Morgunblaðið - 16.12.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 16.12.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 23 Pólland: Prestur handtekinn Czestocbowa og Varsjá, Póllandi, 13. desember. AP. LECH Walesa lagöi Nóbelsverð- launapening sinn fyrir framan myndina af svörtu madonnunni í kapellu Jasna Gora-klaustursins snemma í morgun, eins og hann hafði ákveðiö aðgera. Tvö ár eru í dag liðin frá því að herlög voru sett í Póllandi. Með setningu þeirra var starfsemi Samstöðu, óháðu verkalýðsfélag- anna, jafnframt bönnuð. Rúmlega 300 manns troðfylltu kapelluna í morgun þegar Walesa lagði verðiaunapeninginn fyrir framan myndina. Engir lögreglu- menn voru sjáanlegir í nágrenn- inu. Guðsþjónustan í morgun hófst nákvæmlega á sama tíma og Jaruzelski tilkynnti í útvarps- ávarpi fyrir tveimur árum, að her- lög hefðu verið sett í landinu. Lögreglan í Varsjá handtók í morgun prest, sem stutt hefur Samstöðu, og sakaði hann um að hafa undir höndum „ólöglega hluti“. Kom tilkynning lögregl- unnar í kjölfar húsleitar, sem gerð var hjá prestinum. Talsmaður stjórnarinnar blés í morgun jafn- framt á þær ásakanir Bandaríkja- manna, að yfirvöld ofsæktu kirkj- una. ■ ■■ 1 \T/ , ERLENT, Brennuvargur og morðingi? Mynd þessi sýnir hina 21 árs gömlu Carol Compton, sem hefur verið ákærð fyrir tilraun til að myrða 3ja ára gamalt barn sem hún var ráðin til að gæta í ítölsku borginni Livorno á síðasta ári. Ungfrú Compton er einnig fyrir rétti vegna meintrar íkveikju, en hún er einmitt sökuð um að hafa ætlað að myrða barnið með því að bera eld að rúmi þess. Barnið hlaut minniháttar brunasár því móðirin kom aðvífandi í tæka tíð. Ungfrúin, sem er skosk, á yfir höfði sér allt að 60 ára fangelsi, en er talið líklegt að hún fái 5—7 ára dóm. A myndinni ræðir ungfrú Compton við móður sína, en rimlar skilja þær að. Þota sprakk BOEING 707 þota frá flugfélagi Kólombíu, sprakk rétt eftir flug- tak á flugvellinum í Medelin. Var þotan notuð til birgðaflutninga og var á leið til Florida til viðgerðar. Þrír voru í áhöfn þotunnar og lét- ust allir, einnig 15 aðrir á jörðu niðri, en brakið dreifðist um mikið svæði og tendraði líflega elda. 19 manns slösuðust enn fremur og björgunarsveitir fengu miklu framgengt með snarræði sínu. Sá danski fyrir rétt DANSKI sjóliðsforinginn sem hleypti af skutulseldflaug af dönsku herskipi, óvart, með þeim afleiðing- um að nokkrir sumarbústaðir skammt fyrir utan Kaupmannahöfn sprungu í loft upp, verður dreginn fyrir rétt á næstunni. Atvikið átti sér stað í september á síðasta ári og þótti mesta mildi að enginn skyldi skaddast. Danska herráðið ákvað umrædda meðferð á hinum 54 ára gamla Henning Olsen, en aðrir sjóliðsforingjar, svo og Olsen sjálfur, eru lítið hrifnir, telja ábyrgðina liggja hjá kerfinu og þar af leiðandi fleiri og háttsettari mönnum. Olsen: „Stór- laxarnir eru nú að flýja hver um annan þveran.“ Starfsbræður Olsens ætla í mál. Ný flugbraut Flugmálayfirvöld og spænsk stjórnvöld hafa hafið lagningu nýrrar flugbrautar á flugvellinum í Madrid í kjölfarið á tveimur afar mannskæðum flugslysum á skömmum tíma. Enrique Baron, samgönguráðherra Spánar greindi frá þessu í gær, en gat þess ekki hvenær brautin yrði tilbúin. Alls létust 279 manns í óhöppunum tveimur. I Hagkaup getið þiö valið úr 120 reróum af frá 18 framleið- endum Sælgætisúrvalið er stórkostlegt 1]Œ Opk) til kl. 22 HAGKAUP Skeifunni 15 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.