Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Sjö af hverjum
tíu Irta á boðorðin sem
bindandi Irfsreglur
Fyrir einu ári efndi vestur-
þýzka blaðið Welt am Sonntag
til skoðanakönnunar um af-
stöðu fólks til almenns siðferði-
legs gildis boðorðanna tíu. Að
beiðni blaðsins var það hin
þekkta stofnun Das EMNID-
Institut í Bielefeld, sem þessa
skoðanakönnun annaðist, og
lagði hún fyrir 1016 Vestur-
Þjóðverja tíu staðhæfingar,
sem menn voru beðnir að taka
afstöðu til. Þessar staðhæf-
ingar höfðu að vísu ekki ná-
kvæmlega sama orðalag og
boðorðin tíu, en voru hins veg-
ar efnislega í fullu samræmi
við þau. Inn í þær var auk þess
fléttað spurningum um önnur
efni, til þess að koma í veg
fyrir, að hinir spurðu gætu
beinlínis þekkt aftur, að þetta
væri inntak boðorðanna. Hinir
spurðu áttu að láta afstöðu sína
í ljósi með því að merkja við
reiti í val-röð í sem fyllstu sam-
ræmi við afstöðu sína til hverr-
ar einstakrar staðhæfingar, og
var þessum svar-reitum raðað
niður eftir fylgi viðkomandi við
efni spurninganna frá einum
(algjörlega samþykkur) og til
sex (gjörsamlega ósammála).
í skýringarteikningu þeirri,
sem hér er birt, er niðurstaða
könnunarinnar sýnd, og voru
svör í reitunum 1, 2 og 3 flokk-
uð sem „samþykki“ í hund-
VTt1
. I
'VVSiv
-ýiUS TOtNHClM
“wviuu,
^ MTYNEFÍGVW,
PCMUiSADOREK
ll
( l\ NF PR.AN0RKS1
I ll.HOMW SYJGl
[tcwwvvyn
(YJ SnCNEWION
[tVNF.T\tNDKK
[ \\T P0VR.INNDC1
, aiVYQVY VVRA1
LY NO MHSÍ SÓG
SOXWYVYNNV
m ■
ÞEGAR MÓSE
TÓK VK> LÖGMÁLSTÖFLUNUM
ÚR HENDI GUÐS
Drottinn sagöi viö Móse: Stfg upp á fjalliö til min og dvel þar, og skal ég fá
þér steintöflur og lögmálið og boöoröin, er ég hefi skrifað, til þess aö þú
kennir þeim.“ Þá lagði Móse af staö og Josúa, þjónn hans, og Móse sté upp
á Guðs fjall. En viö öldungana sagöi hann: „Verið hér kyrrir, þar til er vér
komum aftur til yöar og sjá, Aron og Húr eru hjá yður. Hver sem mál hefir aö
kæra, snúi sér til þeirra." Móse sté þá upp á fjalliö, en skýiö huldi fjallið. Og
dýrö Drottins hvlldi yfir Slnalfjalli, og skýiö huldi þaö i sex daga en á sjöunda
degi kallaði hann á Móse mitt út úr skýinu. Og dýrö Drottins var á aö llta fyrir
Israelsmenn sem eyðandi eldur á fjallstindinum. En Móse gekk mitt inn I skýiö
og sté upp á fjalliö, og var Móse á fjallinu I fjörutlu daga og fjörutlu nætur.
Þannig segir bibllan frá þvl er Móse tók viö boðorðunum tlu úr hendi Guös.
Listamenn hafa túlkaö þennan atburö I myndum og máli. Meöfylgjandi mynd
geröi listamaöurinn Philippe de Champaigne, sem uppi var á árunum
1602—74. Sýnir myndin Móse með lögmálstöfluna. Hangir þessi mynd I
Ermitage-safninu I Leningrad.
raðstölu hinna spurðu, en væri
merkt við reitina 4, 5 og 6 voru
svörin flokkuð sem „neitun“.
EMNID-stofnunin lét auk þess
reikna út meðaltal í afstöðu
manna til hverrar staðhæf-
ingar fyrir sig. Því lægri tala,
sem fékkst úr afstöðu-reitun-
um að meðaltali, þeim mun
greinilegar voru hinir spurðu
samþykkir umræddum stað-
hæfingum. Það, sem helzt vek-
ur athygli varðandi niðurstöð-
ur þesarar könnunar, er ein-
kum þetta:
★ Mikill meirihluti Þjóðverja
nú á dögum kveðst vera fylgj-
andi boðorðunum tíu.
★ Þá kemur í ljós, að vart er um
nokkurn teljandi mismun að
ræða í afstöðu karla og kvenna,
mótmælenda og kaþólskra.
Því yngri, sem hinir spurðu
eru, því betri menntun, sem
þeir hafa, og því stærri sem
heimabær þeirra er, þeim mun
minna telja menn sig bundna af
boðorðunum tíu sem siðferði-
legri viðmiðun.
Einnig kom fram nokkur
munur eftir landshlutum en við
munum ekki tíunda hann hér.
Og þannig litu svo boðorðin
út í þeirri mynd, sem EMNID-
stofnunin lagði þau fyrir, svo
og svör hinna spurðu í einstök-
um atriðum:
Menn ættu stöö-
ugt aö líta á Guó
sem hæstráö-
anda í lífi sínu.
Þessi setning
sem lýtur aö trú-
arsannfæringu manna en ekki aö
neinni siöferðilegri niöurröðun
hlaut minnst fylgi; 31 prósent
hinna spurðu eru henni algjörlega
samþykk, 37 prósent aö meira eöa
minna leyti, en átta prósent hafna
henni algjörlega, 23 prósent hafna
henni aö meira eða minna leyti.
Meöaltaliö á val-kvaróanum
varö 2,8. Konur (meöaltalsgildi:
2,6) hneigjast fremur til aö sam-
þykkja þetta atriöi en karlar (3,0);
fólk yfir sextugt (2,0) fremur en
unglingar (3,3). Fylgi þeirra, sem
höföu eingöngu grunnskólamennt-
un var meira (2,6) en þeirra, sem
höföu stúdentspróf eöa próf frá
háskóla (3,1).
Enginn ætti aó
ákalla Guö sér til
fulltingis, nema
til aö koma fram
trúarlegum mál-
efnum. Þetta er
sú staöhæfing í könnuninni, sem
hlaut samþykki næst fæstra. 23%
eru henni algjörlega samþykk,
48% aö meira eöa minna leyti
sammála. Átta prósent hinna
spurðu kváöust algjörlega ósam-
mála, 19 prósent kvöust vera
henni aö mestu leyti ósammála.
Meöaltaliö varö: 2,8. Því eldri
sem hinir spuröu eru, þeim mun
eindregnari eru þeir í stuöningi sín-
um viö þessa staöhæfingu. Hjá
tvítugu fólki til 29 ára er meöaltal-
an 3,0; hjá fólki, sem orðiö er 65
ára og eldra 2,4. Því betri sem
menntun hinna spuröu er, þeim
mun minna er fylgi þeirra viö þessa
setningu.
Á sunnudögum
ættu menn ekki
að vinna, heldur
taka sér tíma til
aö sinna upp-
byggilegum og
góöum málefnum. Aö því er fylgi
manna viö þessa setningu varöar,
er hún sjöunda í rööinni. 49 pró-
sent eru þessu algjörlega sam-
mála, 34 prósent eru aö meira eöa
minna leyti sammála. 3% hinna
spuröu höfnuöu þessari setningu
gjörsamlega, 12% höfnuóu henni
meö vissum fyrirvara þó.
Meöaltal varö 2,1. Hjá þeim,
sem eru 20 til 29 ára aö aldrei
nýtur þessi setning minnst fylgis
(2,4), þeir sem hafa stúdentspróf
eöa hafa lokiö háskólanámi eru
heldur tregir til aö samþykkja
þessa setningu (2,5), sama gildir
um þá, sem eru meölimir í verka-
lýösfélagi (2,5). Þeir sem orðnir eru
65 ára eöa eldri eru fúsastir til aö
samþykkja þetta boöorö (1,8), þeir
sem eingöngu höföu notiö grunn-
skólafræöslu eru mjög fylgjandi
(2,0).
Menn ættu aö
bera virðingu
fyrir foreldrum
sinum og vera
þeim þakklátir
fyrir allt þaö,
sem þeir hafi gert fyrir mann. Þessi
setning hlaut þriöja mesta fylgiö
meöal þeirra, sem spuröir voru í
skoöanakönnuninni. 51% allra
spuröra kváðust vera henni sam-
mála, án nokkurs minnsta fyrir-
vara; 42% kváöust þessu sammála
aö meira eöa minna leyti. 7% lýstu
sig ósammála þessari setningu en
þó meö vissum fyrirvara.
Meöaltals gildi í afstööu hinna
spuröu: 1,8. Og aftur kemur í Ijós
aó eldra fólkiö, sem oröiö er 65
ára eöa meira, er eindregnara í
jákvæöari afstööu sinni til boö-
orösins (1,6), heldur en mjög ungt
fólk (2,3). Fólk sem haföi einungis
grunnskólafræðslu (1,7), varö
fremur til aó samþykkja þetta at-
riði, heldur en þeir, sem höfðu
stúdentspróf eöa lokiö háskóla-
námi (2,2).
Þaö á aó bera
lotningu fyrir lífi
hvers og eins
manns. Þessi
setning er sú,
sem hlýtur mest
fylgi — í prósentum — af öllum
boðoröunum. 58% þeirra, sem
spuröir voru, reyndust algjörlega
sammála, 37% voru aö meira eöa
minna leyti sammála. Aöeins einn
af hundraöi var gjörsamlega
ósamþykkur, og 4% hinna spuröu
voru ósammála, meö vissum fyrir-
vara þó. Meðaltal varö 1,7. Þaö
reyndist aöeins örlítill munur á af-
stööu manna eftir þjóöfélagsstööu
þeirra.
FYRSTA
BOÐORÐ
ANNAÐ
BOÐORÐ
ÞRIÐJA
BOÐORÐ
FJÓRÐA
BOÐORÐ
FIMMTA
BOÐORÐ