Morgunblaðið - 24.01.1984, Page 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984
Versta veður
austan hafs
og vestan
Nokkrir bflar á kafi í sköflum skammt frá Inverness í Skotlandi um helgina.
I
Tugir létu lífíð — en
veðurspá er hagstæð
Edinborg, Lundúnum, New York og víðar,
23. janúar. AP.
AFLEITT VEÐUR var vída vestan
hafs og austan um helgina, snjó-
koma mikil, skafrenningur og mikill
kuldi. Stórhríð var í Skotlandi öllu
og náöi hún niður um allar Bret-
landseyjar þó verst hafi veðrið verið
í Skotlandi. Manntjón varö í óveðr-
inu, 9 manns létu lífið, 6 í Skotlandi,
3 sunnar. í Bandaríkjunum létu 43
lífið beint eöa óbeint vegna mikils
kuldakasts sem þar gekk yfir og
varð kuldinn sums staðar enn meiri
en í hinu mikla kuldakasti sem þar
var fyrr í vetur.
f Skotlandi lamaðisl allt at-
hafnalíf vegna mikillar fannkomu
og kulda. Þar létu 3 fjallgöngu-
garpar lífið og tveggja var enn
saknað er síðast fréttist. Símvirki
einn lét lífið er staur, sem hann
var að vinna uppi í, brast og tvö
gamalmenni fundust látin, höfðu
orðið úti. í Miðlöndunum í Eng-
landi lét 19 ára piltur lífið. Bifreið
sem hann ók rakst á tré og lagði
hann fótgangandi af stað til bæja.
Eftir að hafa gengið 5 km gafst
hann upp og varð úti. Tveir til
viðbótar, einn á Englandi og ann-
ar á Norður-írlandi, létust í um-
ferðaróhöppum vegna veðursins.
f Bandaríkjunum var frostið
sums staðar ógnvænlegt, allt að 40
stig á celsíus. Alls staðar var kalt,
Átök í Santiago:
Tólf manns
handteknir
Santiago, Chile, 23. jan. AP.
UM FIMM hundruð félagar í Kristi-
lega demókrataflokknum efndu á
laugardaginn til mótmælaaðgerða
gegn herforingjastjórninni, en þá
voru liðin tvö ár frá því leiðtogi
flokksins, Eduardo Frei, lést.
Aðgerðirnar fóru friðsamlega
fram í fyrstu, en til átaka kom
þegar óeirðalögreglan hóf afskipti
af nokkrum mótmælenda sem
brugðust hart við. Tólf manns
voru þá handteknir.
Frei var forseti Chile um sex
ára skeið, frá 1964—1970, en þá
var Salvador Allende kjörinn for-
seti.
miskalt þó, og víða var mikil úr-
koma í líki snjókomu. Fjöldi um-
ferðaróhappa varð vegna hinna
slæmu skilyrða, í einu tilviki rakst
strætisvagn fyrir skólabörn á
vörubíl og létu 9 manns lífið. Þá
lét einn maður lífið í New York er
Moskvu, 23. janúar. AP.
NÝ SOVÉSK kvikmynd eftir skáldið
Yevgeny Yevtusenko, þar sem sýndar
eru tvær sérstæðar nektarsenur svo
og langur þáttur um rabbí sem situr í
járnbrautarlest og les hebresku, hef-
ur verið frumsýnd í Moskvu og vakið
verulega eftirtekt. Yevtusenko sagði í
dag, að hann efaðist um að myndin
færi víða. Kvikmyndin hefur þegar
fengið bæði lof og last og fyrir utan
þau tvö atriði sem ofar er vikið að,
vakti einnig athygli ítarleg lýsing á
síbersku þorpi í síðari heimsstyrjöld-
inni. Ekkert þessara þriggja efna hef-
ur átt upp á pallborðið í sovézkum
kvikmyndum.
Kvikmyndin heitir „Barnaheim-
ilið“ og mun segja í stórum drátt-
um söguna af því þegar Yevtusenko
var fluttur frá Moskvu til Síberíu
meðan heimsstyrjöldin síðari stóð
yfir, svo og bernsku hans þar. Síðar
í myndinni er síðan sena þar sem
nakin rússnesk kona kemur hlaup-
andi út úr gufubaði og striplast um
í snjónum fyrir utan, hin kátasta.
Síðari nektarsenan sýnir svo unga
brúði, sem fagnar bónda sínum á
hann reyndi drukkinn að komast
inn á heimili vinar síns. Ekki
tókst það og sofnaði maðurinn úti
í gaddinum. Þannig mætti áfram
telja, enda létust 43 sem fyrr segir
í þeim 14 ríkjum sem verst urðu
úti.
brúðkaupsnóttinni. „Sovézkt fólk
er ekki vant því að sjá nektarsen-
ur,“ sagði Yevtusenko. „Ef menn
íhuga rússneskar bókmenntir
munu menn átta sig á að þar er
lítið um ástleitni hvað þá opinská-
ar ástarfarslýsingar." Ekki vekur
þó síður eftirtekt járnbrautarlest-
arkaflinn, þar sem rabbíinn er að-
alpersónan og fólk leitar til hans af
Beirút, 23. janúar. AP.
DRÚSAR héldu áfram skotárásurn á
bækistöðvar stjórnarhersins í Beirút
í dag. Ekki er vitað hvort stjórnar-
herinn hefur svarað í sömu mynt.
Sólarhringur er síðan leiðtogi
drúsa, Walid Jumblatt, lýsti því
yfir að bardögum yrði haldið
áfram þar til ný ríkisstjórn hefði
Veðurspáin var bærileg bæði
vestan hafs og austan. f Banda-
ríkjunum var frostið þegar byrjað
að minnka talsvert í gærmorgun
og þó spáð væri köldu veðri á
Bretlandseyjum átti veður þó að
vera kyrrt.
aðdáun og hrifningu. Slíkt hefur
naumast nokkru sinni sézt í sov-
ézkum myndum, enda eiga gyð-
ingar ekki upp á pallborið í því vísa
landi eins og alkunna er. Yevtus-
enko sagði að yfirvöld hefðu ráð-
lagt honum að klippa nektarsen-
urnar og rabbísenuna út, en hann
hefði ákveðið að gera það ekki. „Ef
maður réttir ritskoðuninni litla
puttann gleypir hún alla höndina
áður en við er litið,“ sagði skáldið
að lokinni frumsýningu.
verið mynduð í Líbanon. Jumblatt
staðhæfir að stjórnin sé ófær um
að finna lausn á vandamálum
landsins.
Alla síðustu viku hafa geisað
harðir bardagar í Beirút, og hefur
fjöldi óbreyttra borgara fallið og
særst.
Mitterrand Frakklandsforseti og Thatcher forsætisráðherra Bretlands, áttu með sér
óvæntan fund í París í dag í boði forsetans. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli.
Raungóður rabbí og berar konur
—Ný mynd Yevtusenko vekur umtal
Drúsar reyna að
knýja stjórnina frá
OFSA-
VEÐUR
í FÆR-
EYJUM
Þórshöfii, 23. jan. Frá Jogvan
Arge, fréttaritara Mbl.
AFTAKAVEÐUR gekk yfir Færeyjar
aðfaranótt sunnudags og urðu tals-
verðar skemmdir á hafnargörðum
víðs vegar um eyjarnar og bryggjan í
Þórshöfn eyðilagðist. Um eitt hundrað
smábátar sukku.
Þetta er mesta óveður sem Fær-
eyingar muna í mörg ár. Enginn
slasaðist en minniháttar skemmdir
urðu á ýmsum mannvirkjum í landi
þegar suðvestanáttin lét sem ófrið-
legast.
Mesti veðrahamurinn var frá því
kl. 11 á laugardagskvöld og fram til
10 á sunnudagsmorgun, en þá létti
til, og er veður nú skaplegt í Fær-
eyjum.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Berlín
BrUssel
Chicago
Dublin
Feneyjar
Qenf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhanneaarborg
Laa Palmas
Liaaabon
London
Loa Angelea
Madrid
Majorka
Malaga
Miami
Moakva
New York
Nýja Delhi
Oaló
Paria
Peking
Perth
Reykjavík
Rió de Janeiró
Róm
San Franciaco
Stokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
+4 anjóól
2 akýjaó
+1 akýjaö
7 anjókoma
+5 snjókoma
4 heióskírt
5 mistur
8 skýjaó
+10 heióskírt
13 skýjaó
14 heióakírt
24 heiöskirt
17 alskýjaó
16 rigning
6 rigning
20 heióskfrt
16 skýjaó
17 akýjaó
18 skýjaó
25 skýjaó
+2 skýjaó
+4 skýjaó
21 heióskirt
-9 skýjaó
10 skýjað
5 heióskírt
23 heiöskirt
+4 úrk.i grennd
32 skýjaó
16 rigning
12 heióskfrt
-2 heióskírt
24 heiðskirt
16 heióskirt
8 skýjaó
9 skýjaó
+2 snjókoma
Hassan hætt-
ir við verð-
hækkanir
Rabat, 23. janúar. AP.
HASSAN konungur Marokkó hefur
fyrirskipað ríkisstjórn sinni að hætta
við þær verðhækkanir á matvörum
sem fyrirhugaðar voru og hafa að
undanfornu valdið blóðugum óeirð-
um í landinu.
í ávarpi sem Hassan flutti í út-
varpi og sjónvarpi á sunnudags-
kvöld sakaði hann leyniþjónustu
ísraela og írana um að skipu-
leggja óeirðirnar, og sagði að röð
og reglu yrði komið á á ný.
Hassan sagði að könnun, sem
hann hefði látið gera á áhrifum
verðhækkana, hefði leitt í ljós að
þær kæmu illa við stóran hluta
þjóðarinnar, og því hefði hann
ákveðið að fallið skyldi frá þeim.
Konungur fjallaði ekki um
mannfall í óeirðunum að undan-
förnu, en heimildir meðal erlendra
sendifulltrúa í Marokkó segja, að
tugir manna hafi týnt lífinu.
Spænsk blöð tala um allt að 200
manns.