Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. DESEMBER 1983 37 Sigfu8 Árnason kennir nemendum Egilsstaðaskóla meóferð handslökkviUekja. Morgunbla&ið/ Ólafur Slökkviliðsstjórinn kennir meðferð handslökkvitækja í skólum á Egilsstöðum f BYRJUN desember efndi slökkvi- liðsstjóri Brunavarna á Héraði, Sig- fús Árnason, til æfinga fyrir nem- endur Egilsstaðaskóla í meðferð hvers konar handslökkvitækja. Að undanförnu hefur Sigfús ferðast frá einum skóla til annars hér á Héraði og kennt nemendum meðferð handslökkvitækjanna — og hvarvetna verið aufúsugestur. Brunavarnir eru einn af mörg- um málaflokkum sem sveitarfé- lögin á Héraði hafa samvinnu um. ÓUfur Fallegt, eldfast gler^einföld og stílhrein hönnun Hentugt notkunargildi. Svona eiga góöir hlutir aö vera Eigum fyrirliggjandi hin vinsælu Irish Coffee“-glös kr. 198 stk Einnig eldfastar skájar ogjfleiri fallegar vörur frá Boda-verksmiöjunum Husnæðissamvmnufélagið Buseti: Krefst stóraukins fjármagns til félagslegra íbúðabygginga STJÓRN húsnæðissamvinnufélags- ins Búseta hefur sett fram þá ský- lausu kröfu, fyrir hönd hartnær 2.000 félaga sinna, að heildarfjár- magn til félagslegra íbúðabygginga verði stóraukið. „Lögum samkvæmt ber Byggingarsjóði verkamanna að fjármagna a.m.k. */j af árlegri íbúða- þörf landsmanna. Miðað við þær undirtektir, sem Búseti hefur þegar fengið, væri eðlilegra að miða við að allt að 2þ af íbúðum verði reistar á félagslegum grunni. Þangað liggur straumurinn, þar er þörfin,“ segir m.a. í samþykkt stjórnarinnar frá 10. desember. „Það er ennfremur krafa stjórn- ar Búseta, að lánakjör til félags- legra íbúða verði í engu skert, heldur bætt frá því sem nú er hjá verkamannabústöðum," segir í samþykktinni. „í því sambandi væri eðlilegast að miða við fyrn- ingartíma íbúða, sem talinn er nema 60—100 árum hérlendiS. Stjórn Búseta ítrekar, að leigu- íbúðir með búseturétti eru í hæsta máta félagslegar íbúðir og ættu að njóta sambærilegra lánakjara og verkamannabústaðir “ fG HEFÐINÚ FREMUR KOSIÐ að snœóa undir merki krossins," sagði monsjör Kíkóti. Nú er Kíkóti kaþólskur prestur og Sansjó aídankaður bœjarstjóri. Þeir leggja út á þjóðvegi Spánar. Samrœðurnar fjalla einkum um viðkvœmustu deilumál vorra daga og sýna þau oft í skoplegu og aíhjúpandi ljósi einíaldleikans. Snjöll bók og bráðfyndin eftir Graham Greene.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.