Morgunblaðið - 16.12.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
59
svarað í fjjj/jþa’r Stellu Traustadottur
l flCl P
Hef mest
gaman af
íburðar-
miklum
samkvæm-
iskjólum
Fólk, sem komiö hefur hingaö í
verslunina, hefur aö því er
viröist hrifist af fatnaöi mín-
um og fundist hann engum líkur.
Þaö hefur líka veriö ánægt meö aö
geta komiö meö eigin hugmyndir
og látiö okkur vinna úr þeim. En
viö sérsaumum líka. Fólki finnst
nefnilega gaman aö vera í fatnaöi,
sem ekki er til mikið af, segir María
Lovísa, þegar viö ræöum viö hana
í versluninni Maríurnar, sem hún
og vinkona hennar María Walters-
dóttir reka i sameiningu. Síöar-
nefnda Marían selur snyrtivörur og
ýmsa smáhluti viö fatnaö eins og
hatta og skó.
„Ég hef haft áhuga á fatahönnun
frá því óg man eftir mér,“ heldur
María Lovísa áfram. Ég seldi Verö-
listanum teikningar af fermingar-
kjólum, þegar ég var 13 ára gömul.
i þessum kjólum gengu skólasyst-
ur mínar og þótti mér þaö voöa-
lega sniöugt þá.
Seinna fór ég á ýmis sníða-
námskeiö en hætti svo aö vinna
viö þetta um tíma. Loks dreif ég
mig til útlanda á skóla, en þá var
ekki byrjaö að kenna fatahönnun
hér á landi,“ segir hún, þegar viö
spyrjum hana nánar út í menntun
hennar á þessu sviöi. María Lovísa
stundaöi nám viö Margarethe
Skolen í Kaupmannahöfn og viö
Tilskærer Akademi á sama staö.
Þar er aöal áherslan lögö á fata-
hönnun, teikningu, sníöagerö og
sauma.
Hvernig færöu hugmyndirnar aö
fatnaöi þínum?
„Þegar unniö er viö fatagerö alla
daga, þá koma hugmyndirnar ein-
hvern veginn af sjálfu sér. Þá rissar
maöur hugdetturnar níöur á blaö
og útfærir þær betur seinna. Svo
fylgist maöur auövitaö með tísk-
unni og tekur eitthvert miö af
henni. Annars er maður misjafn-
lega hugmyndaríkur."
Sérhver fatahönnuður leggur
metnað sinn í aö skapa eiginn
fatastíl. Viö báöum Maríu Lovísu
aö lýsa fatnaöi sínum.
„Hann er fremur klassískur en
samt áberandi og frumlegur."
Skiptir þaö ekki miklu máli, aö
vinnan á fatnaðinum sé vönduö.
„Jú, þaö skiptir megin máli. Þaö
er þó ekki hlaupiö aö því aö fá
góöar saumakonur nú til dags, en
ég held aö óg sé komin meö góöar
konur núna.“
Saumar þú ekki eitthvaö af fatn-
aðinum sjálf?
„Þegar lítiö er aö gera þá tek óg
í saumana. Annars fer svo mikill
tími í aö hanna, sníöa og velja efn-
in í fatnaöinn og svo máta hann á
kúnnann, aö lítill tími gefst til
saumaskapar."
En hvernig er meö efnin í fatn-
aöinum, hvaöan færö þú þau?
„Þaö er erfitt aö fá góö efni, því
takmarkaö er flutt inn af dýrum og
fínum efnum. Ég hef stundum
sérpantaö efni frá hinu viöur-
kennda fyrirtæki Elegancé, einnig
geta viðskiptavinirnir pantað þaö-
an efni ef þeir óska eftir því. Æski-
legast væri aö fara á sýningar og
panta efnin beint."
í vinnustofu Maríu Lovísu, sem
er fyrir ofan verslunina, gefur aö
líta efnisstranga af ýmsum geröum
og litum og á veggjum má sjá
teikningar af flíkum ásamt sýnis-
hornum af efnum, sem límd hafa
veriö á spjöld.
„Sumar, vetur, vor og haust, set
ég hugmyndir mínar upp á þennan
hátt. Síöan geri ég sniö af flíkinni
og sauma svo prufuflík og þá sér
maöur hvort hugmyndin er not-
hæf.“
í hverju er mesta vinnan fólgin?
„Aö sníöa og prófa flíkina,
stundum passar hún í fyrstu tilraun
en í öörum tilfellum veröur aö
breyta henni einu sinni eöa oftar."
Hvaða fatnaö hefur þú mest
yndi af aö fást viö?
„Þó að ég framleiöi margvísleg-
an klæönaö þá hef ég mest gaman
af aö vinna viö íburðarmikla sam-
kvæmiskjóla. Ég saumaöi til dæm-
is kjóla á þrjár stúlkur, sem tóku
þátt í feguröarsamkeppni síöast-
liöiö vor og haföi fjarska gaman
af.“
Nú hlýtur sérhannaöur fatnaöur
aö vera dýrari en fjöldaframleiddar
flíkur?
„Þaö liggur í augum uppi aö svo
er. En ég vil vera sanngjörn í verö-
lagningu og ætli veröið á flíkum
mínum sé ekki svona rétt ofan viö
meöallag."
Telur þú fatnaö þinn standast
samanburö viö erlendan, innflutt-
an fatnað?
Ég held aö viö stöndumst
samanburö hvaö verö snertir og
viö reynum aö hafa frágang á flík-
unum eins vandaðan og hægt er,
en þaö vantar ef til vill fullkomnari
tækjakost til þess aö varan geti
fyllilega staöist samanburö viö þaö
besta erlendis.
Næsta spurning er nánast
óþörf, því áhuginn á starfinu leynir
sér ekki, en viö spyrjum samt: Er
þetta skemmtileg vinna?
„Já, þaö er allt jafn skemmtllegt
viö þetta starf."
En hefur þú einhvern áhuga á aö
fara út í fjöldaframleiöslu?
„Til þess þyrfti ég aö eiga verk-
smiöju," svarar hún aö bragöi.
„Mig hefur alltaf langaö til aö
skapa mína eigin tísku. Ef fatnaö-
urinn er fjöldaframleiddur verður
hann aö fylgja ríkjandi tísku-
straumum — þá getur maöur ekki
látiö sína eigin sérvisku ráða."