Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 Tilvaldar jólagjafir Fatastandur dökkur eöa Ijós viöur kr. 1.000.- Dönsku ruggustólarnir Kr. 8.400,- Barhnettir 3 gerðir Verð frí 6.500,- Kistur og skápar úr furu Hagstætt verö. SENDUMGEGN PÓSTKRÖFU VALHÚSGÖGN ÁRMÚLI 4 SÍMI82275 Tónlist á hverju heimili umjólin Egilsstaðir: Öldungadeild menntaskólans gefur góða raun KgilNHtööum, 12. desember. ÖLDUNGADEILD Menntaskólans á Egilsstöðum hefur nú starfaö tvsr annir og gefist vel aö sögn rektors, Vilhjálms Einarssonar. Á yfirstandandi haustönn hafa 30 nemendur stundað nám í öld- ungadeild og munu þeir halda áfram námi á vorönn. Húsmæður á Egilsstöðum eru stór hluti nem- enda öldungadeildarinnar — en þær hafa ennfremur sótt dagskól- ann í auknum mæli að sögn rekt- ors. Á vorönn, sem hefst eftir ára- mót, verður tekin upp kennsla í tölvufræði, þjóðhagfræði og vél- ritun í öldungadeild — og verður öllum heimilt að sækja byrjunar- áfanga þessara námsgreina. Auk þess verður kennt framhalds- áföngum í dönsku og bókfærslu. Aö sögn rektors er skólinn nú allvel búinn tækjum til tölvu- kennsku, m.a. verða 5 nýjar tölvur af BBC-gerð teknar í notkun nú í byrjun vorannar. Taldi rektor tækjakost skólans til töluvkennslu þá orðinn með því besta sem þekktist hérlendis. Vegna aukinnar aðsóknar að öldungadeild taldi rektor rétt fyrir þá sem áhuga hafa fyrir námi í deildinni að snúa sér sem fyrst til skólans til skráningar. — Ólafur. MennUskólinn á Egilsstööum útskrifaði fyrst stúdenta vorið 1981 og er meðfylgjandi mynd þá tekin. Þáverandi menntamálaráðherra er í ræðustól. Á sunnudaginn kemur útskrifar skólinn stúdenta í 5. sinn og verða studentar frá skólanum þá orðnir hartnær 100 talsins — og brátt líður að því að stúdentar úskrifist frá öldungadeíld skólans. jfc, .399 dúndur 423 Vesturgötu 3, s. 12880. I\ Nýsending af Tweedfrökkum og Stretchbuxum ídag. Ásamt öðrunriJcóbær um fatnaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.