Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Guðrún Helgadóttir:
Slæm fundamæting
tefur þingstörf — starfs-
leysi í þingnefndum
Guðrún Helgadóttir (Abl.) gagn-
rýndi vinnubrögð á Alþingi í neðri
deild Alþingis í gær. Slæm mæting
þingmanna í þingdeildinni stæði
störfum hennar fyrir þrifum. Nú
væru aðeins staddir tveir þingmenn
Framsóknarflokks í þingdeildinni,
báðir bundnir við embættisstörf, for-
seti og skrifari. Stjórnarmál hefðu
oftlega náð fram með tilstilli stjórn-
arandstöðuþingmanna í fjarveru
stjórnarliða. Hinsvegar mættu þing-
Keflavík:
Kveikt á jólatré
í DAG, föstudag 16. desember kl.
17.00, verða tendruð ljós á jólatré
því sem Kristiansand gefur Kefl-
víkingum.
Björn Eiden, 1. sendiráðsritari
norska sendiráðsins afhendir tréð
f.h. Kristiansand, sem er vinabær
Keflavíkur, en Guðjón Stefánsson,
formaður bæjarráðs veitir því við-
töku.
Lúðrasveit Tónlistarskólans
leikur og barnakór syngur. Þá
koma jólasveinar í heimsókn.
Fréttatilkynning
Kópavogur:
Kveikt á jóla-
tré frá Svíþjóð
Á BORGARHOLTINU í Kópavogi
verður á morgun kl. 16.00 kveikt á
jólatré sem vinabær Kópavogs-
kaupstaðar, Norrköping í Svíþjóð,
sendi bænum að gjöf. Er það dr.
Esbjörn Rosenblad, sendiráðu-
nautur sem afhendir tréð, en
Björn ólafsson, forseti bæjar-
stjórnar veitir því viðtöku.
Við athöfnina leikur Skóla-
hljómsveit Kópavogs og Samkór
Kópavogs syngur. Þá koma jóla-
sveinar í heimsókn.
Kveikt á jólatré
í Garðabæ í dag
GARÐABÆ hefur borist fallegt
jólatré frá vinabæ bæjarins Asker
í Noregi. Kveikt verður á trénu við
Garðaskóla v/Vífilsstaðaveg í dag,
föstudaginn 16. desember, kl.
14.45.
Forseti bæjarstjóTfiar, Lilja
Hallgrímsdóttir, mun kveikja á
jólatrénu. Lúðrasveit Garðabæjar
leikur jólalög og jólasveinar lfta
við.
Þess má geta að Skipadeild
Sambandsins hefur verið svo vel-
viljuð að gefa frakt og flutning á
trénu.
mannamál ekki sama skilningi hjá
stjórnarliöinu. Hún gagnrýndi og
meint starfsleysi þingnefnda. Hún
kvaðst eiga sæti í allsherjarnefnd
Sameinaðs þings, allsherjarnefnd
neðri deildar og heilbrigðis- og
trygginganefnd þeirrar deildar.
Fyrst talda nefndin hafi haldið tvo
fundi það sem af væri þings, önnur
þrjá og hin síðast talda aðeins einn.
Hún ætti eitt lítið mál varðandi
fleirburafæðingu, sem allir ættu að
geta orðið sammála um, fyrir þeirri
nefnd, en það fengi ekki umfjöllun
þar enn. Ingvar Gíslason, deildar-
forseti, kvaðst að hluta taka undir
gagnrýni þingmannsins, og átaldi, að
nefndarfundir færu fram á sama
tíma og þingdeildarfundir.
Frumvarp um innlenda láns-
fjáröflun var afgreitt frá þing-
deildinn með nafnakalli, þar eð
ónóg þátttaka var í atkvæða-
greiðslu. Já sögðu 18, 11 sátu hjá
og 11 vóru fjarverandi.
MorgunblaðiÖ/Jón Svavarsson.
Ný og fullkomin slökkvibifreið
NÝLEGA er kominn til landsins slökkvibíll af Man-gerð fyrir slökkviliðið í Reykjavík. f bflnum eru margvísleg
tæki, sem slökkviliðið fær í fyrsta sinn. Tveir Danir hafa að undanförnu verið til þess að kenna slökkviliðs-
mönnum meðferð bflsins og tækja hans og hafa 16 slökkviliðsmenn verið við æflngar á hinum nýja bfl.
Nýjung í upplýsingamiðlun:
Iðnaðarráðherra leggur fram skýrslu um starf-
semi ríkisfyrirtækja og hlutafélaga með ríkisaðild
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, lagði fram á Alþingi í gær
skýrslu til Alþingis um starfsemi
ríkisfyrirtækja og hlutafélaga með
ríkisaðild er heyra undir starfssvið
iðnaðarráðuneytis. Skýrsla af þessu
tagi er nýjung og segir ráðherra í
formála, að eigi þetta frumkvæði
áhuga að fagna meöal þingmanna,
komi til greina aö leggja fyrir Alþingi
í byrjun hvers þings skýrslu af sama
tagi.
Itarleg greinargerð fylgir um
hvert fyrirtæki, sem undir ráðu-
neytið heyra, en þau eru þessi:
• Hitaveita Suðurnesja, Svarts-
engi. Eignarhluti ríkisins 40%, en
60% eru í eigu viðkomandi sveitar-
félaga. Skýrslan fjallar um
vinnslutæki orkuversins, dreifi-
kerfi, rafmagnsframleiðslu, nýt-
ingarmöguleika og starfsemi liðins
árs en á því ári var verulegur halli
á rekstri fyrirtækisins, fyrst og
fremst vegna þess að heitavatns-
sala til Keflavíkurflugvallar var þá
ekki hafin.
• Iðnaðarbanki íslands. Upphaf-
leg eign var 46% hlutafjár. Tvisvar
hefur ríkið afsalað sér rétti til
hlutfallslegrar aukningar hluta-
fjár, svo hlutafjáreign þess í dag er
27%. Síðastliðið ár var bankanum
hagstætt „og innlánsaukning bank-
ans var mest allra bankanna og af-
koman góð“.
• íslenzka járnblendifélagið hf.
Eignarhluti ríkisins 55% á móti
45% eign norsks fyrirtækis, Elkem.
Síðastliðið ár var fyrirtækinu erf-
itt, vegna sölutregðu og verðlækk-
unar kisiljárns. Rekstrarhalli varð
22.5 m.kr. 1980, 64,4 m.kr. 1981 (af-
skriftir meðtaldar bæði árin) og
178.5 m.kr. 1982.
• Kísiliðjan hf. við Mývatn. Eign-
arhluti ríkisins 51%. Framleiðslu-
magn 1982 24.500 tonn. Tap 8,5
m.kr.
• Kísilmálmvinnslan hf. Reyðar-
firði. Endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin um byggingu verk-
smiðjunnar. Ríkissjóður greiddi 8,2
m.kr. í hlutafjárframlag 1982 og 5,5
m.kr. 1983.
• Lagmetisiðjan Siglósíld. Fyrir-
tækið hefur átt við rekstrarerfið-
leika að etja, sem eiga m.a. rætur í
„slitnum og úreltum vélakosti".
Nefnd, sem hefur kannað rekstr-
arlíkur telur fyrirtækið geta skilað
hagnaði miðað við framleiðslu 30
þús. kassa af gaffalbitum og 23 þús.
kassa af niðursoðinni rækju. Á
fjárlögum 1982 fékk Siglósíld 2,5
m.kr. fjárveitingu, auk lántöku-
heimildar upp á 4 m.kr.
• Landssmiðjan. Fyrirtækið hef-
ur, auk hefðbundinna verkefna,
Fjöldi skemmtikrafta í
Austurstræti á morgun
STUÐMENN verða meðal fjöl-
margra skemmtikrafta í Austur-
stræti laugardaginn 17. desember,
þegar kaupmenn í götunni minna
borgarbúa á að þar sé „stærsti stór-
markaður landsins", eins og þeir
hafa orðað það. Tveir skemmtipallar
verða í Austurstræti þann dag, hvor
við sinn endann, og jólasveinar
verða á ferli eftir Austurstræti endi-
löngu.
Skemmtiatriðin hefjast um kl.
15 og standa fram eftir degi. Þeir
sem koma fram og skemmta veg-
farendum eru auk Stuðmanna:
Lögreglukórinn undir stjórn
Guðna Þ. Guðmundssonar, Magn-
ús Sigmundsson (og pósturinn
Páll), Jóhann Helgason, gospel-
hópur Krossins, hljómsveitin
CTV, Rúnar Júlíusson og Þórir
Baldursson, hljómsveitirnar
Frakkarnir og Bara-flokkurinn og
loks verður Brúðubillinn með í
gamninu.
Landssöfnun Hjálparstofnunar á jólafóstu:
Fjórar milljónir króna
geta fætt milljón manns
HJÁLPARSTTOFNUN kirkjunnar
barst í vikunni ítrekuð hjálpar-
beiðni frá Ghana og Mozambique
vegna hrikalegrar neyðar af völd-
um þurrka í þessum löndum. Er nú
verið að kanna möguleika á að
senda þangað eggjahvíturíkar flsk-
töflur — en það er háð því, að
landssöfnun Hjálparstofnunar nú
fyrir jólin skili góðum árangri, að
því er segir í fréttatilkynningu frá
stofnuninni.
Nú um helgina hefjast send-
ingar á fisktöflunum til Eþíópíu,
en framleiðsla taflanna er hafin
fyrir nokkru. Söfnunarbaukar
Hjálparstofnunar ásamt frétta-
bréfi og gíróseðli eiga að vera
komnir inn á hvert heimili i
landinu. Hafa viðbrögð fólks
verið mjög jákvæð, segja Hjálp-
arstofnunarmenn, og hefur
fjöldi fólks þegar skilað framlög-
um sínum.
Takist að safna fjórum millj-
ónum króna nú á jólaföstu verð-
ur mögulegt að senda eina millj-
ón matarskammta til hjálpar á
neyðarsvæðunum í Afríku. Það
eru um 20 krónur á hvern íslend-
ing, eða áttatíu krónur á hverja
fjögurra manna fjölskyldu.
unnið að því sl. tvö ár að þróa nýja
aðferð við þurrkun á fiskimjöli,
sem getur sparað mikla orku.
Óverulegur rekstrarhalli var á
fyrirtækinu 1982.
• Landsvirkjun. Eignarhlutir: rík-
ið 50%, Reykjavíkurborg 44,525%
og Akureyri 5,475%. Skýrslan
spannar yfirlit 1982, samning um
virkjanamál og yfirtöku byggðar-
lína, orkuöflun, stjórnun og fjár-
mál. Rekstrarafkoma 1982 var
óhagstæð um 152,1 m.kr. Aðal-
ástæða hallans var að Hrauneyja-
fossvirkjun var tekin í rekstur á
árinu, með tilheyrandi kostnaði, án
tilsvarandi tekjuaukningar, þar
sem framleiðslugeta hennar var
ekki nýtt nema að hluta til.
• Orkubú Vestfjarða. Hlutur rík-
issjóð 60%, en viðkomandi sveitar-
félaga 40%. Starfssvið: virkjun og
dreifing vatnsafls og jarðhita á
Vestfjörðum. Fyrirtækið hefur ver-
ið rekið með nokkru tapi.
• Rafmagnsveitur ríkisins.
Starfssvið: orkuöflun, orkuflutn-
ingur og orkudreifing. Rekstrar-
halli 1982 41 m.kr.
• Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.
Hefur verið rekin síðan 1930.
Rekstur fyrirtækisins hefur verið
jákvæður sl. tvö ár.
• Sementsverksmiðja ríkisins
Akranesi. Afkoma sl. 15 ár hefur
verið slæm að fáum árum undan-
teknum.
• Sjóefnavinnslan Reykjanesi.
Eignarhluti ríkisins 80%. Unnið er
salt, kalí og kalsíumklóríð úr söltu
borholuvatni, sem fæst á staðnum.
Fyrirtækið er enn í byggingu.
• Steinullarverksmiðjan hf. Sauð-
árkróki. Eignarhluti ríkisins 40%.
Stofnkostnaðarframkvæmdir á
byrjunarstigi.
• Þörungavinnslan hf. Reykhól-
um. Meirihlutaeign ríkissjóðs. Sl.
ár var fyrirtækinu heldur óhag-
stætt; framleiðslukostnaður jókst
umfram tekjur.
Lýst eftir
Bronco-jeppa
AÐFARANÓTT miðvikudagsins
14. þessa mánaðar var bifreiðinni
R-62717 stolið við Eyjabakka 28 í
Reykjavík. Þetta er blll af gerð-
inni Ford Bronco, árgerð 1973,
ljósbrúnn á litinn. Þeir sem gætu
gefið einhverjar upplýsingar um
ferðir bílsins eða vita hvar hann
er niðurkominn, vinsamlegast láti
rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík vita.