Morgunblaðið - 16.12.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Páfí í kirkju lúterstrúarmanna
Páll páfi II mætti kom til messu lúterstrúarmanna í Róm fyrir
skömmu. Á meðfylgjandi mynd frá AP má sjá trúarleiðtogann á
tali við séra Christoph Meyer.
Hafréttarsáttmálinn til umræðu:
Þrýst á Bandaríkja-
menn að skrifa undir
Sameinuðu þjóðunum, 15. desember. AP.
MIKILL MEIRIHLUTI fulltrúa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lagði í
g«r hart að Bandaríkjamönnum að láta af andstöðu sinni við hafréttarsáttmál-
ann og skrifa undir hann. Fór fram atkvæðagreiðsla um málið og greiddu 135
fulltrúar atkvæði með áskoruninni, aðeins tveir á móti, en fulltrúar sex landa
sátu hjá.
Það voru fulltrúar Bandaríkj-
anna og Tyrklands sem greiddu at-
kvæði gegn áskoruninni, en full-
trúar Belgíu, Bólivíu, Vestur-
Þýskalands, Israels, Ítalíu og Bret-
lands sátu hjá. Það tók átta ár að
púsla saman sáttmálanum á sínum
tíma og var hann samþykktur af
132 löndum þrátt fyrir andstöðu
Bandaríkjanna frá upphafi. Hins
vegar hefur undirskrift aðeins verið
staðfest af þjóðþingum 9 landa og
sáttmálinn mun ekki taka gildi fyrr
en einu ári eftir að staðfesting ligg-
ur fyrir í 60 löndum.
Martin Lars Lindahl, fulltrúi
Bandaríkjanna, sagði i ræðu í gær,
að ýmis ákvæði sáttmálans hiunn-
færu iðnríki og vernduðu ekki hags-
muni þeirra. Atti hann einkum við
þann pistil sáttmálans sem kveður
á um að vinnsla jarð- og steinefna á
hafsbotni á alþjóðlegum siglinga-
leiðum væri „sameiginleg arfleifð
mannkynsins". Talið er að vinna
megi mangan, nikkel og kopar af
hafsbotni fyrir óheyrilegar upp-
hæðir. Lindahl gat þess einnig, að
Bandaríkin væru reiðubúin að
greiða ekki gjöld sín til hafréttar-
ráðsins ef sáttmálinn verður sam-
þykktur án breytinga.
Bandaríkjamenn, svo og Tyrkir,
voru harðlega gagnrýndir fyrir af-
stöðu sína, einkum var sovéski full-
trúinn harðorður í þeirra garð. Nær
allur þriðji heimurinn styður sátt-
málann.
MötuÖ tölva skilar áliti:
„Líkklæðin“ frá dögum Krists
Chieago, 15. desember. AP.
NÝ OG UMFANGSMIKIL tölvurannsókn hefur að mati rannsóknarmanna
leitt ýmislegt í Ijós sem þykir styðja þá skoðun margra að „líkklæði Krists“,
sem svo hafa verið kölluð, kyrtill sem varðveittur er í Torínó á Ítalíu, séu í
raun og veru frá dögum Krists, þó ekki sanni hún að útlínurnar af mannslík-
ama sem í klæðinu eru séu útlínur frelsarans.
Þetta er ítarlegasta tölvurann-
sókn sem gerð hefur verið á kyrtl-
inum og séra Francis Filas, guð-
fræðiprófessor, sem stýrði rann-
sókninni sagði að fundist hefðu
útlínur tveggja nýrra stafa á út-
línum af mynt sem fundist hafa á
klæðinu. Segir Filas athugunina
auk þess hafa staðfest tilvist fjög-
urra annarra stafa á myntinni.
Nýju stafirnir eru o og c, en hinir
u, c, a, i. Er um forn-gríska stafi
að ræða, sem tímasetja myntina á
árið 29 eftir Kristsburð. Fleira
kom í Ijós á umræddri mynt,
nokkuö sem virtist vera ímynd af
staf stjörnufræðings.
Filas sagði að þessi tíðindi
þýddu ekki endanlega að Imyndin
í klæðinu væri af Kristi, hins veg-
ar væri nú hægt að aldursgreina
klæðið nokkuð örugglega og virt-
ist blasa við að það væri einmitt
frá dögum frelsarans, meira að
segja mjög nærri þeim tíma sem
hann var festur á krossinn. Rann-
sóknin stóð yfir í 6 mánuði og Fil-
as hefur sjálfur rannsakað klæðið
I 30 ár. Hann getur þess einnig að
andlitið I líkklæðinu líkist mjög
Kristsmynd frá 6. öld. Margir vís-
indamenn eru á öndverðum meiði
við Filas og skoðanabræður hans
varðandi klæðið, meðal annars
einn sem hefur rannsakað það og
fundið efni nokkuð sem listamenn
nota í lit sem kallast okkurrauð-
ur.
Þetta er saga Glenn Hoddle, skærustu stjörnu enskrar knatt-
spyrnu í dag. Hoddle segir frá ævi sinni, frá því hann sparkaöi
fyrst í bolta níu mánaöa gamall, þegar hann hreifst af Bobby
Charlton í heimsmeistarakeppninni 1966 og allt til þess er hann
leikur sjálfur í lokakeppní HM 1982. Hoddle kemur víöa viö, segir
frá fjölda leikmanna og framkvæmdastjóra, hælir og gagnrýnir,
frá fjölda deildaleikja, bikar-, Evrópu- og landsleikja þar á meö-
al á Laugardalsvelli 1982, og ræöir ástæöur þess hve illa honum
hefur gengið aö vinna sér fast sæti í enska landsliðinu. Hoddle
segir frá komu Argentínumannanna í Tottenham, og hvernig
Falklandseyjastríöiö kom viö sögu hjá félaginu, greinir frá leyni-
makki við vestur-þýska útsendara á hóteli í Austurríki og lýsir
jafnt björtu hliðunum sem skuggahliöunum á atvinnumennsk-
unni. Glenn Hoddle er í dag einn eftirsóttasti knattspyrnumaöur
í Evrópu, hér er tækifærió til aö kynnast honum frá nýju sjón-
arhorni.
fslensk
knattspyrna kemur nú
út í þriöja skipti og er
enn ítarlegri en áður.
Sem fyrr er gangur
keppnistímabilsins rakinn, frá 1. janúar til
októberloka. Frábær frammistaða íslensku liöanna
í Evrópumótunum, hörkuspennandi fslandsmót sem ekki
var til lykta leitt þó síöasta leik væri lokió, frásagnir af öllum lands-
leikjum karla, kvenna, unglinga og drengja.
Myndaopna frá afrekshelgi Atla Eövaldssonar og úr bikarúrslitaleiknum, myndir
úr leikjum og af fjölda leikmanna úr öllum deildum. Litmyndir af öllum islands-
meisturum ársins 1983.
Til viöbótar, svart/hvítar myndir af öllum liöum 1. deildar, upplýsingar um
markaskorara og alla leikmenn, greint frá ferli allra félaga sem tekiö hafa þátt í
íslandsmótinu í knattspyrnu í öllum deildum fyrr og síöar, greint frá öllum sem
skoruóu mark í keppni 1., 2. og 3. deildar og 1. deildar kvenna og öörum sem
athygli vöktu. Jafnframt tæpar eitt hundraö tilvitnanir í orð leikmanna og þjálfara.
íslensk knattspyrna er bókin sem geymir minningarnar — hún verður ómiss-
andi í safninu — hún er besta heimild um íslenska knattspyrnu sem völ er á.