Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 1
Föstudagur 16. desember
Myndakreyting úr bókinni „Draumur okkar baggja“.
Gleðipakki
fyrir alla
fjölskylduna
Komin er út nýstárleg bók
sem heitir „Draumur okkar
beggja“ og er saga hinna vin-
sælu Stuðmanna í myndum og
máli. Bók þessi er ekki hvað
síst sérkennileg fyrir það, að
hún inniheldur ekki aðeins
bundið og óbundið mál heldur
fylgir henni plata, spil, og í
henni er að fínna sönglaganót-
ur og ýmislegt fleira óvænt,
sem allir fjölskyldumeðlimirn-
ir ættu að geta unað sér við.
Það mætti því kalla þessa af-
urð ekkert síður pakka en
bók, þ.e. gleðipakka fyrir alla
fjölskylduna, eins og einn að-
standenda bókarinnar nefndi
hana. En þar eð bókin er um
margt óvenjuleg, ekki hvað
síst útlitslega séð, þá ræddum
við við Kristján E. Karlsson,
sem bar hitann og þungann af
útliti og uppsetningu bókar-
innar. Kristján er útskrifaður
úr Myndlista- og handíða-
skóla íslands og er þetta í
fyrsta sinn sem hann fæst við
vinnu af þessu tagi.
ELLEN FREYDlS
HJÖRDlS
Hvað segja
þau um boðorðin
tíu?
Fyrir ári gerði blaðið Welt am Sonntag könnun á
afstöðu þýskra borgara til almenns siðferðilegs gild-
is boðorðanna tíu. I Ijós kom að sjö af hverjum tíu
litu boðorðin sem bindandi lífsreglur. Við segjum
nánar frá niðurstöðum þessarar könnunar og spyrj-
um nokkra íslendinga um afstöðu þeirra til boðorð-
anna tíu, hvort þau eigi við í nútímanum og hvaða
gildi þau hafa fyrir þá persónulega. Þau sem svara
þessum spurningum eru: Hjördís Hákonardóttir,
borgardómari, Arni Bergur Sigurbjörnsson, prestur,
Ellen Freydís Martin, nemi, Snorri Ingimarsson,
læknir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, myndlistar-
maður, og Þorsteinn Pálsson, þingmaður.
QUÐRÚN SVAVA
Tískuhönnuðir
í hátíðarskapi ...
Nú eru að koma jól og einnig er framundan árshá-
tíðarvertíðin svokallaða, við báðum þv( tvo íslenska
tískuhönnuði, þ*r Mariu Lovísu og Stellu, að draga
fram hátíðarbúningana.
Hvað er að gerast? 60/61 Heimilishorn 70/71 Fólk í fréttum 73
Sjónvarp næstu viku 62/67 Myndasögur 72 Dans/bíó/leikhús 74/79
Útvarp næstu viku 68 Skák/bridge 72 VeSvakandi 78/79
Arni bergur
SNORRI
ÞORSTEINN