Morgunblaðið - 24.01.1984, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
Afturkippur f loðdýraræktinni:
Aðeins sótt
um 18 ný bú
ÞRÓUN loðdýraræktarinnar viró-
ist ætla ad veröa nokkuð hægari í
ár en verið hefur undanfarin ár.
Nýlega auglýsti landbúnaðarráðu-
neytið eftir umsóknum um loð-
Skatta-
framtöl
borin í hús
Um helgina var byrjað að
bera skattframtöl í hús í
Reykjavík og ættu framtölin að
vera komin í hendur flestra við-
takenda.
Með skattframtalinu er
einnig dreift fasteignaseðlum
og leiðbeiningum frá Ríkis-
skattstjóra um útfyllingu
framtals.
Frestur til að skila framtöl-
um rennur út 10. febrúar hjá
einstaklingum, 15. mars hjá
einstaklingum með atvinnu-
rekstur og 31. maí hjá lögaðil-
um. Menn mega svo eiga von á
að fá álagningarseðilinn síð-
ast í júlímánuði.
dýraleyfi. Aðeins bárust 30 um-
sóknir sem er ekki nema lítill
hluti þess fjölda sem sótt hefur
um loðdýraleyfi undanfarin ár.
Að þessu sinni sóttu aðeins 18
aðilar um stofnun nýrra loðdýra-
búa á árinu 1984, en 12 sóttu um
stækkun búa sinna, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
Guðmundu Ögmundsdóttur, deild-
arstjóra í landbúnaðarráðuneyt-
inu. Um leyfi til að stofna ný refa-
bú sóttu 12 aðilar og 10 aðilar um
stækkun refabúa sem þeir eru með
fyrir. 6 aðilar sóttu um leyfi til að
stofna ný minkabú og 2 stóttu um
stækkun minkabúa sinna. Að sögn
Guðmundu er ekki í öllum tilvik-
um sótt um ákveðinn fjölda dýra,
en þar sem það er tilgreint er um
mismunandi fjölda að ræða. Til
dæmis væri fjöldi minka í um-
sóknunum allt frá 60 og uppí 600.
Auk refa- og minkabúanna var
sótt um stofnun 8 ullarkanínubúa.
Sérstök nefnd er starfandi á veg-
um landbúnaðarráðuneytisins til
að fjalla um umsóknir um loð-
dýraleyfi. Formaður hennar er
Haukur Jörundarson, fyrrverandi
skrifstofustjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu en auk hans eru í
nefndinni Ingi Tryggvason, for-
maður Stéttarsambands bænda og
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri.
Þannig var umhorfs í Vestmannaeyjahöfn um jól og áramót.
Morgunblaðid/ Sigurgeir.
Hægagangur yfír at-
vinnulífínu í Eyjum
Vestmannaevium. 23. ianúar. ^
Vestmannaeyjum, 23. janúar.
HÁLFGERÐUR hægagangur hefur
verið yfir atvinnulífinu hér, það sem
af er janúar og vertíðin farið ákaf-
lega rólega af stað. Til þess að gera
fáir bátar eru byrjaðir á veiðum, en
þeim fjölgar nú óðum. Afli hjá þeim
netabátum, sem róið hafa, hefur ver-
ið ákafiega misjafn, en línubátar
hafa verið að kroppa.
Samvinnubankinn í Keflavík
mun frá og meö miövikudeginum 25. janúar n.k.
auka þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar veröur einnig hægt aö opna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
Togararnir hafa verið að koma
inn til löndunar úr fyrstu veiði-
ferðum ársins. í dag er Breki að
landa 215 lestum eftir 10 daga á
veiðum og i síðustu viku lönduðu
Bergey, 72 lestum, Klakkur 117
lestum og Sindri 97 lestum.
Vonzkuveður gerði hér í gær. Þá
kyngdi niður snjó og rauk upp með
hvassviðri og skafrenningi. Var
kófið slíkt, þegar mest gekk á, að
ekki sá milli húsa. Fór vindhrað-
inn upp í 12 vindstig um tíma. All-
ar götur í bænum urðu ófærar, en
félagar úr Björgunarfélaginu,
Hjálparsveit skáta og lögreglan
aðstoðuðu þá, sem þurftu að kom-
ast til vinnu sinnar. Slík snjó-
þyngsli og ófærð er harla óvenju-
íegt hérna á suðrænum slóðum og
hvimleitt öllum öðrum en börnun-
um.
Strax í gærmorgun var hafizt
handa við að ryðja snjó af öllum
helztu umferðargötum og í morg-
un, þegar fólk hélt til vinnu, var
sæmileg færð á öllum aðalgötum
bæjarins. Herjólfur lagði af stað í
gær í sína venjubundnu áætlunar-
ferð til Þorlákshafnar, en snéri
fljótlega við vegna veðurs og
frétta um ófærð á fastalandinu. hkj.
Útlit fyrir aukna
sölu á dilkakjöti
til Bandaríkjanna
VIÐS
ÞESSA dagana er á vegum Búvöru-
deildar SÍS unnið að sölu á dilkakjöti
til Bandaríkjanna. Að sögn Jóhanns
Steinssonar, deildarstjóra í Búvöru-
deildinni, standa nú yfir samningar
við hugsanlega kaupendur ytra, en
ekkert væri endanlega ákveðið ennþá.
Á síðastliðnu ári voru seld um 30
tonn af dilkakjöti til Kinks-versl-
anakeðjunnar. Kjötið var stykkjað
og pakkað í krumpufilmu. Sagði Jó-
hann að þau viðskipti hefðu gengið
mjög vel og toppverð hefði fengist
fyrir kjötið. Nú væri verið að semja
við Kinks og fleiri aðila um sölu á
talsvert meira magni en í fyrra.
Verið er að hanna nýjar umbúðir
utan um kjötið og ef af sölu verður
fer fyrsta sendingin upp úr miðjum
febrúar. Sagði Jóhann að kjötið yrði
væntanlega stykkjað og því pakkað í
Borgarnesi.
Jóhann sagði að stykkjaða kjötið
skilaði mun betra verði en þegar það
væri selt í heilum skrokkum. Sagði
hann að nú væri verið að hefja
stykkjun á 75 tonnum af dilkakjöti
fyrir Svíþjóð. Hér væri um að ræða
endurtekningu á svipaðri sölu þang-
að í fyrra. Fyrsti gámurinn færi
þangað síðar í janúar en síðan tveir
gámar hálfsmánaðarlega. Sagði Jó-
hann að aðalerfiðleikarnir með sölu
á stykkjaða kjötinu væru þeir að
erfitt væri að koma slögunum í verð
hér heima, en kaupendurnir ytra
vildu ekki fá þau með.
íbúðir aldraðra í Njarðvík:
Lægsta tilboði í
lokaáfanga tekið
Keflavík
Njarðvfk, 21. janúar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka lægsta
tilboði í lokaáfanga við smiði sölu-
íbúða aldraðra í Njarðvík. Það var frá
Ingólfi Bárðársyni, rafverktaka, og
hljóðaði upp á 5.089.501 kr., eða 83%
af kostnaðaráætlun, sem var 6.169.435
krónur.
Alls bárust sex tilboð, frá Húsa-
gerðinni hf., 6.302.124 kr., sem er
102,20% miðað við kostnaðaráætl-
un, Steinsmíði, 6.153,848 kr., sem er
99,7% af kostnaðaráætlun, Hús-
byggingu hf., 5.419.130 krónur, sem
er 87,8%, Ólafi Erlingssyni,
5.293,426, sem er 85,8%, Húsanesi
hf., 5.137.618 kr. eða 83,3% og Ing-
ólfi Bárðarsyni, kr. 5.089.501, eða
83% af kostnaðaráætlun.
Eignaraðild Njarðvíkurbæjar í
íbúðunum verður 20%. fbúðirnar
eru við Vallarbraut 2 í Njarðvík.
Vinna við lokaáfangann er þegar
hafin og á að vera lokið fyrir 1. júní
en þá verða íbúðirnar afhentar.
— Fréttaritari.