét Oskarsdóttir útgáfustjóri.
Sjómannablaðið Vík-
ingur breytir um útlit
Sjómannablaðið Víkingur
8. tölublað 1983 er nýút-
komið og hafa miklar út-
litsbreytingar verið gerðar á
blaöinu.
Meðal efnis að þessu sinni
eru greinar og litmyndasyrpa í
tilefni 90 ára afmælis Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Öldunnar, greinar um lífeyr-
issjóðinn Hlíf, um fund for-
svarsmanna stýrimannaskóla
á Norðurlöndum. Tölvuratsjáin
ARPA er kynnt, Ásgeir Matt-
híasson ritar grein um blóðgun
og slægingu bolfisks og Kjart-
an Bergsteinsson fjallar um
aukabúnað við örbylgjustöðv-
ar. Föstum þáttum mun fjölga
nokkuð í næstu tölublöðum, en
tveir slíkir eru þegar komnir á
sinn stað. Þeir eru „Ég skipti",
þáttur þar sem leitað er svara
við spurningu lesenda, og „Við
kabyssuna" þar sem ætlunin er
að kynna margvíslega mat-
reiðslumöguleika á sjávarrétt-
um.
Sjómannablaðið Víkingur er
eina málgagn Farmanna- og
fiskimannasambandsins og var
samþykkt á þingi þess í nóv-
ember sl. að stórefla blaðið. Nú
stendur yfir mikil herferð í út-
breiðslu þess, bæði hvað varðar
áskrift og lausasölu.
(Fréttatilkynning.)
>Iukin þjónusta
í aóalbanka
ogíöllum útibúum;
Gjaldeyris -
afgreiösla
Við önnumst nú alla algenga gjaldeyrisþjónustu: Kaup og sölu á
ferðamannagjaldeyri, sölu námsmannagjaldeyris, stofnun innlendra
gjaldeyrisreikninga og útgáfu VISA greiðslukorta.
Iðnaðarbankinn
Reykjavík: Aðalbanki, Lækjargötu 12
Breiðholtsútibú, Drafnarfelli 16-18
Laugarnesútibú, Dalbraut 1
Grensásútibú, Háaleitisbraut 58-60
Réttarholtsútibú, Réttarholtsvegi 3
Gardabær: v/Bæjarbraut
Hafnarfjörður: Strandgötu 1
Selfoss: Austurvegi 38
Akureyri: Geislagötu 14
Fyrsti leikfimitíminn í nýja íþróttahúsinu, 2. bekkur grunnskólans, stúlkur,
isamt kennara sínum, Gunnari Ólafssyni.
Bolungarvík:
Leikfimikennsla
grunnskóla í
nýja íþróttahúsið
Bolungarvík, 5. desember.
HAFIN er leikfimikennsla í nýja
íþróttahúsinu sem verið hefur f
byggingu hér í Bolungarvfk frá irinu
1980. AÓ sögn formanns byggingar-
nefndar hússins er gert rið fyrir að
formleg opnun hússins fari fram í
lok janúar i 6 ira vígsluafmKÍi
sundlaugarinnar.
íþróttahúsið, sem er sambyggt
sundlauginni, er 6990 rúmmetrar,
gólfflötur salar er 594 ferm, en
heildargrunnflötur hússins er 794
ferm. Kostnaður við húsið er áætl-
aður um 17 millj., og er þá miðað
við verðlag 1. október sl.
Um þessar mundir er unnið að
því að afla nauðsynlegs búnaðar
og er gert ráð fyrir að lágmarks-
búnaður verði kominn i húsið um
miðjan janúar.
í um þriggja metra hæð á veggj-
um salarins eru hlaupabrautir
sem eru um 100 metrar að lengd.
Baðaðstaða verður ekki frá-
gengin, þar sem gert er ráð fýrir
að nýta baðaðstöðu sundlaugar-
innar fyrst um sinn.
Arkitekt hússins er Jes Einar
Þorsteinsson, Verkfræðiskrifstofa
Sig. Thoroddsen annaðist verk-
fræðiteikningar, byggingarmeist-
ari og byggingarstjóri hússins er
Sigurður E. Hannesson.
— Gunnar
Bæjarstjórn Boiungarvfkur og byggingarmeistari hússins isamt byggingar-
nefnd fri vinstri: Siguróur E. Hannesson byggingarmeistari, Benedikt Krist-
jinsson, Guómundur Kristjinsson bæjarstjóri, Einar Jónatansson og Valdi-
mar L Gíslason form. byggingarnefndar.