Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Brand í hnapphelduna í þriðja sinn
Unkel, V-Þýskalandi, 13. desember. AP.
WILLY Brandt, fyrrum kanslari
V-Þýskalands, hefur gengið í það heil-
aga á nýjan leik. Að sögn baejarstjór-
ans í Unkel voru Brandt og heitmey
hans, hin 37 ára gamla Brigitte See-
bacher, gefin saman í ráðhúsi bæjar-
ins á föstudag eftir „venjulegan vinnu-
tíma“.
Hin nýja kona Brandt er blaða-
maður að atvinnu. Hafa þau verið
saman um langt skeið. Brandt er
enginn nýgræðingur í hjónaböndum
því Seebacher er þriðja eiginkona
hans. Báðum fyrri hjónabðndum
hans lauk með skilnaði. Seebacher
er hins vegar að gifta sig í fyrsta
sinn.
Þau Brandt og Seebacher hafa bú-
ið saman i 5 ár í Unkel, sem er smá-
bær skammt utan við Bonn. Þau
kynntust er hún starfaði á skrif-
stofu sósíaldemókrata í Bonn og síð-
ar varð hún einkaritari hans. Áður
en hún flutti til Bonn var hún rit-
stjóri dagblaðsins Berliner Stimme.
Brandt er nú 69 ára gamall, verð-
ur sjötugur á sunnudag. Hann á
fjögur börn frá fyrri hjónaböndum.
Jólamarkadur "
Egilsstaðir:
)>■
Kerti, sælgæti,
búsáhöld, leikföng
og gjafavörur
Vörumarkaðurinn hf.
EÐISTORG111 ARMULA 1a
íþróttahúsið
brátt tilbúið
Kgilsstöðum, 28. nóvember.
NU HILLIR undir það að
fyrsta áfanga íþróttahússins
hér á Egilsstöðum Ijúki og
unnt verði að taka húsið í
notkun um miðjan janúar
næstkomandi.
Þessi fyrsti áfangi hússins,
sem er 1215 m2 að grunnfleti,
hefur verið í byggingu í 5 ár,
en húsið er reist sem grunn-
Kappgjarnir menn
og stórhuga
GUÐLAUGUR JÓNSSON:
P"7REIÐIR Á ÍSLANDI
904-1930 II
skólabygging skv. sérstökum
samningi eignar- og rekstrar-
aðila grunnskólans, Egils-
staðahrepps og Fellahrepps og
ríkissjóðs.
Samkvæmt upplýsingum sveit-
arstjóra Egilsstaðahrepps, Guð-
mundar Magnússonar, er nú áætl-
að að kostnaður á þessu ári vegna
íþróttahússins verði hartnær 6
milljónir, en á fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins fyrir yfirstand-
andi ár var einungis gert ráð fyrir
2.315.000,- kr. til byggingar
iþróttahússins.
Það má því ljóst vera, að bygg-
ing íþróttahússins er verulega
þungur fjárhagslegur baggi á Eg-
ilsstaðahreppi, sem er stærsti
eignaraðilinn, en aflað hefur verið
lána svo að unnt megi reynast að
taka húsið í notkun á áðurnefnd-
um tíma.
Það sem af er vetri hafa
grunnskólanemendur stundað
íþróttir sínar utanhúss, en undan-
farin ár hefur íþróttakennslan
farið fram í Héraðsheimilinu
Valaskjálf við mjög erfiðar að-
stæður svo að tilkoma íþrótta-
hússins gjörbreytir væntanlega
allri íþróttakennslu og íþróttalífi
almennt hér á Egilsstöðum, þv! að
íþróttafélagið Höttur og Mennta-
skólinn á Egilsstöðum munu auð-
vitað fá aðstöðu í hinu nýja
íþróttahúsi eftir því sem rými
frekast leyfir.
Menntaskólinn hyggst nú stofna
til nýrrar námsbrautar, íþrótta-
brautar, en slíkt væri naumast
hugsanlegt án þeirrar aðstöðu sem
íþróttahús veitir.
Sérstök þriggja manna rekstr-
arnefnd rekstraraðila, Egilsstaða-
hrepps og Fellahrepps mun sjá um
daglegan rekstur íþróttahússins,
en Hreinn Halldórsson hefur verið
ráðinn húsvörður.
— Ólafur
Tvö glæsileg bindi í gjafaöskju.
240 Ijósmyndir á 600 síöum.
Bílgreinasambandið.
I þessu verki er í máli og myndum rakin saga bif-
reiða á Islandi frá því fyrsti bfllinn kom hingað
1904 og fram um 1930. Sagt er frá frumkvöðlum í
bflamálum, og landnámi bifreiöa í hinum ýmsu
landshlutum. M.a. er frá því
greint hvernig kappgjarnir menn og stórhuga öttu
bifreiðum síniim á hvert torleiðið af öðru uns bíl-
fært mátti kalla um allt landið.
Samlyndi
baðvörðurinn
ÚT ER komin Ijóðabókin Samlyndi
baðvöröurinn (ástarljóð) eftir magn-
úz gezzon.
Bókin er gefin út á kostnað höf-
undar af forlaginu tungl & blöðrur
og er 14 blaðsiður að stærð.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!