Morgunblaðið - 18.02.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
3
Líkan af glerhýsi
í Austurstræti
f GLUGGA Reykjavíkurapóteks má þessa dagana sjá líkan að fyrirhuguðu glerhýsi í Austurstræti. Er ráðgert að
húsið verði á milli Pósthússins og Reykjavíkurapóteks. Endanleg ákvörðun um byggingu þess hefur ekki verið
tekin og liggur beiðnin á borði byggingarnefndar. Það eru Upplýsingar hf. sem hyggjast reisa húsið og reka þaö
sem skyndibitastað. Kristinn Ragnarsson arkitekt er hönnuður hússins, en það var teiknað hjá Teiknistofunni í
Garðastræti 12.
Iceland Seafood
kaupir þorskblokk
frá Danmörku
„VIÐ GERUM ráð fyrir því að
kaupa svipaö magn af þorskblokk
af Dönum í ár og í fyrra, við fáum
ekki nóg af þorskblokk frá íslandi
og af þeim ástæðum kaupum við
frá öðrum löndum og reynum að
velja besta hráefnið sem við get-
um fengið,“ sagði Guðjón B.
Olafsson, forstjóri Iceland Sea-
food Corppration í Bandaríkjun-
um, dótturfyrirtækis Sambands-
ins, í samtali við blm. Mbl.
Guðjón var nýlega í Dan-
mörku til að ræða við dansk
frystihúsamenn og var hann
spurður hvort samið hefði verið
um aukningu á kaupum fyrir-
tækisins á þorskblokk af Dön-
um. Guðjón sagðist bæði hafa
hitt forsvarsmenn fyrirtækja,
sem þeir hefðu verslað við áður
og einnig önnur fyrirtæki og
hefði hann skoðað fyrirtækin og
rætt um vörugæði og þá sér-
staklega lögun á blokkinni.
Sagði hann að Iceland Seafood
óskaði eftir því að þau fyrirtæki
sem skipt væri við, framleiddu
eftir þeirra gæðastöðlum og
væru sendir eftirlitsmenn til
þess að fylgjast með framleiðsl-
unni í frystihúsunum. „Ég var
meira að ræða við þá um lögun á
blokk og sjá þeirra aðstæður, en
að semja um aukningu á kaup-
um,“ sagði Guðjón B. Ólafsson.
Cjöld á bílasínia afnumin:
Verðlækkun
um 30 þús-
und krónur
FELLDIR hafa verið niður tollar,
sérstakt tímabundið vörugjald og
sölugjald af bílasímtækjum, og sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins lætur nærri að niöurfell-
ingin hafi í för með sér 30 þúsund
króna verðlækkun á bflsímum.
Tollur á bílsímum fyrir niður-
fellinguna var 35%, vörugjaldið
30% og sölugjaldið 25,85%. Eftir
niðurfellinguna kostar bílsími á
bilinu 50 til 60 þúsund krónur, og
lætur nærri að verðlækkunin sé
nálægt 30 þúsund krónum á
hverju tæki.
Frá alhendingu tækjanna.
Bætt aðstaða til
ófrjósemislækninga
á Landspítalanum
ÞRJÚ félagasamtök hafa nú gefið kvensjúkdómadeild Landspítalans
tækjakost sem bætir mjög aðstöðu til lækninga á ófrjósemi kvenna
vegna skemmda í eggjaleiðurum. Eru það Reykjavíkurdeild Kauða
krossins, sem gaf smásjá, Svölurnar sem gáfu rafskurðhníf og félag
Soroptimista meðfylgjandi handverkstæki. Tvö fyrrnefndu tækin hafa
þegar verið afhent og tekin í notkun og handverkstækin verða væntan-
lega afhent í næsta mánuði.
Þetta eru
tilboð
helgarinnar
frá
DAIHATSU
Daihatsu Charmant 1600 Le
Daihatsu Charmant 1300 LC
Daihatsu Charmant 1300 LC
Daihatsu Charmant 1600
Daihatsu Charmant 1600 Stat.
Daihatsu Charmant 1400 Stat.
Daihatsu Charmant 1400 4ra d.
Daihatsu Charmant 1400 4ra d.
Daihatsu Charade Runabout
Daihatsu Charade Runabout
Daihatsu Charadet 5 dyra
Daihatsu Charade 5 dyra
Daihatsu Charade 5 dyra
Árg. Litur
’82 Silfurgrár
’83 Stálblár
’82 Stálblár
’81 Vínrauöur
’81 Vínrauöur
’79 Ljósbrúnn
’79 Vínrauöur
’79 Silfurgr.
'81 Blár Met.
’80 Silfurgr.
’81 Vínrauöur
’80 Rauöur
’79 Grænn
Km.
10 þús.
10 þús.
24 þús.
41 þús.
45 þús.
43 þús.
27 þús.
34 þús.
35 þús.
57 þús.
27 þús.
30 þús.
48 þús.
Verö
280 þús.
290 þús.
250 þús.
195 þús.
180 þús.
140 þús.
150 þús.
140 þús.
190 þús.
150 þús.
190 þús.
160 þús.
130 þús.
Notkun þessa tækjakosts hef-
ur gefist vel erlendis. Að sögn
Auðólfs Gunnarssonar, kven-
sjúkdómalæknis, eru batalíkur
ófrjósamra kvenna vegna
skemmda í eggjaleiðurum um
20% nú og fara þær að mestu
leyti eftir því hvers kyns
skemmdirnar eru og hve mikl-
ar. Hann sagði að með notkun
tækjanna gætu batalíkur aukist
um 30% —50%, þó að slíkt væri
ekki hægt að staðhæfa.
Aðspurður um fjölda ófrjó-
samra kvenna sem þyrftu að
gangast undir aðgerð vegna
skemmda í eggjaleiðurum sagði
Auðólfur, að nákvæm tala um
fjölda þeirra væri ekki fyrir
hendi. Hins vegar kvað hann
um 10% allra hjóna eiga við
ófrjósemisvandamál að stríða
og væri vandinn hjá konunni í
um helmingi tilfella. Hjá um
50% kvennanna stafaði ófrjó-
semi síðan af skemmdum í
eggjaleiðurum og því mætti sjá
að töluvert margar konur
þyrftu að gangast undir slíka
aðgerð.
Galant 1600 sem nýr
Volvo 244 DL góöur bíll
Galant 1600
Mazda 929 sjálfsk.
BMW 520 beinsk. vökvast.
’81 Gr. Met.
’76 Orange
’80 Silfurgr.
’80 Rauöur
’78 Vínrauður
30 þús. 240 þús.
135 þús. 170 þús.
79 þús. 180 þús.
36 þús. 220 þús.
20 þús. 230 þús.
Höfum góöa kaupendur að Daihatsu Charade árg. 1980 og 1981.
DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23 85870—81733.