Morgunblaðið - 16.12.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
79
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
»VA~ Utrri -Q ir
Kýrnar og heita
ölkelduvatnið
SJ. skrifar:
„Velvakandi góður.
Mig langar til að biðja þig að
koma á framfæri smá sögu til
þeirra sem nú deila um hvort rétt
sé að gefa búfé heitt vatn. Menn
eru ekki á einu máli um hvort það
borgi sig fjárhagslega, sem gömlu
mennirnir sögðu: „Hitinn er á við
hálfa gjöf.“ Svo kemur sagan.
Ég þekkti eitt sinn gamlan
bónda sem bjó á lítilli jörð. Hann
hafði frekar lítið bú, þó var bú-
stærðin í fullu samræmi við rækt-
un og aðra möguleika til búrekstr-
ar eða vel það. Af þessum sökum
var oft knappt um fóður, en hann
kunni að fóðra sínar skepnur. Á
þessari jörð er heitt vatn, og opin
sundlaug með heitu ölkelduvatni.
Bóndinn hafði tekið eftir því að
kýrnar sóttust eftir að drekkar úr
sundlauginni ef þær voru þar
nærri, þótt þær færu yfir læk með
tæru vatni til að komast í laugina.
Oft horfði ég á það á heitum
sumardögum að kýrnar hans
komu arkandi yfir lækinn og að
sundlauginni til að fá sér heitt
vatn að drekka. Hvers vegna?
Nú hagaði svo til að gamla fjós-
ið bóndans var stutt frá sundlaug-
inni og þar sem hann hafði fengið
þá reynslu að kýrnar sóttu í heita
vatnið þá lét hann þær fá þetta
heita ölkelduvatn allan veturinn
og síðan vetur eftir vetur á meðan
fjósið var þar. Ekki man ég eftir
því að hafa heyrt um vanheilsu i
þessum kúm, en aftur á móti var
það umtalað í sveitinni hvað kýrn-
ar væru fallegar, feitar og sér-
staklega fiturík mjólkin úr þeim.
Þetta var sagan um kýrnar og
heita ölkelduvatnið.
I framhaldi af þessari sögu er
rétt að víkja aðeins að því vatni
sem minnst er á. Þetta heita öl-
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Farsi getur verið gott leikhús.
Rétt væri: Farsi getur verið gott leikverk.
(Enska orðið theatre merkir fleira en íslenska orðið
leikhús og verður því ekki ævinlega þýtt með því.)
ÖLK.M.
Passar ekki þarna
María skrifar:
„Fyrir nokkru voru settar upp
málmgirðingar umhverfis trén í
fógetagarðinum, líklega til að
reyna að sporna við því að krakkar
hnuðlist á neðanverðum stofnum
trjánna.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fvrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
kelduvatn hefur verið rannsakað
nokkuð, en ekki nóg. Það er talið
mjög steinefnaríkt, og þar á meðal
svo flúorríkt að varasamt er talið
fyrir fullorðinn mann að drekka
meira en sem svarar W úr lítra á
dag. Hvað ætli kýrin megi þá
drekka mikið á dag án þess að bíða
heilsutjón af?
Þessi reynsla með kýrnar, og
svo margt annað sem ekki verður
rakið hér, gefur tilefni til að ætla
að flúorinn í þessu vatni sé ekki
eins hættulegur og sérfræðingar í
eiturefnum hafa álitið. Það sem
hér hefur verið sagt finnst mér
sýna, að full ástæða er til, að þetta
vatn verði rannsakað nánar."
\\wr*
ULPA
MELKA AKKJA
X&StU
hvaðagjöf
hentarbest?
»1'
Xtirki. En það veMst ekki jyrir
þeim sem gjöfin er ceúuö.
Gjq/akort Jm Tbtginu ertOvaMn
gjöf- þú ákvedur upphœdina
- eigandinn gjöfina.
% 'VL
En það er hvort tveggja og bæði,
að mannvirki þessi eru forljót og
falla alls ekki inn i umhverfið og
eins hitt, að gagnsemi þeirra er
minni en til var stofnað. Það kem-
ur nefnilega í ljós, að þetta dregur
krakkana að trjánum, en heldur
þeim ekki í skefjum. Ég heyrði lít-
inn strák kalla yfir sig hrifinn:
„Það er búið að setja stiga við
tréð.“ Og nú komst hann hærra
upp en áður, sagði hann.
Áð öllu þessu slepptu: Sér ekki
hver maður, að málmverkið pass-
ar ekki þarna? Fyrir alla muni
takið það burt hið fyrsta.2
G3P SIG6A V/öGA £ A/LVERAM
ÞRJRR VIKUR ^TRNSLRUST? W VERÐUM
BPjRLua mm\ þrónrr hun efþú
mm HENNIRflefttR PÖNSKU
SKILJI EKKI 0RE>
'QW MIMN
(6ÓPUR? EMSH
LÉTTIR Y
ii—r\i
/4-y SNRftT KðMMER SÖ9E MJL..
Á
«11 III r y ij