Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
Loðnuskipin sigla á
N orðurlandshafnir
SÍÐDEGIS í gær höfðu 15 skip
tilkynnt um afla til loðnunefnd-
ar, alls 8680 tonn, samkvæmt
upplýsingum er Mbl. fékk hjá
Andrési Finr.bogasyni hjá loónu-
nefnd. Andrés sagði aó skipin
væru nú á leið frá miðunum við
Vestmannaeyjar norður fyrir
land, þar sem bræóslur á Siglu-
firói, Krossanesi og Raufarhöfn
væru tilbúnar aó taka á móti afl-
anum. A þessa staói er um 35 til
40 stunda sigling frá Vestmanna-
eyjum.
Skipin, sem síðdegis í gær
iUoröJintilníiiíi
■
12U*1*
MICHELE
MOUTON
Olís-blaóið, blað Olíuverzlunar
íslands hf., er fylgiblað með
Morgunblaðinu í dag.
Seldust upp
á tveimur
dögum
„ÉG MAN ekki eftir svona sölu-
kipp langa lengi,“ sagói Úlfar Hin-
riksson hjá Sveini Égilssyni hf. í
samtali við Mbl. „I»essir 63 af-
sláttarbílar seldust upp á tveimur
dögum.“
Sveinn Egilsson hf. auglýsti
að vegna sérstakra samninga
við Suzuki-verksmiðjurnar gæti
fyrirtækið boðið bifreiðir af
gerðinni Suzuki Alto 1983 með
25.000 króna verðlækkun og þær
seldust allar á tveimur dögum.
höfðu tilkynnt um afla til
loðnunefndar, eru: Hilmir II
með 540 tonn, Skírnir með 430
tonn, Kap II með 200 tonn, Sig-
hvatur Bjarnason með 670
tonn, Ingvar Berg með 530
tonn, Sigurður með 1200 tonn,
Börkur með 1100 tonn, Huginn
með 90 tonn, Magnús með 500
tonn, Víkingur með 1300 tonn,
Heimaey með 100 tonn, Albert
með 550 tonn, Erling með 330
tonn, Sæberg með 600 tonn,
Rauðsey með 550 tonn.
í fyrrakvöld tilkynntu fjögur
loðnuskip um afla, samtals
1290 tonn. Skipin eru: Guð-
mundur Ólafur með 40 tonn,
Bergur með 500 tonn, Gullberg
með 100 tonn og Hrafn með 650
tonn.
Lodnuflotinn ad veiðum undan sudurströnd landsins.
Morgunblaðið/RAX.
Endurtryggingafélag Samvinnutrygginga hf.:
Tryggingasjóður félags-
ins er mjög vanmetinn
— höfuðstóll neikvæður um 10 milljónir króna 1982
IEndurtryggingafélag Samvinnutrygginga hf.:
Skilastjórn skipuð|
Vátryggingaeftirlitð telur félagið
ekki hafa viðhlítandi gjaldþol
Kndurtryggingafélagi Samvinnu-
trygginga hf. var skipuð skilastjórn
af Matthíasi Bjarnasyni, heilbrigðis-
og tryggingaráðherra, 17. janúar
síðastliðinn eins og fram hefur
komió í Morgunblaðinu. Greip ráó-
herra til þessa úrræðis að ósk
Tryggingaeftirlitsins sem taldi fé-
lagið ekki hafa viðhlítandi gjaldþol.
Samkvæmt reikningi félagsins fyrir
árið 1982 var höfuðstóll þess nei-
kvæður um rúmar 10 milljónir
króna í lok ársins. A sama tíma var
tryggingasjóður þess, það er áætlun
félagsins vegna óuppgerðra vátrygg-
ingaskuldbindinga, talinn nema
63,1 milljón króna eins og sjá má á
ársreikningi 1982 er birtist fyrir
skömmu í Lögbirtingablaðinu. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
telur tryggingaeftirlitió Trygginga-
sjóðinn vanmetinn um jafnvel
nokkra tugi milljóna.
Það er samdóma álit þeirra sér-
fróðu aðila sem Morgunblaðið
Fyrirsögn á frétt 17. janúar.
hefur snúið sér til vegna þessa
máls, aó það sé mjög flókið og
erfitt að átta sig á því í raun hve
miklar skuldbindingar Endur-
tryggingafélag Samvinnutrygg-
inga hf. hefur tekið á sig með
viðskiptum við erlenda aðila. Fé-
laginu var skipuð skilastjórn
samkvæmt 43. grein laga um
vátryggingastarfsemi. Skila-
stjórnin hefur það hlutverk að
taka ákvörðun um hvort óska
skuli gjaldþrotaskipta á félaginu
eða hvort það skuli rekið áfram
og viðskiptum þess lokið án gjald-
þrotaskipta.
íslensk vátryggingafélög eiga
mjög mikið undir erlendum
endurtryggingamarkaði, en þar
dreifa þau áhættu sinni. Trygg-
ingaeftirlitið mun hafa talið það
geta skaðað álit íslands á alþjóð-
legum tryggingamarkaði ef End-
urtryggingafélag Samvinnu-
trygginga hf. yrði ekki sett undir
skilastjórn.
Hlutafé í Endurtryggingafélagi
Samvinnutrygginga hf. nemur 2
milljónum króna og eru Sam-
vinnutryggingar og Líftrygginga-
félagið Andvaka eigendur yfir
90% hlutafjárins. Félagið á hluta
í Austurstræti 12 þar sem Sam-
vinnuferðir-Landsýn hf. er til
húsa og er brunabótamat rúmar
2 milljónir króna.
1 skilastjórn félagsins eru Val-
garð Briem, hæstaréttarlögmað-
ur, formaður, Bjarni Þórðarson,
tryggingafræðingur, og Sveinn
Jónsson, endurskoðandi.
Albert Guðmundsson
um forsetaframboð:
Tel að alltaf
eigi að kjósa
Leiðari Alþýðublaðsins túlkar
ekki sjónarmið alþýðuflokksins
segir Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins
Forsetakosningarnar
V.oö.s F.nnbooaoóll.f 'orMti Itiandt heluf Þadgelaall.f v.f.ðum paó »»mmél*»ö Vlgdit «,i, tlnu og lleif. #n e.nn lramti|dðandi v*fó. I
lytl Þ*1 »'•' aó r>ufi rnufi. gtoti«ter i.i too F.nnbogedóíi.f ne«uf gegnl 'Ofteleembjeo.nu k|0fl 5,.», „udo.nge iyórað.nu
u'iifOrt. enbali, 'oftele en 'KJgOf'e ki «)Of tömf Þeð bwyt.f po .atafeutl e*». n.nu , land,nu og ænn.g l.l tlyftltf v.gdll. F.nn
I.mib.1 'Oftdl. fennuf ul ■ tumar að ek*. eru ail.f ,a«n*n«gd., med tlófl lortel gogaddiluf. tlarb n»»luaf e* huo hlyt.anduf
Þad l.gquf ekk. lyr.r n»of| fla.ri veróa I Iram ans Það #f e.ns og genguf i iyófatd.sp,öðle k|ð, ,em i,þi«0i v.,dUf að lal,atl póll .llmogu
ood, I I lofselaembaeiiisint 61 V.gdit vefður lagi Þett vegna er undtf Ollum kdngumslæð ^ auðv.lað að tla nokkru lotlu par um
#.n , Iramboð. fara kosnmgar ekki Iram. dún um aatk.legl og nauðsynlegt að kosnmgai lari
yerðuf s,ailk iOf,n Það er ekk, aask.legur Ifam Iram par sem k,ósendum gelsl kosiur áaðiysa - . _
gangsmai, UA5
í LEIÐARA Alþýöublaósin.s síó-
astlióinn fimmtudag, þar sem fjall-
aó var um yfirlýsingu Vigdísar
Finnbogadóttur forseta íslands
um aó hún gefí kost á sér í fram-
boó, kom fram þaó sjónarmið að
æskilegt væri að fram kæmu fleiri
framboð. Kjartan Jóhannsson,
formaður Alþýðuflokksins, birti
síðan athugasemd í Alþýðubiaðinu
í gær, þar sem hann segir að leið-
ari þessi túlki ekki sjónarmið Al-
þýðuflokksins. Iæiðari Alþýðu-
blaðsins fer hér á eftir:
Vigdís Finnbogadóttir forseti
íslands hefur lýst því yfir, að
hún muni gefa kost á sér til
endurkjörs í embætti forseta, en
fjögurra ára kjörtímabil forseta
rennur út í sumar.
Það liggur ekki fyrir hvort
fleiri verða í framboði til for-
setaembættisins. Ef Vigdís verð-
ur ein í framboði fara kosningar
ekki fram; hún verður sjálfkjör-
in. Það er ekki æskilegur fram-
gangsmáti.
Það geta allir verið um það
sammála að Vigdís Finnboga-
dóttir hefur gegnt embættinu
með sóma. Það breytir þó vafa-
laust ekki hinu, að ekki eru allir
jafnánægðir með störf forsetans.
Það er eins og gengur í lýðræðis-
þjóðfélagi. Þess vegna er undir
öllum kringumstæðum æskilegt
og nauðsynlegt að kosningar fari
fram þar sem kjósendum gefst
kostur á að lýsa áliti sínu og
fleiri en einn frambjóðandi verði
í kjöri. Slíkt myndi vera til
stuðnings lýðræðinu í landinu og
einnig til styrktar Vigdísi
Finnbogadóttur í starfi næstu
ár, ef hún hlyti endurkjör, sem
líklegt verður að teljast, þótt ill-
mögulegt sé auðvitað að slá
nokkru föstu þar um.
Athugasemd Kjartans Jó-
hannssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, fer hér á eftir:
í leiðara Alþýðublaðsins í gær
er sagt að æskilegt sé að fram
komi fleiri framboð til embættis
forseta íslands heldur en fram-
boð núverandi forseta fslands,
Vigdísar Finnbogadóttur. Þessi
leiðari túlkar ekki sjónarmið Al-
þýðuflokksins.
„Ég HEF ekkert hugsaó um þetta,
en það hafa margir tálaö viö mig,“
sagði Albert Guðmundsson fjár-
málaráöhcrra, er hann var spuróur
hvort hann hygðist gefa kost á sér
til forsetakjörs á árinu.
Albert var þá spurður, hvort
hann hefði ekki lýst því yfir að
hann teldi að kjósa ætti forseta
hverju sinni — þeir ættu ekki að
vera endurkjörnir án kosninga.
Hann svaraði: „Ég tel að það
eigi alltaf að kjósa."
— Þú myndir þá kannski
bjóða þig fram í því skyni að
kosningar fari fram, ef ekki
koma fram önnur mótframboð?
„Ég hef nú ekki tekið neina
ákvörðun um það og ekkert
hugleitt það ennþá," svaraði
fjármálaráðherra.
„Fyrir framtíð-
ina“ á Selfossi
FYRIR framtíóina, almennur stjórn-
málafundur Sjálfstæöisflokksins,
verður haldinn í Selfosshíói á Sel-
fossi á morgun, sunnudag kl. 16.
Ræðumenn verða alþingismenn-
irnir Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, Friðrik
Sophusson, varaformaður flokks-
ins, og Sólrún Jensdóttir, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra. Þá
verða almennar umræður. Fund-
urinn er öllum opinn.