Morgunblaðið - 16.12.1983, Page 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
Fólk vill
vera per-
sónulegt í
klæöa-
buröi
finnst eins og fólk sé
orðiö leitt á þessum stööl-
uöu fötum, sem dembast
yfir mannskapinn viö hver árstíða-
skipti og fást í hverri einustu versl-
un. Fólk er fariö aö vilja vera per-
sónulegra í klæöaburöi, sagöi
Stella í samnefndu tískuhúsi, þeg-
ar viö hringdum í hana á dögunum
til aö ræöa tískumálin.
„Sá fatnaöur sem ég hanna er
ekki endilega í tísku og heldur ekki
bundinn neinu sérstöku formi og
hugmyndirnar eru aö breytast dag
frá degi,“ segir hún ennfremur. „Ég
er þó hrifin af kvenlegum fatnaöi,
eins og þröngum drögtum og
flegnum samkvæmiskjólum."
Nú saumar þú líka á herra, ekki
svo?
„Þaö æxlaöist einhvern veginn
þannig, aö ég fór aö sauma jakka-
föt á unga herra og hefur þessi
saumaskapur sífeilt færst í aukana
og nú er svo komiö aö mínir viö-
skiptavinir eru jafnt konur sem
karlar.“
Meö hvaöa sniöi eru jakkafötin?
„Þetta eru aöaliega fín jakkaföt í
Bógartstílnum.”
Eru þau sérsaumuö?
„Venjulega eru þau saumuö eftir
máli og menn geta komiö meö sín
eigin efni, ef þeir vilja.“
Þú ert klæöskera- og kjóla-
meistari að mennt, er ekki svo?
„Jú, og eg hef unniö við þessi
störf nokkuö lengi, þá einkum
sjálfstætt.“
Finnst þér einhver munur á aö
sauma fyrir konur og karla?
„Mér finnst karlmenn yfirleitt
ánægöari viöskiptavinir. Ég þarf
þó ekki aö kvarta, því ég hef yfir-
leitt góöa kúnna.“
Hvernig fatnaö saumar þú svo á
kvenfólkiö?
„Frá því fínasta niöur í hvunn-
dagsföt."
Nú hefur þú rekiö þitt fyrirtæki í
rúmt ár, finnst þér áhugi á sér-
hönnuðum flíkum hafa aukist?
„Já, mjög mikiö, því fólk kærir
sig ekki lengur um aö fylgja bara
einni línu.“
Eru viöskiptavinir þínir ef til vill
einhverjir sérvitringar?
„Nei, þetta eru bara venjulegir
krakkar. Ég held aö sérvitringar
kaupi sér takmarkaö af fötum.“
Undirbýrö þú sérstaka „collect-
ion“ fyrir árstíöirnar, eins og þessir
„stóru“ í útlöndunum?
„Nei, maöur vinnur þetta bara
dag frá degi enda þýöir lítiö að
hanna fyrir árstíöírnar hórlendis,
því veðriö er svo dyntótt. Siðast-
liöiö sumar seldist til dæmis lítiö af
sumarfatnaöi, því þaö var svo
kalt.“
Hvaöan færö þú hugmyndir þín-
ar?
„Þær veröa til út frá jjeim efn-
um, sem ég er meö í höndunum
hverju sinni. Ég reyni iíka aö finna
hvaö fólkiö vill og þaö stjórnar
þessu því líka. En ég tek hugmynd-
ir aldrei beint upp úr blööum,
nema aö ég sé beöin að sauma
slíkar flíkur.“
Á hvaö leggur þú mesta áherslu
í þínum saumaskap?
„Aö fatnaöurinn sé vandaöur og
frágangurinn sem bestur og að
hann standi ekki innfluttum fatnaöi
aö baki.“
Er ekki erfitt aö reka fyrirtæki
sem þetta í þeirri miklu sam-
keppni, sem er viö innfluttan,
fjöldaframleiddan fatnaö?
„Jú, þetta útheimtir æöislega
vinnu, óg á aldrei frí. En mér finnst
þetta bara svo gaman. Róöurinn
hefur þó lést nokkuö aö undan-
förnu, því verslunin er orðin þekkt-
ari, en ég hef lagt mikiö upp úr aö
kynna hana meö tískusýningum og
auglýsingum.
Mér finnst mjög gaman aö vinna
aö tískusýningum, því þá get ég
saumaö flíkur, sem þurfa ekki aö
vera svo söluhæfar, og þá fær
ímyndunarafliö aö leika alveg laus-
um hala.“